Tuna baby

Túnfisksalat Naglans:

1 dós túnfiskur í vatni

1 dós hreint skyr EÐA hálf dós hreint skyr blandað við hálfa dós af sýrðum rjóma EÐA 1 dós kotasæla. Sumum finnst of þurrt að nota bara skyr og geta því blandað sýrðum rjóma við en sumir vilja halda fitunni í lágmarki og nota því bara skyr. Allt saman smekksatriði og fer eftir óskum hvers og eins.

1 msk sinnep (mér finnst sætt sinnep best)

Laukur saxaður smátt

Gúrka eða ananas saxað smátt

Harðsoðið egg og rauðan fjarlægð. Skorið í eggjaskera fyrst á þverveginn og svo langsum svo út komi mjög smáir bitar

Stundum set ég 1 tsk Sweet relish út í.

Þetta salat má borða eitt og sér í kvöldmat eða í hádegismat en þá með kolvetnaskammti t.d ofan á gróft brauð eða hrökkbrauð eða með hýðishrísgrjónum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Búin að vera á flakki og hef ekkert kíkt á síðuna í nokkra daga. Frábært hvað brúðkaupið tókst vel. Þið eruð svo sæt saman á myndinni  Flottur kjóll!!

Mikið líst mér líka vel á þessar uppskriftir þínar  Borða svo mikið af túnfiski sjálf og þessi útgáfa verður sko prófuð á næstu dögum. Var líka að kaupa lax í dag og því tilvalið að smella í einn slíkan rétt. Nammi namm.. það verður bara gaman á næstunni. Þú mátt gjarnan koma með fleiri uppskriftir

Óla Maja (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 23:21

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæl mín kæra Óla Maja,

 Takk fyrir það.  Ég vildi hafa brúðkaupið mitt öðruvísi og að sjálfsögðu þurfti kjóllinn að passa inn í þá breytu .

Ég skal skella inn uppskriftum reglulega, það virðist vera voða vinsælt lesefni .

Ragnhildur Þórðardóttir, 24.9.2007 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 548854

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband