Koffín

 

Naglinn veit um fjölmarga sem segjast ekki geta vaknað almennilega nema að fá sér kaffibolla.  Naglinn er blessunarlega laus við þessa fíkn, og hefur aldrei komið þessum vinsælasta drykk jarðar ofan í sig.  En það er skiljanleg ástæða fyrir því að fólk sækir í svarta sullið til að hrista af sér svefndrungann.

 

 Koffín er vinsælasta lyf í heimi.  Koffín hefur mikil örvandi áhrif á miðtaugakerfið en það er félagslega samþykkt örvandi efni sem er framleitt og markaðssett án lyfseðils.   

 

Koffín hefur ýmsa góða kosti, sérstaklega fyrir fólk sem æfir. 

 

Koffín er hraðvirkt efni sem veitir líkamanum orku fyrir átökin.  Margir drekka einn til tvo bolla af kaffi fyrir æfingu.  Rannsóknir hafa sýnt að u.þ.b 150 g af koffíni eins og er í c.a einum bolla af kaffi getur dregið úr þreytueinkennum og aukið frammistöðu á æfingu.  Eins hefur verið sýnt fram á að fólk getur æft þriðjungi lengur eftir neyslu á koffíni, úthaldið verður meira og harðsperrur koma síður fram. 

Koffín hefur líka áhrif á ATP kerfið, en ATP er, eins og margir muna úr fyrri pistlum Naglans, sú orkueining sem líkaminn notar til að framleiða kraftinn sem þarf í lyftingar og snarpa spretti.

coffee%20poster

 

Koffíni svipar til efedríns í virkni þess á miðtaugakerfið en blanda af þessum tveimur efnum var mjög vinsæl í fitubrennslutöflum áður en efedrín var bannað.  Koffín eykur árvekni og fókusinn verður skýrari, adrenalín flæði verður meira og hjartsláttur eykst.  Það er aðallega í gegnum þessa virkni sem koffín hefur áhrif á frammistöðu á æfingu.  Adrenalínflæðið keyrir upp orkustig líkamans og veitir andlegan fókus sem þarf í átökin.     

 

Hins vegar er meira ekki betra þegar kemur að koffíni.  Sýnt hefur verið fram á öfug áhrif þegar magn koffíns er orðið of mikið (> 500mg).  Þá versnar frammistaðan.  Það er líklega vegna þess að betri frammistaða er vegna aukinnar árvekni, en það þarf að vera ákjósanlegur skammtur af árvekni.  Hins vegar þegar við erum orðin of örvuð getur það hamlað frammistöðu okkar á æfingu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fínn pistill eins og alltaf.

Ein spurning, þú segir: "Koffín hefur líka áhrif á ATP kerfið, en ATP er, eins og margir muna úr fyrri pistlum Naglans, sú orkueining sem líkaminn notar til að framleiða kraftinn sem þarf í lyftingar og snarpa spretti."

Bara svo ég nái þessu alveg, áttu ekki örugglega við ATP-CrP orkukerfið (sem notar ATP og kreatín fosfat við þungar lyftingar), en ekki ATP sameindina?  Veistu hvernig koffín hefur áhrif á þetta kerfi?  Bara forvitin :)

 Annað sem ég var að pæla í og var í eldri færslu, um ávaxtasykur og ávexti eftir æfingar.  Það væri áhugavert að vita hvernig kolvetnin í ávöxtum, sérstaklega banana (því ég borða mikið af banana fyrir og eftir æfingar) skiptast í frúktósa og glúkósa.  Veit að banani inniheldur sterkju (sem brotnar niður í glúkósa við þroskun) en væri gaman að vita hlutfallið :)

Soffía (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 12:11

2 identicon

Best ég svari sjálfri mér varðandi kolvetnin... grúskaði og fann síðu á netinu þar sem kolvetnainnihald matvæla er greint niður:

 http://www.nutritiondata.com/facts/fruits-and-fruit-juices/1846/2

Þarna kemur fram að í einum skammti (225g) af bönunum eru um 45 g af kolvetnum (dró frá trefjar enda ekki nýtanleg kolvetni), þar af 12 g af sterkju, ca 11 g frúktósa, 11 g af glúkósa og 5 g af súkrósa.  Sterkjan er glúkósaeiningar og súkrósi er frúktósi og glúkósi.  Af þessari síðu að dæma eru bananar eftir sem áður heppilegir sem kolvetnagjafi eftir æfingar (hjúkk :) 

Til samanburðar athugaði ég epli.  Þar er frúktósahlutfallið miklu hærra en í banana; í skammtinum (125 g) eru 7,4 g af frúktósa vs 3 g af glúkósa og 2,6 g af súkrósa, og 0,1 g af sterkju.

Óþolandi samt þessar bandarísku merkingar þar sem einn skammtur er mismunandi (sbr 225 g af banana og 125 g af eplum).  Ekki almennilega hægt að bera þetta saman nema umreikna. Og hver nennir því endalaust :)

Soffía (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 22:50

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Glúkósi úr ávöxtum fer fyrst og fremst til lifrar til að fylla á glýkógenið þar áður en það fer til vöðvanna, en glúkósi úr öðrum kolvetnagjöfum, t.d hrísgrjónum fer beint í vöðvana til að fylla á glýkógenbirgðirnar þar.  Þess vegna eru ávextir ekki eins heppilegir eftir æfingu og t.d hrískökur, hvítar beyglur og önnur einföld kolvetni.  Epli eða banani fyrir æfingu eru hins vegar frábær kostur fyrir skjóta orku í átökin.  

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.6.2008 kl. 09:23

4 identicon

Ragnhildur nennir að gera pistill um ávexti bara almennt hverjir eru mega hollir og hverjir eru ekki eins hollir ekki bara eftir æfingar bara svona almennt séð.

Elsa (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 09:35

5 identicon

Mér finnst kaffi nú alveg hrikalega ofmetið í þessum heimi, hef átt miklu auðveldara að vakna síðan að ég hætti að drekka kaffi, ég tala nú ekki um ef að maður gleipir svosem eitt epli í staðinn...

En annars takk fyrir fróðlegan og góðan pistil.

Palli (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 14:53

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Elsa! Já góð hugmynd. Skal henda einum saman

Palli! Ég hef aldrei drukkið kaffi svo ég skil ekki alveg þetta "hype" í kringum kaffi. Ég á líka alveg sérstaklega auðvelt með að vakna á morgnana, allt saman spurning um að fara að sofa á réttum tíma.

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.6.2008 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 86
  • Frá upphafi: 549131

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband