Kaloría smaloría

Þessi 45 kg písl er ótrúleg!!! Ég kem ekki einu sinni niður einni pylsu, og hef ekki gert í mörg ár.  Ég er víst ekki sannur Íslendingur þar sem ég hef viðbjóð á þjóðarréttinum Sick.

En hefði verið keppni í hitaeiningainntöku og magnáti yfir liðna helgi þá er ég viss um að hafa staðið uppi sem ótvíræður sigurvegari.  Sumarbústaðaferðir hafa einhvern veginn mjög jákvæð áhrif á matarlystina , og slíkar ferðir snúast oftar en ekki um að borða, borða, borða.

En það er bara nauðsynlegt að kitla bragðlaukana af og til, þó sumu megi kannski ofgera Blush, því maður kemur sér bara aftur upp á heilsuvagninn með rétt mataræði og hreyfingu eftir slíkar átveislur.   Á sunnudagsmorgun voru hlaupaskórnir reimaðir á bjúgaða fætur og 10 km lagðir undir fót í sólskini og sveitailmi, og gamli matseðillinn með haframjöli, myoplex, brúnum hrísgrjónum og kjúlla tekinn upp að nýju Wink og bumban fer nú óðum minnkandi.

 


mbl.is Át 36 pylsur á 12 mínútum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hummm  Eitthvað kannast ég við þessa lýsingu. Ég var í svipuðum gír þessa helgina - get samt ekki hreykt mér af því að hafa hlaupið svo mikið sem 1 km á sunnudaginn  

Takk annars fyrir "fitufræðsluna" um daginn. Ég bíð spennt eftir frekari umfjöllun  . Já og takk fyrir að minna mig á avókadó-ið.. ég var búin að steingleyma því

Óla Maja (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 20:34

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já maður getur alveg misst sig í sukkið inn á milli.  En maður hefur líka bara gott af því .  Hvað er gaman að japla endalaust á hafragraut og kjúkling ?  Svo kemur maður tvíefldur inn í hollustuna eftir sukkhelgi .

Fitu pistill kemur innan skamms

Ragnhildur Þórðardóttir, 30.5.2007 kl. 09:00

3 identicon

Hummm  Eitthvað kannast ég við þessa lýsingu. Ég var í svipuðum gír þessa helgina - get samt ekki hreykt mér af því að hafa hlaupið svo mikið sem 1 km á sunnudaginn  

Takk annars fyrir "fitufræðsluna" um daginn. Ég bíð spennt eftir frekari umfjöllun  . Já og takk fyrir að minna mig á avókadó-ið.. ég var búin að steingleyma því

Óla Maja (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 549116

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband