Til hamingju Ísland

Jahérna hér!!!
Ekki grunaði Naglann að forseti vor væri einn lesenda síðunnar, en það hefur nú komið á daginn. 
Hann hefur gripið hugmynd Naglans um fálkaorðuna til landsliðsins á lofti og gert að sinni við blaðamenn úti í Peking. 
Það er bara vel ef hann fylgir orðum sínum eftir enda eiga fáir Íslendingar þessa viðurkenningu meira skilið en þessir 14 drengir og Guðmundur þjálfari. 

 TIL HAMINGJU ÍSLAND!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Ólíklegasta fólk sem les þessa góðu síðu þína

Svo má ekki gleyma að Guðmundur þjálfari ætti að fá sína orðu líka.  Frábær

M, 25.8.2008 kl. 10:28

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já alveg magnað að þau hjónin skuli liggja yfir síðunni, jafnvel úti í Kína.

Algjörlega sammála með Guðmund, þetta er nú honum að þakka að miklu leyti.  Algjör snillingur. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 25.8.2008 kl. 10:47

3 Smámynd: Ásta Kristín Norrman

Smá rapport frá fjölmiðlum í Svíþjóð. Þeir tala mikið um Guðmund þjálfara og leggja mikla áherslu á að þetta sé ekki hans aðalvinna að þjálfa landsliðið, heldur vinni hann í banka á virkum dögum og eru þakklátir fyrir að þurfa ekki að mæta svona hörðum bankamanni. Fullir af aðdáun á þjálfaranum. Eins og þeir segja, þegar þeir tala um árangur Íslenska liðsins, þá væri ekki skrítið þó það kæmi stundum fram afburðaríþróttamenn frá Íslandi frekar en frá Malmö sem er sambærilegt að stærð, en að ná fram heilu liði frá svona litlu landi, það er frábært.

Ásta Kristín Norrman, 25.8.2008 kl. 11:14

4 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Sammála þér Nagli sem oftar.!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 25.8.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 548860

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband