Erluréttur Naglans


Þar sem Naglinn eldar alltaf bara ofan í sinn eigin maga þá miðast þessi uppskrift við eina hræðu. Magninu má því breyta eftir fjölda sem snæðir.

4% nautahakk (100-150g)
Sveppir
Laukur
2 tsk Tómatpúrra
1-2 tsk Salsa sósa
1/2 tsk sinnep
vatn

Steikja sveppi og lauk (eða hvaða grænmeti sem er) á pönnu og krydda veeeel. Setja í pott.
Steikja hakk og krydda veeeel. Setja það magn af nautahakki sem þú notar í pottinn með grænmetinu. Gott að geyma restina í ísskáp til að nota næst.

Hræra tómatpúrru, sinnepi, salsasósu saman við. Hella smá vatni út í ef of þurrt.

Voilá

Hrikalega gott með hýðisgrjónum í hádeginu, eða með möndlum og salati á kvöldin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hvar fær maður 4% nautahakk???

DG (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 22:55

2 identicon

þetta er hriiiiiikalega gott, ég fæ mér svona á hverjum einasta degi, ég get ekki hætt!!! :p

Sylvía (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 21:50

3 identicon

Virkar það að reikna út daglega brennslu líkamans með að ganga bara með púlsmælirinn í gangi allan daginn?

Óli Jóns (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 09:48

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

DG! 4% hakk fæst í Kjöthöllinni Háaleitisbraut og Skipholti, þeir eru líka með geggjað gúllas, lundir, roast beef. Ég versla mitt nautakjöt eingöngu þar.

Óli! Það er ein leið, en hversu marktæk hún er.... Svo er líka til tæki sem heitir Body Bugg sem á að vera áreiðanlegra en púlsmælir til að mæla orkunotkun yfir daginn.

Ragnhildur Þórðardóttir, 19.6.2009 kl. 10:49

5 identicon

Ég sá að það voru svo margar sem svöruðu pistlinum þínum um hreyfingu á meðgöngu sem greinilega höfðu mikið vit á þeim málum.....  má ég óska eftir að einhver þeirra sendi mér línu??? Vantar smá ráðleggingar - er ansi þreytt á því að hlusta á lækna og ljósmæður segja að maður eigi bara að halda sínu striki og svo les ég líka um að maður verði að hætta hinu og þessu... hvað er eiginlega rétt....

Erla Rán Kj (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 548849

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband