Ég var klukkuð....

....svo hér koma 8 staðreyndir um sjálfa mig.

 

1) Ég er með líkamsrækt á heilanum og finnst ég vera skítug ef ég æfi ekki helst alla daga.  Ég verð kvíðafull við tilhugsunina að lenda í aðstæðum þar sem ég geti ekki æft og reyni eftir fremsta megni að forðast að lenda í slíkum aðstæðum.  Til dæmis tek ég alltaf með mér hlaupaskó í frí og er búin að googla líkamsræktarstöðvar í nágrenninu.

 

2) Ég get hvorki smellt fingrum né blístrað

 

3) Mér finnst MJÖG gaman að borða og strax og ég hef lokið einni máltíð er ég farin að hlakka til næstu.  Ég er algjört matargat og ef ég kemst í góðan mat t.d á nammidögum get ég borðað út í hið óendanlega. Ég þarf að vigta og skammta mér mat á virkum dögum því ég get borðað endalaust og myndi annars bara hlaupa í spik....aftur.  

 

4) Uppáhalds maturinn minn er sjávarréttarisotto, tyrkneskur og marokkóskur matur og uppáhalds nammið er dökkt súkkulaði og lakkrís saman.

 

5) Ég safna Babúskum og baðöndum

 

6) Ég þoli ekki raunveruleikaþætti

 

7) Ég þoli ekki sjálfsvorkunn og fólk sem er sífellt kvartandi og kveinandi.... Hver er sinnar gæfu smiður og Þú uppskerð eins og þú sáir eru mín lífsviðhorf.  Ekkert helv... væl í mín eyru, takk fyrir.

 

8) Ég var smámælt til 8 ára aldurs þegar ég var send í talkennslu.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært  Maður er alveg heilmiklu nær um Naglann eftir þennan lestur  

Tvennt sem mig langar að spyrja þig út í... 1) Dökkt súkkulaði og lakkrís.. ertu þá að tala um suðusúkkulaði? Hvernig lakkrís? Þekkiru Panda lakkrís? Á að vera náttúrulegri og hollari en flestur annar? Mig langar svo að vita hvort það sé raunin  Endilega segðu mér ef þú þekkir til.  2) Í spik? Fyrirgefðu forvitnina en ég sá þig fyrir mér sem allsherjar íþróttafíkill frá unga aldri.. og alltaf fit  Ég er sjálf á því stigi (ennþá) að vera að vinna mig út úr spikinu

Fyndið annars þetta með atriði 2. Ég er nefnilega sjálf með þessa "fötlun" .. hef bara aldrei getað blístrað skammlaust og það er algjör heppni ef ég næ að smella fingrum svo eitthvað heyrist  

Annars.. var að koma úr fríi og er ennþá að lesa fyrri færslur hjá þér - margt að melta og læra núna

Óla Maja (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 20:54

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hey skvís,

Velkomin úr fríinu. Vona að þú hafir notið lífsins í góða veðrinu.

Jamm suðusúkkulaði eða bara eitthvað dökkt súkkulaði. Finnst rjómasúkkulaði ekki gott. Ég þekki ekki Panda lakkrís, en ég er bara að tala um venjulegan íslenskan lakkrís eins og lakkrískonfekt frá Sambó eða Appolo eða gammeldags svartan. Ég hef ekki heyrt um að einhver ákveðinn lakkrís sé hollur, hann hækkar blóðþrýsting og er snar óhollur en bara svo rosalega góður (í hófi).

Já já elskan mín Naglinn var feitabolla í gamla daga.

Ég skil ekki hvað þetta er með fingurna, það heyrist bara ekkert þegar ég smelli og mig hefur alltaf langað til að geta blístrað svona með tveimur fingrum eins og fólk gerir á fótboltaleik.

Ragnhildur Þórðardóttir, 16.7.2007 kl. 21:04

3 identicon

Ég er sko hrikalegur fíkill á súkkulaði og lakkrís. Er reyndar voðalega veik fyrir Síríus rjómasúkkulaði með hnetum og rúsínum og lakkrísreimar frá Appollo (eða lakkrískonfekt frá sama aðila) er þá alveg toppurinn á tilverunni :D Í seinni tíð hef ég reynt að fullnægja þessari þörf með einum og einum bita af suðusúkkulaði með heitu jurtatei í stað þess sem að ofan greinir með köldu kóki :p

Óla Maja (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 21:34

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Elskan mín, jafn dugleg og þú ert í ræktinni áttu alveg skilið að leyfa þér lakkrísreimar og súkkulaði og skola því niður með kóki svona af og til. 

Allt er best í hófi !!

Ragnhildur Þórðardóttir, 18.7.2007 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 549067

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband