Mál og vog

Það er ekki bara góð regla að mæla og vigta matinn sinn, það er nauðsynlegt þegar markmiðið er að losa sig við aukakílóin.  Alltof margir slumpa á skammtastærðina og neyta því fleiri hitaeininga en þeir þurfa á hverjum degi.  Svo skilja þeir hinir sömu ekkert í því af hverju kílóin sitja sem fastast og byrja að trúa kjaftæðinu um að þeir séu bara óheppnir með gen.

Þetta myndband er góð áminning til okkar allra... líka til okkar sem mælum og vigtum matinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er svo hjartanlega sammála ;)  Ég set allt upp í reikniforrit og vigta svo á hverjum morgni máltíðir dagsins!  Skiptir lykilmáli!!!

Nanna (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 10:02

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Það skiptir nefnilega öllu máli að vigta matinn sinn.  Maður sér þarna svart á hvítu hvað rétt rúmlega eða slump getur safnast saman þegar öllu er á botninn hvolft.

Ragnhildur Þórðardóttir, 23.6.2008 kl. 10:28

3 identicon

Já þetta er nauðsynlegt til að byrja með allavegana en hjá mér er nú helsta vandamálið að vita hvað ég á að vera að borða mikið. Ég geri mér litla grein fyrir því hvað ég er að brenna á hverjum degi, hvað t.d. brenni ég miklu við það að hjóla í vinnuna? .. hef ekki hugmynd

Snjólaug (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 11:07

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Notaðu púlsmæli, hann sýnir þér nákvæmlega hvað þú ert að brenna mörgum hitaeiningum miðað við hæð þína og þyngd. Bæði við að hjóla í vinnuna, út í göngutúr og á æfingu.  Algjört þarfaþing að mínu mati .

Ragnhildur Þórðardóttir, 23.6.2008 kl. 11:11

5 identicon

Góð síða hjá þér Ragga, fullt af fróðleik! Ég ætla t.d. beint út í búð að kaupa almennilega eldhúsvog. En segðu mér, hvar kaupir maður púlsmæli sem sýnir brennsluna?

Kristín Helga (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 13:01

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæl Kristín Helga, takk fyrir það kærlega .  Ég er persónulega hrifnust af Polar púlsmælunum.  Þeir fást í Hreysti, Útilíf og Intersport, en mínir hafa verið keyptir hjá P. Ólafsson í Hafnarfirði sem flytja þá inn. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 23.6.2008 kl. 13:19

7 identicon

Hehehe, þetta myndband er algjör snilld. Rakst einmitt á það fyrir nokkrum mánuðum. Það er sérstaklega mikið möst að vigta alla fitu, t.d. hnetusmjörið eða möndlurnar því það safnast heldur betur saman ef maður borðar of mikið í einu.

Btw þá prófaði ég delite sjeik m hrískökum út í um daginn. Sæll! Vá hvað það er gott. Besta post-wo máltíð sem ég hef fengið. 

ingunn (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 13:42

8 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég er að segja þér það kelling, þetta er eins og bragðarefur, algjör suddi.  Tala nú ekki um að bæta bönunum og jarðarberjum út í líka á hátíðis- og tyllidögum.

Ragnhildur Þórðardóttir, 23.6.2008 kl. 13:48

9 Smámynd: Audrey

Ég fæ reyndar pínu leið á hrískökunum útí, finnst rosa gott að setja bara hafra.

En með að vigta.... þetta á ég eftir. Mæli mitt í skeiðum og lúkum ;-)

Audrey, 23.6.2008 kl. 23:22

10 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Færðu þér hafra eftir æfingu?  Það eru hæglosandi kolvetni, og ýta prótíninu ekki jafn hratt inn í vöðvana til að hefja endurnæringu.

Það er ótrúlegt hvað það borgar sig að vigta matinn nákvæmlega, sérstaklega þegar markmiðið er að losna við yfirvigtina .

Ragnhildur Þórðardóttir, 24.6.2008 kl. 08:54

11 Smámynd: Mama G

Jæja, þannig að ástæðan fyrir því að "þessi síðustu 5" sitja alltaf sem fastast eru bara þessar nokkrar auka kcal hér og þar allan daginn? - figures... Úff, er samt að mygla yfir tilhugsuninni um að fara að mæla allt ofan í mig, hvað með í vinnunni!? á maður að vera með vogina í mötuneytinu og teppa röðina í korter til að vigta sér hádegismat?

Oh, nenni sko ekki að byrja á þessu fyrr en eftir sumarfríið

Mama G, 24.6.2008 kl. 09:46

12 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Mama G.  Nei það er algjör óþarfi að teppa alla röðina.  Miklu betra að koma bara með nesti með sér, þá veistu nákvæmlega hvað er í matnum og ert búin að vigta heima.  Það er líka miklu ódýrara

Ragnhildur Þórðardóttir, 24.6.2008 kl. 10:00

13 identicon

Ha ha, vá hvað ég er sekur um að mæla vitlaust... sérstaklega allt duft draslið.  Ég hef ágæta hugmynd um að ég sé að fá 40-60g af próteini í hverjum shake, og 5-15g af arginine og glutamine þegar ég nota próteinskeiðina í það.

 Ég þarf að athuga þetta eitthvað 

Fjölnir (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 22:14

14 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hehehehe .... ég er nefnilega líka sek þegar kemur að prótínduftinu.  Fæ mér alltaf vel rúmlega skeið.  Maður áttar sig ekki á hvað þetta safnast saman fyrr en það er sett niður svona svart á hvítu.

Ragnhildur Þórðardóttir, 25.6.2008 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 75
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband