Naglinn deddar rör

Naglinn og hösbandið fóru á sýninguna Verk og vit í Laugardalshöllinni um helgina. Sem er ekki í frásögur færandi nema..... að þar var Loftorka með bás og þar stóð aðalfyrirsætan þeirra, Magnús Ver. Hann var að kynna getraunaleik sem gekk út á að giska á þyngd á steypuröri sem stillt var upp á básnum. Til þess að fá eitthvað viðmið um þyngdina tók Naglinn sig til og deddaði rörið. Magnús Ver hefur greinilega ekki búist við því að lufsan reyndi að lyfta steinsteypuröri í háhæluðum skóm og kjól, því hann sagði: "Ja hérna, djö&%#. ertu sterk. Það hefur engin kona lyft þessu röri." Eins og þið getið ímyndað ykkur þótti Naglanum ekki leiðinlegt að heyra þetta. Nú verður spennandi að vita hvað rörið er þungt í raun og veru en Naglinn giskaði á 65 kg.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert náttlega bara sú allra svalasta... ;o)

Dyggur lesandi... (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 19:07

2 identicon

djöfull ertu nett...........

hrannar (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: M

Hefði viljað sjá þig þarna í action á háhælunum

M, 20.4.2008 kl. 23:13

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk takk .  Það hefur örugglega verið frekar fyndið að sjá kellinguna hysja upp um sig kjólinn og massa rörið .   

Ragnhildur Þórðardóttir, 21.4.2008 kl. 08:47

5 identicon

HAHAHA þú ert skemmtileg og það sem þú skrifar er góður innblástur í það sem ég er sjálf að gera. Takk fyrir góða lesningu :)

Elín (ókunnug) (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 09:21

6 identicon

Snillingur! skellir þér í powerið næst ;)

Nanna (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 14:06

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Það kitlar.... get ekki neitað því .  Er aðeins búin að vera að skoða mót í sumar sem gætu komið til greina að keppa í.

Eruð þið flutt?  Frétti að PapaNagl hefði hitt ykkur á ganginum um helgina og þið á kafi í flutningum.

Ragnhildur Þórðardóttir, 21.4.2008 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 548860

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband