Hollar og gómsætar pönnukökur

Hollar pönnsur

 

4-5 eggjahvítur

1/4 dós Kotasæla eða 2-3 msk ósætt eplamauk

1 dl haframjöl (gróft er hollara)

1 skeið hreint prótín

Má setja vanillu- eða möndludropa, kanil eða múskat út í til að bragðbæta ef vill

Blanda saman

Skella á pönnukökupönnu eða venjulega pönnu (engin olía) og snúa við þegar loftbólur byrja að myndast

Má setja 1 msk af sykurlausu sýrópi út á, eða spreyja með Pam spreyi nú eða sleppa og borða bara eins og kemur af kúnni.

Má líka bæta við banana áður en blandað saman eða hræra rúsínum, hnetum eða möndlum út í áður en skellt á pönnuna.

Vær so god!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áhugaverð uppskrift. Verð að prófa hana við tækifæri. En hvar nálgast maður hreint prótín??  

Mína (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 12:34

2 identicon

Hæ, ég fer oft hér inn á síðuna þína.

Hún er mjög góð er sjálf að spá og pæla í öllu sem til heyrir heilsurækt.
Kær kveðja Setta

Setta (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:58

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð Mína,

Hreint prótín fæst í öllum helstu verslunum með fæðubótarefni, t.d Hreysti, Fitnesssport, Vaxtarvörur, Vítamín.is og svo líka í Hagkaupum og Fjarðarkaupum og á mjög mörgum líkamsræktarstöðvum.  Það fer bara eftir því hvaða merki þú vilt kaupa og hvaða tegund þér finnst góð á bragðið.  Mér sjálfri finnst hreint prótín eitt mikilvægasta fæðubótarefnið.

Sæl Setta,

Takk fyrir það og takk fyrir að kíkja í heimsókn.  Alltaf gaman að vita hverjir eru dyggir lesendur.

Ragnhildur Þórðardóttir, 26.9.2007 kl. 14:05

4 identicon

Er það ekki merkilegt hvað einfaldur matur getur stundum bragðast vel. Ég bý mér oft til þunnar pönnsur úr bara eggjahvítum og delite próteininu að norðan. Alveg himneskt. :) 

Mikið var annars gaman að rekast á þig á æfingu í dag. :) 

ingunn (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 19:14

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð Ingunn,

Sömuleiðis gaman að hitta þig í Sporthúsinu, alltaf gaman að breyta um umhverfi.  Var alveg að fíla mig að lyfta þarna.  Prófaði dálítið sjúkt í morgun.  Setti smá Sigga prótín í bolla og pínu vatn þannig að varð eins og búðingur og hellti yfir hafragrautinn og eggjahvíturnar.  Ertu ekki að grínast!! Geggjað gott!! 

Ragnhildur Þórðardóttir, 27.9.2007 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 548847

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband