Öl er böl !!

Af hverju gerir maður sjálfum sér þetta??  Djammar langt fram eftir morgni og er svo gjörsamlega handónýtur allan sunnudaginn og mánudaginn líka.  Þegar vekjaraklukkan hringdi í gærmorgun langaði mig til að gráta og eina hugsunin var "neeeiii....leyfið mér að sofa bara pínu lengur plíííís". 

En með herkjum dru#$&aði ég mér framúr og niður í Hreyfingu og tók brennslu og leið svo milljón sinnum betur á eftir. 

Þessi pistill er því tileinkaður öllum þeim sem fóru á djammið á laugardaginn, og ég veit að þeir eru margir, þar sem miðbær Reykjavíkur var gjörsamlega stappaður fram eftir sunnudagsmorgni þegar ég loksins drattaðist heim.  

 Bæði áfengisdrykkja og svefnleysi eru örugglega það versta sem maður gerir líkamanum.

Hér koma nokkrar staðreyndir um áfengi og neikvæð áhrif þess á líkamann: 

1)  Hvert gramm af áfengi inniheldur 7 hitaeiningar, en kolvetni og prótín innihalda aðeins 4 hitaeiningar.  Í áfengi eru svokallaðar "tómar" hitaeiningar, því þær veita engin næringarefni s.s vítamín og steinefni.

2)  Léttvín og bjór innihalda mikinn sykur og því er magn hitaeininga sem neytt er umfram þörf líkamans.  Þetta veldur losun á háu magni insúlíns og  hitaeiningar eru geymdar í fitufrumum sem hækkar fitumagn líkamans.

3) Þar sem áfengi veitir litla sem enga næringu, hefur það örvandi áhrif á matarlyst bæði á meðan neyslu stendur og eftir hana.  Áfengi losar líka um hömlur, og undir áhrifum verður manni oft sama um heilsusamlegt mataræði.

4) Áfengi truflar meltingu prótíns og kolvetna í lifur og hún getur ekki myndað nýjan glúkósa.  Áfengi truflar líka framleiðslu ensíma í brisi sem sjá um niðurbrot fitu í líkamanum.  Sterk tilhneiging verður hjá líkamanum til fitusöfnunar og erfitt að byggja upp vöðvavef. 

5) Áfengi þurrkar upp líkamann.  Vökvabúskapur líkamans fer úr skorðum við neyslu áfengis því mikið af vatni líkamans þarf til að vinna úr áfengi í nýrum í stað þess að nýtast í aðra starfsemi.  Það getur tekið líkamann nokkra daga að vinna upp þetta vökvatap.  

Eru fleiri en ég hættir að drekka??


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Þú átt bara að hætta þessu böli og taka okkur hin til fyrirmyndar,út að hlaupa ,vinna,hesthúsið ogmf um helgina

Eysteinn Skarphéðinsson, 15.5.2007 kl. 14:17

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er óvirkur alki mín kæra og löngu búin að átta mig á skaðsemi áfengis, loksins þegar ég horfðist í augu við það.  Ég bendi þér á í mesta bróðerni að muna eftir afleiðingunum ÁÐUR en þú færð þér í glas.  Heh..

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.5.2007 kl. 14:17

3 identicon

Maður er yfirleitt búinn að gleyma kvölunum þegar næsta helgi kemur

DoctorE (IP-tala skráð) 15.5.2007 kl. 14:28

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Þar sem aðaláhugamál mitt er ræktun líkama og sálar, þá vildi ég einfaldlega benda á skaðleg áhrif ölsins fyrir okkur sem hömumst í ræktinni alla daga. Ég myndi nú ekki ganga svo langt að segja að drykkja mín sé eitthvað vandamál sem þurfi að hætta, þar sem ég neyti áfengis á u.þ.b tveggja mánaða fresti, en ætli það verði ekki eitthvað lengri bið í það núna. Djammið er ekki þreytunnar og myglunnar virði.

Ragnhildur Þórðardóttir, 15.5.2007 kl. 20:35

5 Smámynd: Eydís Hauksdóttir

Blessuð Ragnhildur, gaman að fá comment frá þér skvísa :-) Sé á síðunni þinni að þú ert á kafi í ræktinni og svaka góðu formi... mér veitti af því að gera þó ekki væri nema 10% af því sem þú ert að gera í þeim málum, tíhí. Gott að lesa þetta sem þú varst að skrifa um áfengi, drakk nefnilega aðeins og mikið hvítvín í gærkvöldi og það er að skila sér í mikilli vanlíðan núna :( Bestu kveðjur frá Danmörku, Eydís

Eydís Hauksdóttir, 16.5.2007 kl. 11:30

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð Eydís!  Til hamingju með að vera fyrsti bloggvinur minn .  Já ölið getur verið böl.... allavega daginn eftir eins og þú ert rækilega minnt á í dag .  Batakveðjur!!

Ragnhildur Þórðardóttir, 16.5.2007 kl. 11:48

7 identicon

Blessað áfengið...  Ég stóð lengi í þeirri trú að eitt og eitt léttvínsglas skipti nú ekki svo miklu máli. Eftir að ég fór að vera duglegri við hreyfingu þá finn ég alveg að þetta hefur ótrúlega mikið að segja. Ég finn bara strax mun á þrekinu hjá mér daginn eftir ef ég fæ mér léttvín. Þá er ég kannski ekki að tala bara um 1 glas.. en 2-3 - þá finnst mér ég finna mun! Sumt af því sem þú segir hef ég heyrt áður en ég vissi ekki að áfengið væri svona hitaeiningaríkt né þetta með vatnið  Úff.. ég held að maður hugsi sig nú tvisvar um áður en maður fær sér næst í glas !!

Takk fyrir góða fræðslu

Óla Maja (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 549062

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband