Kjaftstopp

Naglinn er kjaftstopp.

Var í ræktinni áðan sem er ekki í frásögur færandi nema að þar var miðaldra kona hjá einkaþjálfara.

Um var að ræða ósköp venjulega konu í meðalholdum, myndi giska á að hún hafi verið milli fimmtugs og sextugs.

Var ekkert að velta henni neitt fyrir mér fyrr en ég sé mína konu standa í hnébeygjubúrinu, græjuð belti, vafningum og með 100 kg á stönginni takk fyrir takk, og svo beygði hún bara eins og vindurinn.

Já ég skal segja ykkur það.... þessi kona er alvöru Nagli.

Það er alltaf gaman að sjá fólk taka almennilega á því óháð aldri og kyni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe það fæðist óneitanlega mynd í hausnum á mér af hinni einu sönnu trukkalessu.. en eins og þú segir; meðalkona í meðalholdum. Venjuleg kona og engin trukkalessa. Tek ofan fyrir þessari frú.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.12.2007 kl. 13:07

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Vá gaman að þessu.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 29.12.2007 kl. 14:47

3 Smámynd: Kobbi Trukkakall.....

Alvöru kona þarna á ferð.... 

Kobbi Trukkakall....., 30.12.2007 kl. 10:17

4 identicon

Nokkuð viss um að þú frænka góð værir ekki lengi í þriggja stafa töluna ef þú legðir þig af fullum krafti í beygjurnar

Fannar Karvel (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 548854

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband