Eftir keppni

 

Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til.....

 

Að sinna rónanum í mér með rauðvínsdrykkju og öðrum ósóma

 

Að sinna átvaglinu í mér: There's a fat woman inside me screaming for chocolate

 

Að minnka helv%&## brennsluna og einbeita mér að lyftingum

 

Að minnka æfingar úr 12-14 sinnum í viku

 

Að fara í Bónus og kaupa eitthvað annað en kjúkling, egg og brokkolí

 

Að geta borðað sósur með mat aftur:  salsasósa, tómatsósa, teriyaki, tzatziki.... að borða þurrar bringur er álíka spennandi og að tyggja trjábörk

 

Að geta borðað ávexti aftur.  Sérstaklega banana sem komu skyndilega aftur inn í líf mitt fyrir nokkrum mánuðum eftir 6 ára fjarveru. 

 

Að minnka eggjahvítuátið úr 84 hvítum á viku

 

Að fá aftur Myoplex með kaffidufti og karamellusírópi (sykurlausu auðvitað)

 

Að setja rúsínur í hafragrautinn aftur

 

Að fá aftur nammidaga, sem héðan í frá verða nammikvöld: hefst á kvöldmat og endar á miðnætti.  Annað er óumsemjanlegt fyrir hömlulausan mathák eins og Naglann.

 

Að sofa út á sunnudögum

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er eins og talað út úr mínu hjarta  

Bara það að fá aftur myoplex með haframjöli útí, ummmm.... maður kann að meta þetta holla og góða mun betur eftir svona ferðalag þar sem EKKERT má, það er alveg á hreinu

 Bara fjórir dagar, það er að koma að þessu skvís!!

Kristín Birna (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 10:34

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Það er einmitt málið, ég sakna þess að fá ekki epli, banana, kjúklingaskinku og myoplex miklu meira en súkkulaðis.  Maður kann að meta fjölbreytnina eftir svona einhæft mataræði.

Bara 4 dagar eftir.... við meikum það alveg. 

Við verðum glæsilegar á sviðinu !

Ragnhildur Þórðardóttir, 20.11.2007 kl. 10:53

3 identicon

Hehe já ég er sammála þessu, fæ mér nú reyndar rúsínur út á grautinn minn, er alltof mikill sælkeri til að sleppa einhverju sonna. Annars hlakka ég mest til eins og þú segir að hvíla brennsluna og fara að lyfta almennilega og einbeita sér að því.

Gangi ykkur vel;)

Jana (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 14:12

4 identicon

Það er svo gaman að fylgjast með ykkur agasömu dugnaðarkonur. Gangi ykkur vel og njótið rauðvíns og alls hins besta eftir á.

Fjóla Þorsteins (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 21:46

5 identicon

já, það verður gott að fá allt þetta í magann fyrir þig, ég borða þetta á hverjum degi...múahahahaha...nema kannski ekki rauðvínið...gangi þér vel.

alva (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 01:09

6 identicon

"Að fá aftur Myoplex með kaffidufti og karamellusírópi (sykurlausu auðvitað)" Er þetta venjulegt vanillu Myoplex?  Hversu mikið kaffiduft og síróp notarðu?

Eins með hafragraut með próteininu... hvernig og hversu mikið prótein og blandarðu því út í heitan graut eftir eldun eða kaldan graut?

Guðrún (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 548858

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband