Fólk er fífl

Nú er nóg komið....síðustu pistlar hafa bara verið eitthvað væl og Naglinn grenjar ekki. Eftir að hafa eytt helginni í vangaveltur um hvort ég sé of feit, of mjó, ekki nógu mössuð, of lítil, of stór eða hver hafi eiginlega verið ástæða þessarar ömurlegu athugasemdar frá þessum plebba hefur Naglinn ákveðið að halda áfram ótrauður í átt að settu markmiði.

Þökk sé yndislegum lesendum síðunnar sem hafa aldeilis stappað í mig stálinu og varpað ljósi á sannleikann sem er að fólk er fífl eins og Botnleðja benti svo réttilega á hér um árið.

Ég hafði aldrei hugsað mér að vinna þessa keppni, bara það eitt að fara í gegnum þennan undirbúning og labba upp á þetta svið og standa þar verður sigur fyrir mig og maður á alltaf að klára það sem maður byrjar á.

Fróðleikspistill er væntanlegur innan skamms.

Takk fyrir allt peppið elskurnar mínar. Þið eruð best!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sko þig! Ánægð með að heyra þetta. Fylgist spennt með

Mína (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 11:44

2 identicon

Var að lesa síðustu færslur og kommon, þetta hlýtur að hafa átt að vera fyndið komment hjá félaganum!!! Frekar mikið misheppnað. Allavega virtist þú fær í allan sjó síðast þegar ég sá þig, hef fulla trú á þér.

Og eitt að lokum, hvar er best að búa í Edinburgh??

Svana (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 13:48

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð Svana, ástarþakkir fyrir peppið og hrósið. Maðurinn er náttúrulega bara fáviti og er afgreiddur þannig hjá mér núna.

Af hverju viltu vita um Edinburgh? Ertu að fara að flytja þangað? Það eru svo margir staðir sem koma til greina, mis dýrir og mis vel staðsettir en það fer allt eftir því hvað þú ert að fara að gera. Til dæmis hvort þú viljir vera nálægt háskólanum eða nálægt bænum eða lengra í burtu þar sem er ódýrara.

Ertu ennþá á landinu?

Ragnhildur Þórðardóttir, 10.9.2007 kl. 13:54

4 identicon

Glæsilegt !!

Hrund (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 14:31

5 identicon

Jæja gott að heyra ;-) 

    Jamm er enn á skerinu en er að flytja þangað út.  Þar sem ég verð ekki á bíl vil ég helst vera í göngufæri við háskólann og miðbæinn. Er skólinn ekki eiginlega miðsvæðis? Annars ætla ég út í næstu viku að skoða íbúðir en það væri gott að fá smá hint.  Er aðallega búin að vera skoða í New town, Old town, Tollcross og Grasmarket.  Auðvitað væri rosa gott að hafa skólann, líkamsrækt og matvörubúð í 10 mínútna göngufæri, he he;-)

Svana (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 17:11

6 identicon

Flott hjá þér  En ekki hvað.. Naglinn lætur ekki deigann síga!

Bíð spennt eftir frekari fræðslu. Annars ertu svo óendanlegur viskubrunnur að ég er alltaf að fletta upp í gömlum færslum hjá þér og fræðast upp á nýtt - eða rifja eitthvað upp. Eftir því sem maður lærir meira.. þeim mun betur skilur maður seinna meir allan fróðleikinn sem frá þér rennur  

En þetta er gott af lofrullu í bili.  Gangi þér vel með allan undirbúninginn fyrir komandi stórviðburði.

Óla Maja (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 23:06

7 Smámynd: Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir

Þetta heitir á góðri íslensku ÖFUNDSÝKI þessum hálfvita sem greinilega kann ekki mannasiði hefur kannski þótt þetta fyndið.

Miðað við myndina af þér hérna á blogginu þarftu ekki að skammast þín fyrir neitt.

Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir, 10.9.2007 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 548852

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband