Bætingar.... trallalalala....

Það var greinilega nauðsynlegt að taka hvíldardag frá æfingum því Naglinn kom tvíefldur til baka á æfingu í gær.  Þvílíkar bætingar!!! Þyngdi nánast í öllum æfingum, bæði fyrir bak og brjóst því ég var að repsa hátt í 12x með þyngdir sem ég strögglaði með herkjum upp í 8x í síðustu viku. 

Fannst ég líka vera öll mun stærri og vöðvarnir fylltari en það er líklega afleiðing af svindlinu á laugardaginn Blush.  Var reyndar mjög stillt , bara ein svindlmáltíð og pínu nammi.  Hefði viljað borða meira nammi en fékk í magann eftir nokkra mola Sick.  Svona er maður orðinn steríll Wink.  Svo var það aftur í stífa matarplanið á sunnudaginn.... enda engin mánudagsbumba jibbííí.....

Í dag eru axlir, bibbinn og tribbinn súpersett a la Biblían.  Tek reyndar fjórsett á axlirnar og það hefur verið að gefast vel, sýnist einhverjir millimetrar hafa bæst við þær.  Spurning með að setja þá undir smásjá og skoða betur Woundering.

 Góðar stundir!!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til lukku með árangurinn.

Elsa (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 13:43

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir það kærlega .

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.10.2007 kl. 14:13

3 identicon

Til hamingju með bætingarnar  Aldeilis glæsilegt !!

Kannast líka við þetta með nammið. Ég hef ekki fengið mér nammi á "frjálsum dögum" nema í voðalega litlu magni en þessa helgina var einhver sukkstemning á heimilinu og ég settist niður fyrir framan sjónvarpið með kók í glasi og súkkulaði + lakkrís fyrir framan mig og ætlaði aldeilis að sukka "the old style" en mikið ofboðslega fannst mér þetta óspennandi þegar til kom  Borðaði bara brot af þessu og leið skelfilega illa í maganum á eftir. Mikið er nú gaman að vera orðinn svona afeitraður. Ég ætla ekkert í þennan pakka aftur

Óla Maja (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 548854

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband