Ljúffengur lax

Það kom ósk frá dyggum lesanda um uppskrift í athugasemdum og að sjálfsögðu verður Naglinn við slíkum beiðnum. Því slengi ég hér fram vinsælum hádegisverði á borðum Naglans.

Lax með spínati og hýðishrísgrjónum:

Lax (frábær uppspretta af Omega fitusýrum). Marineraður í 1 msk af Teriyaki í 2-3 klst í nestispoka í ísskáp. Bakaður í ofni við 200° í 15-20 mínútur. Tíminn fer eftir ofninum, því betri ofn því styttri tími en ofninn á heimili Naglans er jafn öflugur og ljósapera og því hef ég hann inni í 20 mínútur.

Spínat (grænmeti á að vera í hverri máltíð enda fjörefni og gott í kroppinn). Skolað og skellt á sjóðandi heita pönnu í 2-3 mínútur (engin olía) og hrært í á meðan. Spínatið sett á disk og piprað veeeel með svörtum pipar.

Skammtur af hýðishrísgrjónum (flókin kolvetni eru orkugjafi  fyrir átökin í ræktinni).

 Hér er dýrindis máltíð sem er holl og rétt samsett af kolvetnum, prótíni og fitu.

Bon appetit!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jeminn ertu bara búin að binda hnútinn!
Innilega til hamingju með það sæta mín! Hlakka til að sjá myndir
Og ég bara verð að segja ... sluuuuuuurp hvað þetta er girnó máltíð! Ég nota helst spínat í alla rétti namm namm

Hamingjukveðjur,
Anna Brynja

Anna Brynja (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 09:28

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir það skvís. Já já nú er mín bara orðin gift kona og frelsið farið út í veður og vind. Nú er það bara elda, þvo og strauja alla daga.

Spínat er algjör snilld, bæði gómsætt og svo sneisafullt af fjörefni fyrir bicepinn. Sjáðu bara Stjána bláa ;-).

Myndin í fyrri færslu er úr brúðkaupinu, kannski erfitt að átta sig á því þar sem brúðurin klæddist ekki hvítu. Set inn fleiri myndir fljótlega.

Ragnhildur Þórðardóttir, 20.9.2007 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 549065

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband