RannsóknarNagli

Naglinn bauð sig fram sem þátttakandi í rannsókn hjá sjúkraþjálfunarskor við Háskóla Íslands, þar sem verið er að athuga hvernig hreyfiferlar og vöðvavirkni í neðri útlimum breytist með tilkomu þreytu hjá heilbrigðum einstaklingum við hlaup.  Semsagt hvaða vöðvar í fótunum þreytast fyrst við hlaup, og hvernig bregðast hinir vöðvarnir við þegar það gerist.  Fara þeir að vinna meira eða öðruvísi? 
Naglanum finnst þetta afar athyglisverð rannsókn, og hlakkar til að heyra niðurstöðurnar. 

Naglinn mætti í fyrra mælinguna af tveimur í gær.  Þá hljóp Naglinn á stigvaxandi hraða á hlaupabretti þangað til ég treysti mér ekki lengur að halda hraðanum.  Semsagt að uppgjöf. 
Í seinni mælingunni á Naglinn að hlaupa í 20-30 mínútur á jöfnum hraða sem ákvarðaður verður út frá niðurstöðu fyrri mælingarinnar.  Þegar Naglinn metur álag 19-19,5 á Borg skala á að hætta að hlaupa.

Þar sem Naglinn verður allur í rafskautum og elektróðum á fótunum þá var beðið um að mæta í stuttbuxum. 
Naglinn gróf upp eina slíka spjör lengst innan úr skápnum, sem voru keyptar þegar Naglinn var töluvert léttari og minni um sig en nú.  Sem betur fer voru engir speglar á svæðinu, enda brækurnar ósiðlega stuttar og ekki að gera vextinum neinn greiða.  Vægast sagt óþægilegar aukaverkanir fylgdu því líka að vera í brókum sem ná upp í görn, en lærin nudduðust svona skemmtilega saman og nú er Naglinn með svöðusár innan á lærunum.  Naglinn labbar því eins og með gulrót upp í ....  

Spurning með að redda sér nýrri brók fyrir næsta hlaup og þá einhverjar sem ná niður á mið læri takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

M, 20.8.2008 kl. 10:29

2 Smámynd: Mama G

Já, maður kannast við að hafa fundið svona what-was-I-thinking-!?-spjarir í skápnum hjá sér annað slagið  Ég bíð líka spennt eftir niðurstöðum. Koma þær fyrir helgi??

Mama G, 20.8.2008 kl. 10:51

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Niðurstöðurnar koma örugglega ekki í bráð, enda eiga miklu fleiri eftir að taka þátt, svo þarf að vinna úr gögnunum og skrifa skýrslu. Þessar akademísku rannsóknir taka yfirleitt einhverja mánuði að birta niðurstöður.

En ég bíð spennt. Seinni mælingin mín er í næstu viku.

Ragnhildur Þórðardóttir, 20.8.2008 kl. 11:40

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Varstu samt ekki bara sexý? nei maður er víst aldrei flottur ef maður þarf að passa sig eitthvað, en flott hjá þér að taka þátt.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.8.2008 kl. 21:48

5 identicon

Ragga gætirðu aðeins  aðstoðað, hvaða vöðvar á maður að æfa samann er að reyna að stíla inn á efri hlutan og lyfta 4 sinnum í vikuþ? 

sas (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 07:49

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Milla!  Já það er nauðsynlegt að mínu mati að leggja sitt af mörkum í þágu vísindanna .  Svo var þetta bara skemmtilegt fyrir utan læranuddið .

SAS! Það eru svo endalausir möguleikar á samsetningu lyftingaprógramms. 
Ef þú ætlar að lyfta 4x í viku þá mæli ég með annað hvort:
1) efri-neðri- hvíld eða brennsla-efri-neðri-hvíld eða brennsla-hvíld

2) brjóst+þríhöfða- bak+tvíhöfða- hvíld eða brennsla- fætur,-axlir+hendur,- hvíld eða brennsla-hvíld

Gangi þér vel!

Ragnhildur Þórðardóttir, 21.8.2008 kl. 08:38

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er líka hlynnt því, var sjálf að taka þátt í heilmikilli rannsókn á vegu
Íslenskra erfðagreiningar og hjartalækna, minn hjartasjúkdómur passaði akkúrat við þessa rannsókn og vona ég að þeir finni eitthvað með tímanum út úr þessu. hef einnig tekið þátt í giktarrannsókn.
Knús í daginn
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.8.2008 kl. 10:57

8 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Frábært framtak hjá þér Milla .  Ég vann við vísindarannsóknir á LSH og hef sjálf gert rannsóknir í náminu og þekki því mikilvægi þess að fá þátttakendur.  Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hve margir eru tilbúnir til að fórna tíma sínum og taka þátt í rannsóknum sem snerta ekki endilega þeirra eigin hagsmuni.

Ragnhildur Þórðardóttir, 21.8.2008 kl. 11:08

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mér hefur ætíð fundist það bara skilda mín ef ég get gert eitthvað í þágu vísindanna, sem hjálpa til við að finna til dæmis lyf við hinum ýmsu sjúkdómum.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.8.2008 kl. 11:12

10 identicon

Úff, það þyrfti 5 karlmenn til að reyna að fá mig til að fara í stuttbuxur....  Don´t like them at all!!!

Nanna (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 11:32

11 identicon

takk takk

sas (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband