Hvernig týpa vilt þú vera ? 1 eða 2?

vodvi_250105Áður en ég byrja að blaðra um supersett og frændur þess, þá vil ég fyrst stikla á stóru um samsetningu vöðva líkamans. 

Beinagrindavöðvar (vöðvarnir sem við notum við lyftingar), eru samsettir úr sérhæfðum frumum sem kallast vöðvaþræðir og liggja endilangt eftir vöðvunum.

Í vöðvum líkamans eru tvær tegundir vöðvaþráða, rauðir eða Týpa 1, og hvítir eða Týpa 2. 

Týpa 1: Rauðir vöðvaþræðir og grannir í rúmmál.  Þessir vöðvaþræðir eru loftháðir, sem skýrir rauða litinn.  Þeir eru því lengi að þreytast og notaðir við langar úthaldsæfingar á lágum púlsi (50-70%) t.d langhlaup og röska göngu.

Íþróttamenn á borð við maraþonhlaupara eða Tour de France kappa hafa hærra hlutfall rauðra vöðvaþráða en hvítra.   

Þegar við lyftum mörg reps (12-15+) erum við aðallega að virkja rauða vöðvaþræði.

 

Type 2: Hvítir vöðvaþræðir og notaðir í stuttum æfingum á hárri ákefð.  Þeir nota aðallega loftfirrða orku og þess vegna hvítir á litinn.  Þeir þreytast því mun fyrr en rauðir þræðir.  Þessir vöðvaþræðir skiptast svo frekar niður í Týpu 2a og 2b

Týpa 2a: Virkjast við stuttar til miðlungs langar æfingar á miðlungs til hárri ákefð og þreytast miðlungs hratt. Dæmi um virkjun þeirra eru sprettir og lyftingar með miðlungs repsafjölda (8-12).  Körfuboltamenn, fótboltamenn, hokkí spilarar og lyftingakappar hafa hátt hlutfall Týpu 2a.

Týpa 2b: Virkjast við stuttar æfingar með hárri ákefð eins og við sprengikraft t.d í Ólympískum lyftingum.  Fá reps (4-6) örva þessa vöðvaþræði því þeir þreytast mjög fljótt.  Kraftlyftingamenn hafa hátt hlutfall Týpu 2b í vöðvum líkamans.

Rauðir vöðvaþræðir geta ekki stækkað mjög mikið því ummál þeirra er mun minna en hvítra sem geta  stækkað umtalsvert og þar með stækkað vöðva.  Þegar við lyftum lóðum viljum við samt virkja sem flesta vöðvaþræði eða báðar týpurnar.  Ástæða þess er að vöðvar eru yfirleitt samsettir úr bæði rauðum og hvítum vöðvaþráðum og því fleiri vöðvaþræðir sem eru virkjaðir í vöðvanum, því meiri verður aukning í styrk og massa. 

Það er einstaklingsbundið hvor týpa vöðvaþráða er ráðandi í beinagrindavöðvum líkamans.  Með réttri þjálfun er hægt að virkja báðar týpurnar.  Til dæmis að skipta þjálfun upp í tímabil af fáum repsum (4-8) fyrir örvun hvítra vöðvaþráða og fleiri repsum (10-15) til að örva rauða.  Eins er breytilegur settafjöldi mikilvægur eins og áður hefur komið fram.

 Í næsta pistli mun ég fara betur yfir sett og reps.

 

Góðar stundir!!


Athugasemdir

1 identicon

Sæl mín kæra

Hef ekki haft tíma til að kíkja inn til þín og sé að ég hef nóg að lesa á næstunni  Varð að deila því með þér að ég fjárfesti í "The body sculpting bible for women" og hún er alveg geggjuð  Búin að vera ansi busy undanfarið en vona að ég geti hellt mér í hana af fullum krafti fljótlega.

Bestu kveðjur og takk fyrir alla fræðsluna

Óla Maja (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 20:38

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð og sæl mín kæra,

Já þetta er frábær lesning og prógrammið er algjör snilld.  Ég náði rosa góðum árangri á því, styrktist helling og bætti á mig 1 kg af vöðvamassa, sem er bara nokkuð gott fyrir væskilslegan kvenmann.  En þetta er erfitt, sérstaklega síðasta vikan í fjórsettinu, en mjög skemmtilegt.  Svo tekur maður bara smá pásu og getur svo byrjað aftur á því eftir 3-4 vikur og tekið þyngra en síðast.

Kær kveðja norður !!

Ragnhildur Þórðardóttir, 2.8.2007 kl. 08:48

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 549144

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband