Á báðum áttum

Nú er Naglinn á báðum áttum með að keppa í þessu fitness dæmi. Þannig er nefnilega mál með vexti að á laugardagskvöldið var ég stödd í gleðskap og þar vindur einn veislugestur sér upp að mér og segir að hún hafi frétt að ég ætli að keppa í fitness og fer að spyrja mig um fyrirkomulag og æfingar keppninnar. Nema hvað.... að maðurinn hennar sem situr við hliðina á okkur segir allt í einu: " Ertu að fara að keppa í fitness?", mælir mig út frá toppi til táar og segir síðan:" Þarftu þá ekki að fara að byrja að æfa?" Á ég að taka þessu sem móðgun og kasta eggjum í húsið hans eða á ég að senda honum þakkarskeyti fyrir að hafa bent mér á hið augljósa og ég sé bara veruleikafirrt að halda að ég eigi séns í þessa keppni??

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Ragga

Ég held að það fyrrnefnda hljómi skynsamlegar í mín eyru! Haltu áfram:)

Kv. Stína

Stína (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 18:28

2 identicon

Mér finnst þetta bara argasti dónaskapur! Fyrir utan það að maðurinn er greinilega ekki með á nótunum.. Er alveg til í að skreppa suður og grýta eggjum með þér! A.m.k. kemur seinni tillagan ekki til greina.

Ég er líka bara hundfúl með þér yfir þessu með Fitness og Þrekmeistarann! Af hverju er verið að gera fólki ókleift að taka þátt í báðum keppnunum?

Pepp og baráttukveðjur.. keep up the good work, hon.

Óla Maja (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 21:16

3 identicon

Enga uppgjöf kona! Það hlýtur nú að þurfa meira til að slá sjálfan Naglann útaf laginu. Ég veit þú hundsar þetta, setur hausinn undir þig og heldur áfram tvíefld fyrir vikið. Eins og ég hef áður sagt hef ég óbilandi trú á þér og tel einnig að þú eigir fullt erindi í fitness.

Koma svo....

Mína (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 21:19

4 identicon

Þetta hefur verið meiri dóninn. Spurðu sjálfa þig að því afhverju þig langar til að keppa. Þá veistu alveg hvert næsta skref er. Ég hef fulla trú á því að þú hafir allt til að bera fyrir svona mót. Samt hef ég ekki séð þig síðan í sálfræðitímum í den. ;) 

Málið er að það virðast ofboðslega margir hafa skoðun á fitnessmótum, undirbúningi og keppendum. Það er því mikilvægt að hafa í huga hvaðan gagnrýnin er að koma og alls ekki hlusta á alla sem vilja hafa eitthvað um málið að segja.  

Og varðandi þessa skipulagningu móta. Well, ég veit hreinlega ekki hvað skal segja nema að stundum virðast menn ekki alveg leggja nógu mikla hugsun í þetta allt saman. :) 

ingunn (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 21:38

5 identicon

Kræst!!! Þetta er svo klassískur misheppnaður brandari frá greinilega miður vel gefnum gaur. Hvenær ætla karlmenn að læra að maður segir ekki svona brandara við konur, þ.e.a.s. brandara sem varða holdarfar??? Guðs bænum láttu þetta ekki á þig fá...þú veist betur mín kæra

Ingunn Þ (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 22:08

6 Smámynd: Bjarney Bjarnadóttir

Sko þessi gaur er fyrir það fyrsta bara dóni, en því miður eru svona komment full tíð í fitness bransanum "bíddu, ertu byrjuð að skera niður?" o.s.frv

En ef þig langar til að keppa þá áttu ekki að láta eina manneskju, sem hefur sennilega ekki mikið vit á þessu, skemma það fyrir þér. Hafðu markmiðin bara raunhæf, kannski ertu ekkert að fara að vinna þetta mót, en þetta er rosalegt challenge og maður verður að mæta í mót til að vita á hvaða sviðum maður þarf að bæta sig

Ég fór með sama hugarfari, bæði í fyrsta fitness mótið og svo í hálfmaraþonið, í fyrsta skipti sem maður tekur þátt þá er markmiðið bara að klára og sjá hvar maður stendur, á næsta móti getur maður farið að setja sér hærri markmið. Æ you get the point

Annars á ég við sama vandamál að stríða varðandi það að vera hörundssár gagnvart svona kommentum, einmitt bara fyrir korteri síðan voru ég og unnusti minn í jump-fit (sippubandatíma), hann sagði í miðjum tíma:"þú ert nú ekkert rosalega góð í þessu" og ég er ekki búin að tala við hann síðan! (fyrir korteri sem sagt! hehe) en ég hef alltaf forðast að lenda í aðstæðum þar sem samhæfingaleysi mitt verður greinilegt, hann gat ekkert vitað að ég tæki þetta svona nærri mér, hann var bara að vera fyndinn! En það breytir því ekki að ég ætla í næsta jump fit, þó ég sé léleg, ég hlýt að skána með tímanum!!

Vó langt komment! En ekki láta eina mannsekju skemma fyrir þér eitthvað sem þú ert búin að stefna að og langar að gera, hann á eftir að vera öfundsjúkur þegar hann sér þig í geðveiku formi uppá sviði 

Bjarney Bjarnadóttir, 10.9.2007 kl. 07:58

7 identicon

Sæl Ragga, Í guðanna bænum ekki hlusta á svona rugl í einhverjum dúddum sem eru að reyna að vera fyndnir. 

Baráttukveðja að norðan

Kristjana

Kristjana (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 10:22

8 identicon

Jiminn ég heyrði þetta, fannst nú alveg fyrir neðan allar hellur, ekki eins og þessi umræddi maður hafi verið einhverskonar goð.

Þú hefur aldrei litið betur út og átt eftir að standa þig með sóma í þessari keppni

Elín (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 12:20

9 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk allar saman fyrir að stappa í mig stálinu. Það er ómetanlegt að vita að maður hefur heilan her af stuðningsmönnum á bak við sig. Þá er eins gott líka að standa sig í þessu alle sammen.

Bjarney! Við konur tökum bara svona hluti nærri okkur, þessir kallar skilja ekki tilfinningarússíbanann sem við erum í alla daga.

Elín! Takk fyrir falleg orð, maður klökknar bara. Þú veist hver kauði er, manst að kasta einu eggi eða svo í hvert skipti sem þú sérð hann. Ekki veit ég hver dó og gerði hann að fitnessdómara.

Ragnhildur Þórðardóttir, 10.9.2007 kl. 13:51

10 identicon

Halló skvísa, ég auglysti eftir þér á bloggsíðunni minni. Ég hef ekki á nokkurn hátt getað fundið þig. En fann þig núna. Vá Ragnhildur, þú átt sko alveg heima þarna uppá sviði alveg eins og allar hinar stelpurnar. Mundu eitt....þetta snýst um samræmi líkamans, ekki stærðina. Allavega er það regla nr.1,2 og 3 í dómgæslunni. Vertu stollt af því hvað þú lítur vel út. Þú átt eftir að fá miljón comment og flest frá vinum þínum. Þú veist betur:-)

Kv.Valdís

Valdís (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 19:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 548855

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband