Blessað gjálífið

Naglinn höndlar afar illa þegar grunnþörfum líkamans er ekki sinnt sem skyldi. Til dæmis þegar Naglinn þarf að pissa verður að sinna þeirri þörf med det samme, Naglinn á afar erfitt með að halda lengi í sér. Eins er svengd ástand sem fer virkilega í skapið á Naglanum, og friður sé með þeim sem verður á vegi hans í því ástandi. Svefn er Naglanum líklega einna mikilvægastur í þarfapýramídanum og þarf sinn átta tíma svefn til að fúnkera rétt og geta sinnt öllum skyldum dagsins. Minni svefn bitnar á æfingunum og það er fátt sem pirrar Naglann meir en að ganga illa á æfingu. Þegar risið er árla úr rekkju þarf að ganga árla kvölds til náða, og Naglinn er yfirleitt kominn undir værðarvoðina um kl 21.30 á kvöldin. Það setur því alla starfsemi og regluverk líkamans úr skorðum að stunda gjálífið fram undir morgun líkt og Naglinn gerði á föstudagskvöldið. Eftir að hafa hrist skankana duglega á Sálarballi, var haldið í sollinn þar sem öldurhúsin voru stunduð og mjöðurinn teygaður langt fram á nótt. Daginn eftir slíkan ólifnað er Naglinn alltaf haldinn óseðjandi hungri, og löngun í hafragraut og eggjahvítur er víðsfjarri. Matur sem allajafna er ekki á planinu rataði því á diskinn: Cheerios með sojamjólk, flatkökur, rúgbrauð með smjöri, brauð með osti og sultu, páskaegg (já ég veit að þeir eru ekki fyrr en um næstu helgi), en við ætlum ekki að ræða magnið af fóðri sem fór inn í munn og ofan í maga á laugardaginn. Bumban segir sína sögu. Svefnleysi, súkkulaðiát og timburmenn eru ekki vænleg blanda, og Naglinn er vel slenaður eftir allan ófögnuðinn. Er komin úr allri æfingu, enda ekki djammað síðan á gamlárskvöld og því tekur þetta virkilega á skrokkinn. En hvað gerir maður þegar maður dettur af baki? Jú maður klifrar aftur upp á hrossið. Var því komin aftur á beinu brautina í dag, sunnudag, og drattaðist með spikið í brennslu í morgun og er á leiðinni að massa axlirnar núna. Mataræðið spikk og span eins og á að vera. Það er nauðsynlegt að lyfta sér á kreik öðru hvoru, annars myndi maður missa vitið. En maður kann samt betur að meta rólegu helgarnar þegar timburmennirnir hamra fast á höfuðið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Alveg sammála þér, nenni orðið varla að djamma. Bitnar svo rækilega á mér dagana á eftir. En auðvitað lætur maður sig hafa það öðru hverju, annars væri maður nú bara dull og leiðinlegur.  En farin að sofa 21:30 !!!!!! þá er kvöldið að hefjast hjá mér   Reyni oft að fara snemma að sofa, en ligg þá bara andvaka En líklega ferðu í ræktina eldsnemma á morgnana svo annað gengur ekki.

M, 17.3.2008 kl. 11:39

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég er ekki að grínast, ég er ennþá þreytt eftir djammið á föstudaginn.

Já ég vakna kl. 5:30 á morgnana svo það er ekki annað í boði en að fara últra snemma að sofa.  Svo er ég líka yfirleitt orðin úrvinda um þetta leyti kvölds eftir að hafa vaknað svona snemma.  Hef alltaf verið mikill morgunhani, en enginn nátthrafn....nema í þau örfáu skipti sem næturlífið er stundað .

Ragnhildur Þórðardóttir, 17.3.2008 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 23
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 548877

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband