Pina Colada... án áfengis og sykurs


Af því að handan við hornið er löng helgi þá er hér uppskrift að snarli með Pina Colada bragði til að koma fólki í helgargírinn.
Fín millimáltíð þegar skyrið er farið að valda velgju.

Pina Colada - áfengis-og sykurlaus

125 g kotasæla
3/4 bolli ananas bitar
Kókos síróp (fæst í Kaffitár)
Vanilludropar
Ísmolar

Blanda í blandara

Góða helgi!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hólí mólí, þetta hljómar guðdómlega

Vala Árnadóttir (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 13:30

2 identicon

Vei! Spennandi. Bráðvantaði einmitt tilbreytingu - ætla að prófa um helgina :D

Theó (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 22:30

3 identicon

Ragga þegar að þú tókst þátt í þrekmeistaranum hérna um árið, hvernig voru æfingar vikuna fyrir mót, var mikil hvíld? Og hvað borðar maður svona dögunum fyrir keppnir eða slíkt, hef heyrt eitthvað talað um að "carba-up" og éta fullt af kolvetnum síðustu dagana, er eitthvað til í því?

Óli Jóns (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 09:19

4 identicon

Þetta kjúklingakrydd sem þú tala um frá bezt..er það bara til í nóatúni? og er þetta bara eitt kjúklingakrydd?

Óla (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 03:31

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

óli Jóns! Ég carbaði ekki upp, og hef ekki heyrt að fólk geri það. Brautin tekur ekki nema 20 mín, og þú átt ekki að þurfa að hlaða fyrir svona stutt átök. Hins vegar er gott að auka aðeins við kolvetnin í 2-3 daga fyrir og borða vel um morguninn, en ekki stórar máltíðir samt. Þú vilt ekki vera í miðri braut með mallann sneisafullan. Hafragrautur + eggjahvítur í morgunverð, kjúlli + hýðis um miðmorgun, og banani 1/2- 1 klst fyrir. Bara hugmynd.

Óla! EIns og Jóhanna segir fæst Bezt á kjúklinginn bæði í Krónunni og Nóatúni. Þeir framleiða líka frábær fiskikrydd, hamborgarakrydd (sem er mjög gott á kjúlla líka og á hakkið), kalkúnakrydd og lambakrydd.

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.6.2009 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 549156

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 85
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband