Stund sannleikans

Í gær var stund sannleikans runnin upp en allsherjarmæling var gerð í gær þar sem Naglinn var mældur hátt og lágt með klípu og málbandi.

Af niðurstöðum mælingarinnar að dæma eru blóð, sviti og tár í ræktinni og strangt mataræði að skila sér.  Vigtin stendur reyndar í stað, eins og vanalega, sem er reyndar bara gott því 1% af lýsi hefur lekið af skrokknum sem er miklu betra en að hafa það öfugt.  Nú er fitan að fara en vöðvarnir ennþá á sínum stað.  Svo var 1 cm farinn af maga (sem er mitt vandræðasvæði og virðist aldrei verða eins og ég vil), handleggir orðnir jafnir og 0,5 cm af lærum en þau hafa nota bene ekki haggast í 3 ár!!! 

Staða Naglans er þá þessi 8 vikum fyrir mót:

Þyngd: 62 kg

Fituprósenta: 13%

Svo Naglinn er bara sáttur enda verið stöðnuð alltof lengi og kominn tími á að skrokkurinn tæki við sér í öllum hamaganginum.

Krónísk þreyta og hausverkur hefur hrjáð Naglann undanfarna daga sem er í hæsta máta óeðlilegt því Naglinn er vanalega hraustur sem hross.  En þá fór mín að reikna og í ljós kom að síðan 27. ágúst hefur aðeins verið einn hvíldardagur frá æfingum.... semsagt bullandi ofþjálfun í gangi sem skýrir vonandi slenið.  Því ætla ég að taka þann heilaga dag sunnudag með trompi og sofa í hausinn á mér og í mesta lagi fara út í göngutúr.  Mæta svo eins og nýbökuð lumma á brettið á mánudagsmorgunn (sem er afmælisdagurinn minn) og massa svo restina af vikunni með 100% orku á æfingum.

Góða helgi gott fólk og munið að slökun og hvíld er hluti af heilbrigðum lífsstíl!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Viltu í guðs bænum ekki fara að ofkeyra þig í þessum pakka þínum 
En hvernig er það...nú hélt ég að cm ættu að aukast frekar en hitt ef þú ert að byggja upp svaka vöðvamassa

Ingunn Þ. (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 11:35

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ekki cm á maga, ekki vil ég vera með útblásinn kvið eins og kraftlyftingamaður.  Lærin eru að breyta um lögun, úr hlussum í helmassa.

Ragnhildur Þórðardóttir, 28.9.2007 kl. 13:09

3 identicon

Ég hlakka ekkert smá til að sjá þig á sviðinu, þú verður glæsileg!

Annars er ég með eina spurningu sem er að pirra mig svolítið... Er eitthvað að marka kaloríuteljarann á brennslutækjunum? T.d. ef maður er á skiðavél/orbitrek með góðan púls þá teljast þær eins og þeytivinda. En ef maður er á bretti á jafnháum púls, þá teljast þær muuuun minni, helmingi minni ábyggilega. Ef maður er á sama álagi, með jafnháan púls, skiptir þá einhverju máli á hvaða tæki maður er?

Dyggur lesandi! (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 14:05

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég mæli alltaf með að fólk kaupi sér púlsmæli því þeir eru eina nákvæma leiðin til að fylgjast með púlsinum og er ein besta græjan fyrir þjálfun sem þú fjárfestir í.  Tækin í ræktinni sýna ónákvæmar mælingar því þau vita yfirleitt ekki hæð, þyngd, kyn og aldur en allt hefur þetta áhrif á brennsluna.  Góður púlsmælir kostar c.a 10.000 kr og endist í góð 5-6 ár.  Ég mæli með Polar púlsmælunum, en ég skipti út mínum fyrir akkúrat ári síðan (fékk hann í afmælisgjöf í fyrra) sem ég hafði átt síðan á afmælinu mínu árið 2000, semsagt 6 ár. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 28.9.2007 kl. 14:25

5 identicon

Glæsilegt  Ég á nú svolítið langt í land með að komast með tærnar þar sem þú ert með hælana en þú ert nú samt fyrirmyndin mín  Enda kemst maður aldrei lengra en takmarkið sem maður setur sér svo það er um að gera að hafa það nógu metnaðarfullt til að maður leggi 150% á sig  Segðu mér.. hversu há ertu? Bara að spá í miðað við kílóatöluna

Óla Maja (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 20:50

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæl og bless mín kæra Óla Maja,

Þakka þér fyrir falleg orð, maður roðnar bara við svona hrós. Það er ómetanlegt að fá svona stuðning eins og frá þér. Sumir gagnrýna mann bara og skilja ekki af hverju maður er að leggja þetta á sig, en þú veist nákvæmlega af hverju maður púlar og borðar vel og rétt. Þú skalt nú samt ekki stefna á að fara of lágt í fitu% nema þú ætlir að keppa, vertu frekar hraust og sterk og ekkert að spá of mikið í tölurnar.

Ég er algjör stúfur, bara 1,66 m á hæð. Það er þungt í mér pundið skal ég segja þér.

Ragnhildur Þórðardóttir, 29.9.2007 kl. 18:49

7 identicon

Þú átt hvert orð skilið að mínu mati  Já ég skil sko alveg af hverju þú stundar þetta líferni sem þú gerir. Ég ætla ekki einu sinni að nota orðin "leggur á þig" því ég er nokkuð viss um að þú lítur á þetta eins og ég; þetta er val, eitthvað sem maður kýs og manni líður betur en ekki eitthvað sem maður pínir sig til að gera. Það er það besta  

Ég er slatta hærri en þú en líka alveg slatta þyngri  En ég var mun þyngri svo ég er ekkert ósátt í dag - en stefni á að verða mun sáttari

Gangi þér áfram svona vel og ég held áfram að fylgjast með og njóta í leiðinni fróðleiksins frá þér

Óla Maja (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 549128

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband