Hraustar mjaðmir

Naglinn rakst á nokkuð góða grein um hraustar mjaðmir, en það er atriði sem margir leiða ekki oft hugann að en getur skapað mörg vandamál séu þær ekki í lagi.

Mjaðmirnar eru mikilvægasta svæðið í líkamanum fyrir þá “aktífu”
Ef þú ert með slæmt bak, aum hné, verki í lærum eða aðra verki, þá er mjög líklegt að einhver þessara vandamála, ef ekki öll eru vegna slæmra mjaðma.

Það eru þrjú megin vandamál í mjöðmum sem hrjáir fólk: stífir mjaðma “flexorar”, stífir mjaðma “rotators” og sofandi rass. Það eru til nokkrar aðferðir til sjálfsmats á þessum vandamálum:

Stífir mjaðma “flexorar”: Þetta eru vöðvar og liðamót framan á mjöðmunum.

Hvernig veistu hvort þú sért með stífa mjaðma “flexora”?
Liggðu á bakinu, dragðu annað hné að bringu á meðan hinn fóturinn er flatur á gólfinu. Ef flati fóturinn poppar upp þegar bogna hnéð nálgast bringu ertu með stífa “flexora”. Prófaðu báða fætur.

Stífir mjaðma “rotators” :
Tight hip rotators – Rotators eru djúpt í mjöðmunum. Þessir vöðvar eru mjög mikilvægir fyrir góða heilsu og frammistöðu.

Sittu í stól með beint bak, krossaðu hægri fót yfir vinstra hné þannig að hægri utanfótur er á vinstra hné/læri. Ef hægra hné skýst upp í loft í stað þess að liggja samhliða gólfinu (eða nálægt því) þá ertu líklega með stífa “rotators”. Prófaðu báðar hliðar.

Sofandi rass:– Þetta þýðir að rassvöðvar eru ekki að vinna eins og þeir ættu að gera og hamstring (aftan læri) er að vinna yfirvinnu. Flestir sem eru í kyrrsetuvinnu glíma við þetta vandamál. Þetta leiðir til stífni í hamstring, mjóbaksverkja, mjaðmaverkja og ýmissa annarra vandamála, þar á meðal lágmarks styrk á æfingu.
Ein leið til að ganga úr skugga um hvort þú sért með sofandi rass er að liggja á bakinu með hné í 90 °. Með bakið flatt á gólfinu þrýstu hælum í gólf og lyftu mjöðmum upp. Endurtaktu 20 sinnum. Ef þú finnur meiri bruna og/eða stífni í hamstring heldur en í rassvöðvum þá er rassinn ekki að vinna eins og hann ætti að gera. Jafnvel ef þú finnur meira í rassvöðvum eru góðar líkur á að þú þurfir að gera eitthvað í málunum, við þurfum þess víst flest.

Prófaðu þessar þrjár aðferðir til að finna út hvort þú hafir augljós vandamál. Jafnvel þó þér finnist mjaðmirnar vera “í lagi” er samt líklegt að þú þurfir að vinna til að halda þeim hraustum.

Í næsta pistli verður fjallað um aðferðir til að laga vandamálið, og/eða fyrirbyggja þau.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er svo gamann að lesa þessa pistla frá þér.  Haldu þessu áfram

sas (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 07:34

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Æi vá takk fyrir falleg orð .  Svona hrós tvíeflir mig alveg í þessum skrifum mínum.  Takk fyrir að lesa.

Ragnhildur Þórðardóttir, 25.7.2008 kl. 08:30

3 identicon

Sæl Ragga, ég segi það sama að ég hef rosalega gaman af því að lesa pistlana frá þér. Þeir eru mjög fræðandi og fær mann stundum til að hugsa.

Ég er nú ný á merinni í líkamsræktinni og hef náð af mér 21 kg og síðan í sept 2007.  Ég fer núna 5 -6 x í viku og hef aldrei liðið betur. 

Ég hef verið áskrifandi af kortum hér og þar í gegnum tíðina en verið ein af þeim sem hefur verið að dútla þetta bara og engan árangur séð. En minn tími kom og ég er enn að basla við aukakg. 15 Kg til stefnu og þá  verð ég rosa ánægð.

 Bestu þakkir fyrir þína fróðleiksmola, virkilega gaman að lesa þá og skoða síðuna þína.

María Kr

María (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 09:10

4 Smámynd: M

Verd ad lesa thennan pistil aftur thegar heim kem, get ekki hugsad i hitanum her fra Spáni. En midad vid mínar mjadmir tha er eg hraedd um mjadmakulur eins og kellur fá stundum  

En veistu midad vid allt drollid og sólbodin her tha tek ég ´thatt í sundleikfiminni a hótelinu, alveg snilld

Sólarkvedja til thin

M, 26.7.2008 kl. 16:50

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

María!  Til hamingju með þennan frábæra árangur .  Þvílíkur dugnaður í þér kona.  Takk fyrir að kíkja í heimsókn á síðuna.

 M! Glæsilegt hjá þér að halda hreyfingunni við í fríinu.  Engin ástæða til að liggja bara með tærnar upp í loft.  Maður getur líka leyft sér meira þegar hreyfingin er til staðar    

Ragnhildur Þórðardóttir, 28.7.2008 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 84
  • Frá upphafi: 549120

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 80
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband