Franskbrauð með sykri

Áráttuhugsanir herja á Naglann þessa dagana. 

Um síðustu helgi var Naglinn alveg "hreinn" í mataræðinu og eina svindlið var eitt glas af Sprite Zero. 

Á morgun er Naglinn nefnilega að fara á árshátíð, og þessi aðgerð var liður í örvæntingu Naglans að komast í kjólkvikindið.  Það þurfti tvær afgreiðslustúlkur í búðinni til að renna honum upp yfir brjóstkassann, og ekki er hægt að kenna tepokunum á bringunni um þessi þrengsli.  Til þess að komast hjá því að leigja byggingakrana og ræsa út björgunarsveitina Ársæl til að eiga séns í kjólskömmina var því best að halda sig við stíft matarplanið. 

En slíkar dramatískar aðgerðir fara ekki vel í græðgisofátsröskun Naglans.  Alla vikuna hefur Naglinn ekki verið hæfur til neinna starfa sökum stöðugra hugsana um súkkulaði, lakkrís, ís, popp, kex, rúgbrauð með smjöri. 

Semsagt ef það inniheldur nóg af transfitu, mettaðri fitu, sykri og öðrum heilsuspillandi næringarefnum þá langar mig í það og MIKIÐ af því. 

Sjálfsréttlæting og -blekking tröllríður sjúkum huga um að teygja sukkið út yfir þessa einu leyfilegu máltíð, og sukka bara á sunnudaginn líka Blush, það sé jú í lagi svona einu sinni, vöðvarnir hafa gott af auka næringu, ég verði bara sterkari á æfingum fyrir vikið o.s.frv, o.s.frv. 

Já það er ekkert grín að vera svona bilaður í hausnum að ein "hrein" helgi geri mann að kandídat í síðerma treyjuna Frown.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Audrey

Ef þetta er röskun þá þjáist ég af því nákvæmlega sama  Mmmm rúgbrauð með smjöri (miklu smjöri :))

Audrey, 15.2.2008 kl. 14:00

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Nákvæmlega, HP rúgbrauð með smjöri , hvað er málið með það??? það er ekkert smá gott maður.

Ragnhildur Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 14:56

3 identicon

En að kaupa bara kjól í næstu stærð fyrir ofan...nei bara svona hugleiðing haha

Ingunn Þ. (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 15:53

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Heilafita er gott orð en óþolandi ástand.

Ingunn! heldurðu að ég hafi ekki reynt næstu stærð fyrir ofan??? Hann var of stór og hékk eins og svartur ruslapoki á bringunni því það vantaði kvenleikann til að lyfta honum upp svo það var ekki um annað að ræða en að fara í næstu stærð fyrir neðan sem passaði fínt eftir átökin að renna honum upp.

Ragnhildur Þórðardóttir, 16.2.2008 kl. 10:18

5 identicon

sjitt. Má ekki borða rúgbrauð?? Ég bý í Danmörku sko!!

Erla (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 20:39

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Erla! Rúgbrauðið í DK er í lagi, það er meira eins og Fittý brauðið hér heima og ekki eins sykrað og t.d HP gúmmulaðið. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 18.2.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 548850

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband