Algeng mistök í mataræði

Mig langar til að benda á nokkur algeng mistök sem fólki sem er að taka upp heilsusamlegra mataræði hættir til að gera. 
  • Telja hitaeiningar  Bæði er það hundleiðinlegt, og allt of erfitt fyrir byrjendur að vita hve margar hitaeiningar eru í mismunandi fæðutegundum og reikna það svo allt saman fyrir heila máltíð.  Til að byrja með skiptir meira máli hvað er borðað frekar en hve mikið.  Miklu betra er að áætla skammtastærðir út frá disknum sínum: 40% prótín, 40% kolvetni og 20% góð fita.
  •  Borða of lítið   Margir sem taka mataræði sitt í gegn lenda í þeirri gryfju að skera niður hitaeiningafjöldann of mikið í þeirri trú að því minna sem borðað er því mjórri verði þeir.  En eins og ég fjallaði um í öðrum pistli þá hefur það þveröfug áhrif á líkamann og hann fer í "katabólískt ástand" þar sem hann brennir vöðvavef en ekki fituvef, því fitan er meginorkuforðinn í hungursneyð og í hana vill hann halda sem lengst í svona ástandi.  Konur eiga aldrei að borða færri en 1200 hitaeiningar á dag og karlmenn 1800 hitaeiningar.
  • Sleppa máltíðum  Blóðsykur verður of lágur.  Það hægist á brennslu líkamans því hann vill spara orkuna.  Aftur fer líkaminn í katabólískt ástand.  Með því að borða 5-6 litlar máltíðir á dag komum við í veg fyrir blóðsykursfall og niðurbrot vöðva.
  • Borða of lítið af kolvetnum   Kolvetni eru megin orkugjafi líkamans og eini orkugjafi heilans.  Án kolvetna er vitsmunastarf ekki 100%.  Kolvetnissvelti eða of lítið af kolvetnum tæmir sykur úr vöðvunum og því verðum við orkulaus á æfingu.  Þegar líkaminn fær ekki næg kolvetni þá notar hann prótín sem orkugjafa í staðinn sem á að nýtast í að byggja upp vöðva.  Því verður lítil sem engin vöðvauppbygging þegar kolvetni vantar í mataræðið.  Kolvetni eiga að vera 40% af daglegri orkuneyslu.
  • Fylgja nýjasta diet-inu  Atkins, South Beach, Zone, greipsafakúr, Landspítalakúrinn og hvað þetta bull heitir allt saman.  Langbest er að fylgja heilsusamlegu mataræði, sem hægt er að fylgja til langframa.  Það fá allir leið á að borða sama matinn endalaust því ekkert annað er leyfilegt.  Ég gerði þau mistök þegar ég byrjaði á breyttum lífsstíl og borðaði yfir mig af túnfiski og vanillu skyr.is.  Ég kúgast í dag við lyktina af hvoru tveggja.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er allt eitthvað sem maður "veit" en samt kannski ekki í svo mörgum orðum  Segðu mér eitt... hvað er góð fita? Ólívuolía? Ég las t.d. í Líkami fyrir lífið að valhnetukjarnar innihéldi góða fitu. En geturu bent á eitthvað annað? Ég verð að viðurkenna að mér finnst 20% virka svolítið mikið  En ég veit að það er mikilvægt að hafa fitu með í fæðunni - hef samt á tilfinningunni að ég sé annað hvort að borða of mikið af vitlausri fitu eða of lítið af þeirri góðu. Svona sitt á hvað sem er örugglega ekki gott.

Óla Maja (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 00:13

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæl og blessuð,

Já þetta holla mataræði er mikill frumskógur.  Góða fitan er fjölómettuð og finnst t.d í feitum fiski s.s lax, silungur, makríll, síld, og í olíum s.s hörfræolíu, ólífuolíu (eins og þú veist ), hnetum, möndlum og fræjum ýmisskonar.  Vond fita er mettuð fita eins og í smjöri og feitum mjólkurvörum, er hörð við stofuhita (sbr. smjör). Góð fita er mjúk við stofuhita (sbr. ólífuolía).  Transfitusýrur eru verstar og þær eru í kexi, snakki og bakkelsi.  Ég veit að 20% hljómar voða mikið en fitan kemur vanalega af sjálfu sér, því það er fita í svo mörgum fæðutegundum, t.d færðu góðan skammt ef þú borðar lax í eina máltíð dagsins eða setur smá ólífuolíu út á salat, eða möndlur/hnetur (ekki saltaðar ) eða avókadó út í salatið.

Ég skrifa fljótlega pistil um þetta efni en vona að þetta hjálpi eitthvað þangað til.  Spyrðu mig endilega ef þú hefur frekari spurningar.

Ef þér finnst vanta upp á fituna í mataræðið geturðu prófað töflur eins og CLA, EFA, Omega-tvennu, eða bara gamla góða lýsið.

Ragnhildur Þórðardóttir, 23.5.2007 kl. 11:26

3 identicon

Hæ skvís ...

ég fór á fullt eftir þessari biblíu og svei mér þá ... á tímabili var eins og ég væri komin fimm mánuði á leið!! En ég var voða orkumikil samt og leið vel í kroppinum.

 Ætli maður blási svona út við að borða allt í einu svona oft yfir daginn og svona mikið grænmeti?

Síðan byrjuðu prófin og ég borða ennþá 5-6 sinnum á dag. Til dæmis áðan borðaði ég súkkulaði. Á eftir fæ ég mér örugglega ristað brauð...  Ekkert mál að fylla upp í þessar máltíðir.

ertu ekki stolt af mér?

Erla (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 13:38

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hey skvís.  Hvort ég er stolt af þér , alveg að rifna úr stolti.  Veit samt ekki með að borða súkkulaði sem eina máltíð  , mig minnir að það hafi ekki verið inni í planinu frá mér hhhmmm.....

Passaðu bara að borða lítið í hverri máltíð, þá áttu ekki að fá þessa óléttu tilfinningu.

Hafðu engar áhyggjur, það er bara eðlilegt að slaka aðeins á í hollustunni í prófum... þú nærð þér aftur á strik þegar þau eru búin.

Gangi þér rosa vel í prófunum!!

Ragnhildur Þórðardóttir, 24.5.2007 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband