Eggjahvíturnar klikka aldrei

Morgunverður meistaranna er hafragrautur og eggjahvítur en það virðist vefjast fyrir mörgum hvernig sé best að borða eggjahvíturnar.  Harðsoðnar eggjahvítur beint af kúnni er bara ekki spennandi matur og algjör óþarfi að svekkja sig á hverjum morgni.  

Naglinn hefur áður póstað uppskrift að eggjahvítu-pönnuköku en hér er myndræn lýsing á mjög svipaðri uppskrift.  Naglinn notar reyndar minna af prótíndufti en konan í myndbandinu, eða c.a 1 msk, og fleiri eggjahvítur í staðinn.  Það má nota ýmsar bragðtegundir af prótíndufti og er bananabragð og berjabragð í sérstöku uppáhaldi hjá Naglanum, súkkulaðibragð virkar ekki eins vel í þessa uppskrift. Eins má nota ýmsa bragðdropa t.d vanillu, möndlu, appelsínu o.s.frv.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef ekki enn lagt í að elda eggjahvítupönnsur en mér finnast harðsoðnar eggjahvítur alveg ljómandi góðar á bragðið   Fæ mér oft soðna hvítu (hendi auðvitað rauðunni) með létt-Ab mjólkinni og sykurlausa múslíinu mínu á morgnana.  Alveg dúndurgott bara   En þarf að prófa pönnsurnar til hátíðabrigða bráðum!

Soffía Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 10:34

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já, smekkur manna er misjafn. Mér finnast harðsoðnar eggjahvítur álíka spennandi matur og ljósritunarpappír. En sumum þykja þær góðar, sumir setja tómatsósu í holuna þar sem rauðan var ;-)

Tékkaðu á pönnsunum, þær eru fantagóðar.

Ragnhildur Þórðardóttir, 7.2.2009 kl. 11:06

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Rather you than me ;-)

Ragnhildur Þórðardóttir, 9.2.2009 kl. 08:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 549068

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband