Fitubrennslutöflur

Grunnbrennsla líkamans felst í efnahvörfum sem er niðurbrot á sykri, prótíni og fitu sem við neytum úr fæðu.  Við efnahvörf myndast varmi sem blóðið sér um að flytja um líkamann.  Því meiri varmi sem myndast því meira eykst efnaskiptahraði.  Við það hækkar grunnbrennslan yfir eðlileg mörk sem þýðir að fleiri hitaeiningum er brennt.  Þetta ferli nefnist Thermogenesis eða varmamyndun á okkar ylhýra.

 

Margir mismunandi mekanismar setja varmamyndun af stað:

Hreyfing: Við aukna áreynslu aukast efnahvörf líkamans og líkamshiti hækkar verulega og getur jafnvel farið upp í 40° C

Kuldi:  Skjálftaviðbrögð líkamans hækkar líkamshita

Góð næring: Niðurbrot á fæðu hækkar hitastig líkamans

 

Fitubrennslutöflur eru einnig taldar stuðla að varmamyndun í líkamanum.  Slíkar töflur eru stundum nefndar örvandi fitubrennslutöflur.

 

Eitt þekktasta varmamyndandi efnið í slíkum töflum er Efedrín en slíkar töflur hafa nú verið bannaðar í USA.  Því hafa framleiðendur reynt að finna efni með svipaðan styrkleika og efedrín á varmamyndun. 

Algeng örvandi efni í fitubrennslutöflum eru:

Synephrine, Yohimbine, koffín, og grænt te hafa áhrif á varmamyndun með að hækka hitastig líkamans.

Hydroxycitric Acid (HCA ) er talið hafa áhrif á niðurbrot fitu í gegnum ensími

Hoodia Gordinii er talið draga úr svengd.  

Guggulsterones er talið hafa áhrif á virkni skjaldkirtils en hann stjórnar meltingunni

 

Einnig eru til aðrar tegundir af bætiefnum sem eiga að brenna fitu hraðar en virka með öðrum hætti en í gegnum varmamyndun:

CLA - Omega - 6 fitusýrur, talið að þær auki vöðvamassa og minnki fituvef

 

Króm (Chromium picolinate) - steinefni sem stjórnar losun insúlíns og eykur upptöku glúkósa í blóðinu og heldur blóðsykri þannig stöðugum.  Talið koma þannig í veg fyrir sykurfall og skyndihungur

 

L-Carnitine - Amínósýra.  Flytur fitufrumur inn í vöðvavef þar sem þær eru notaðar sem orka í stað þess að breytast í fituvef.  Talið að stuðli þannig að fitutapi.

 

Coleus Foshkohlii- Jurt sem hefur lengi verið notuð til að lækna öndunarfærasjúkdóma og hefur sömu virkni og HCA á fitubrjótandi ensími

 

Athugið að listinn hér að ofan er alls ekki tæmandi því ógrynn er til af efnum sem er bætt í töflur og duft, eða framleitt og selt ein og sér.  Einnig skal tekið fram að flestar rannsóknir á fitubrennsluefnum hafa verið gerðar á ferfætlingum og því skal taka fullyrðingum um virkni þeirra með fyrirvara.

Þrátt fyrir að það sé urmull af fitubrennslutöflum á markaðnum heldur heimsbyggðin, og þá aðallega hinn vestræni heimur, að fitna og fitna.  Offituvandinn er orðinn einn stærsti vandi heilbrigðiskerfa á Vesturlöndum því yfirþyngd er orsök svo fjölmargra sjúkdóma t.d hjarta-og æðasjúkdóma, krabbameins, háþrýstings og stoðkerfisvandamála. 

Fitubrennslutöfluiðnaðurinn veltir grilljónum á ári því nóg er til af fólki í leit að hinum gullna elixir sem á að gera þá tággranna án þess að þeir þurfi að lyfta litla fingri.  Ef allt þetta duft og pillur myndu virka jafn vel og haldið er fram í auglýsingum með photo-shoppuðum gellum og köppum þá væri veruleikinn víst annar en hann er. 

Staðreyndin er nefnilega sú að fitubrennslutöflur eiga að vera síðasta hálmstráið í baráttunni við fitupúkann. 

Þær á aðeins að nota til að ná af sér þessum allra síðustu þrjósku kílóum og eingöngu ef hinar gullnu þrjár breytur í jöfnunni eru í 100% lagi:

 

Rétt næring - 5-6 máltíðir á dag, nóg af grænmeti, ávöxtum, grófu korni og prótíni

 

Næg hreyfing - a.m.k 3-4 x í viku 30-60 mín í senn

 

Næg hvíld -7-8 tíma svefn helst á hverri nóttu

 

Það má bryðja pillur út í hið óendanlega í þeirri veiku von að kílóin hypji sig burt, en ef einn eða fleiri þessara þriggja þátta eru í ólagi þá eru slíkar aðferðir aðeins peningasóun.


Athugasemdir

1 identicon

já mér finnst þessar ,,fitubrennslutöflur'' ekkert sérstakar. Ég notaði þetta mikið á tímabili og þær virkuðu ágætlega þannig, en um leið og ég gleymdi að taka þær fannst mér ég ekkert geta á æfingum.

Takk fyrir skemmtilegan og þarfan fróðleik eins og alltaf

Þrekmeistarinn eftir 2 daga.... ég er svo spennt, er alveg að deyja

Gangi þér vel í köttinu á síðustu dögunum...

kv. Hrund

Hrund (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 12:24

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Ég segi bara gangi þér sem allra best mín kæra Hrund í Þrekmeistaranum, ég fylgist spennt með og vil fá að vita ALLT þegar þú kemur til baka að norðan.

 Smá ráðleggingar út frá minni reynslu:

Ekki sprengja þig í hjólinu og róðrinum, þú átt alla brautina eftir

Fókusaðu á að gera æfingarnar rétt, það tefur of mikið fyrir að fá refsistig og þú þreytist svo á því að þurfa að gera miklu fleiri endurtekningar en þarf.  Sérstaklega þarf að passa tæknina í fótalyftum, uppsetum og niðurtogi.

Haltu jöfnu tempói á brettinu og reyndu að hlaupa allan tímann frekar en að sprengja þig í sprettum og labba á milli.

Gangi þér sem ALLRA ALLRA best!!!  Hlakka til að heyra hvernig gekk.

Ragnhildur Þórðardóttir, 8.11.2007 kl. 13:28

3 identicon

Takk kærlega fyrir þetta  

Hrund (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 15:12

4 identicon

Sæl Ragga

Ég prófaði hollu pönnsurnar þínar (frá 26.9.) um daginn en þær festust alltaf við pönnunni hjá mér Ég gerði þær reyndar á pönnukökupönnu og notaði kókosfeiti en kannski er betra að nota bara teflonpönnu og enga fitu?

Mér líkar rosalega vel við próteinið góða - en varð svolítið svekkt þegar ég sá á innihaldslýsingunni að það inniheldur Aspartam  Notarðu þannig prótein í pönnsurnar?

Gangi þér vel í köttinu (ansi góð færsla b.t.w. þó ég hafi ekki reynsluna )

Óla Maja (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 18:18

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Það er best að nota góða teflon húðaða pönnu, eða spreyja pönnuna með PAM eða nota smá ólífuolíu.

Já ég nota prótínið í pönnsurnar. Hvað eru mörg g af kolvetni í skammti af prótíninu sem þú keyptir?

Ég hef aldrei pælt mikið í þessu aspartame dóti enda Íslandsmeistari í tyggjó jórtri og aldeilis aspartame í því ;-)

Ragnhildur Þórðardóttir, 8.11.2007 kl. 19:03

6 identicon

Það eru 4.5 g af kolvetnum í 20 g (konu)skammti í þessu próteini.

Aspartam leynist ansi víða svo ég hefði ekkert átt að verða hissa að sjá það þarna líka  Hugsa að það sé samt mjög lítið magn af því í þessu því það er síðast á listanum yfir innihald

Óla Maja (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 07:54

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Þú skalt ekki taka þetta prótín fyrir svefninn út af kolvetna magninu, það er betra að taka alveg hreint prótín þá, eða bara smá kotasælu eða hreint skyr ef þú vilt það frekar.  Það er alveg nóg að setja bara hálfa skeið út í pönnsurnar á morgnana því þú færð líka fullt af prótíni úr eggjahvítunum.  Taktu samt 1,5 - 2 skeiðar eftir æfingu þegar þú ert bara að fá þér sjeik .

Ragnhildur Þórðardóttir, 9.11.2007 kl. 09:22

8 identicon

sæl, snilldarsíða, var að spá hvort þú gætir svarað eftirfarandi um prótín fyrir svefn...Hvað áhrif hefur það ef maður er í góðu formi og vill byggja upp meiri vöðva? hversu mikið magn og hvaða prótíngjafi: skyr, kotasæla eða kolvetnasnautt prótínduft eða eh annað?

Sigríður (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 19:42

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 549069

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband