Morgunleikfimi á RÚV

Naglanum þykir það þyngra en tárum taki að einn liður í sparnaðaraðgerðum RÚV ohf. sé að taka morgunleikfimina af dagskrá.
Líkamsræktarstöðvar henta ekki öllum, og í þessu hörmulega árferði hafa ekki allir tök á að kaupa sér líkamsræktarkort.
Má þar sérstaklega nefna eldri kynslóð þessa lands sem í sveita síns andlits hefur stritað fyrir salti í grautinn en á nú að ræna ellílífeyrinum til að borga undir þessar hýenur sem hanga í felum úti í heimi og spiluðu kapítalísk rassgöt sín úr buxunum.

Fyrrum vinnuveitandi Naglans, Gunnar Guðmundsson lungnalæknir benti á í Morgunblaðinu að margir af hans skjólstæðingum eru eldra fólk sem verður að hreyfa sig til að halda lungnasjúkdómum sínum í skefjum.
Hann mælir með morgunleikfiminni við sína sjúklinga og margir hreinlega halda sér á lífi með þeirri ástundun.

Væri ekki nær að leggja niður þetta þulustarf í Ríkissjónvarpinu, nú eða láta Palla fá ódýrari bíl til að komast til og frá vinnu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Já, hún er oft furðuleg forgangsröðunin

M, 2.12.2008 kl. 12:57

2 identicon

Svo innilega sammála, fá PM út úr fréttalestri, lækka laun hans, ódýrari bíl og sleppa þessum þulum.

Valdís (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 14:38

3 identicon

Heyrheyr! Dúlla frænka mín hlustaði sko á morgunleikfimina... en hún hló samt eiginlega meira en að gera æfingarnar ;)

Nanna (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 20:05

4 identicon

Heyr Heyr!!!

Svava (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 08:17

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hlátur styrkir kviðvöðvana svo morgunleikfimin hefur allavega virkað eitthvað ;-)

Ragnhildur Þórðardóttir, 3.12.2008 kl. 08:26

6 identicon

Komdu sæl Nagli. Ég er alltaf regluga að renna í gegnum gamlar færslur hjá þér og sé alltaf eitthvað áhugavert. Eitt sem mig langar að spyrja þig um núna:

Í þessari færslu  http://www.ragganagli.blog.is/blog/ragganagli/category/2171/   segirðu frá því að það borgi sig fyrir þá sem reyna að grenna sig að lyfta þungt. Ég las þetta hjá þér fyrir nokkrum vikum og hef farið eftir því síðan - ég verð að segja að það hefur gefist frábærlega og ég sé mikla bætingu, svo bara takk fyrir það :)

En það sem mig langaði að spyrja þig er hvort að þetta eigi við um allar æfingar, þá sérstaklega langar mig að spyrja þig um eitt tæki, veit ekki hvað það kallast, en maður situr með púða utan á fótunum og ýtir svo út, glennir sig sum sé. Þetta á að taka mjaðmir og rass að mér skilst.

Margir hafa sagt mér að það eigi að gilda annað um þessa æfingu heldur en aðrar, það er að betri árangur gefi að taka mörg reps í henni? Er eitthvað til í því eða á ég bara að halda mínu striki?

Tek annars fram að ég er meira nota tæki heldur lóð, stefni á að breyta því eftir 1-2 mánuð, þá kem ég örugglega með fleiri spurningar.

Bestu kveðjur, og takk fyrir frábæra síðu!

Jóhannes (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 14:11

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæll Jóhannes,

Takk fyrir að kíkja í heimsókn á síðuna. Ég hef aðeins verið að taka til í færslunum og flokka þær betur svo þær séu aðgengilegri, það er enn í vinnslu.

Varðandi spurningu þína þá er best að lyfta þungt og fá reps á þessar stóru basic æfingar: hnébeygjur, deadlift, bekkpressu, upphífingar. En taka aðeins fleiri reps á einangrandi æfingar. Ég persónulega nota aldrei "kvensjúkdómalækna" tækin sem þú talar um, þau æfa pínulitla vöðva sem eru notaðir hvort eð er í öllum stóru fótaæfingunum: beygjum, deddi, framstigi o.s.frv. Ef þú tekur þær æfingar sem allir eiga að gera þá áttu ekki að þurfa að fara í glennutækin. En ef þú vilt endilega nota þau skaltu taka 12-15-20 reps.

Ragnhildur Þórðardóttir, 3.12.2008 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 85
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband