Montinn Nagli

Naglinn er að kafna úr monti núna. Tók bekkinn með Jóhönnu aftur á mánudaginn var, og aftur maxaði kellingin. Loksins náði Naglinn að bekka draumaþyngdina almennilega, 60 kg, þrisvar sinnum án nokkurs spotts. Jóhanna er auðvitað jötunn, enda Íslandsmeistari á ferð, svo hún var að bekka 80-100 kg án þess að blása úr nös. Við stöllurnar vöktum greinilega athygli nærstaddra, því þar sem við erum í dýfunum í dag (með lóðabelti auðvitað), segir Sölvi Fannar (þjálfari í WC) við okkur: "Stelpur, þið eruð rosalegar. Ég frétti af ykkur í bekknum á mánudaginn. Strákarnir hættu víst allir við að taka bekkinn þegar þeir sáu þig taka 60 kg, og Jóhönnu taka 80-90 kg". Svo sneri hann sér að kúnnanum sínum og sagði: "Þær voru að taka rosalegar þyngdir þessar tvær, þessi tók 90 kg og hin tók 60 kg". Þá sagði kúnninn: "Já ég var búin að frétta af þeim". Þetta fannst okkur vinkonunum nú ekki leiðinlegar athugasemdir. Jóhanna er nú orðin vön þessari athygli en Naglinn er í skýjunum að hafa verið nefndur líka, enda búin að berjast við að ráða almennilega við þessa þyngd í langan tíma. Þá er líka eins gott að fólk tali um það út í bæ....hhhmmm

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtileg síða :)

Ákvað að kasta kveðju á þig þó að þú þekkir mig ekkert, en bið innilega að heilsa Jóhönnu :)

Kveðja frá Kef, Helga E

Helga Einars (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 20:25

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæl Helga! Takk fyrir það.  Ég skila kveðjunni til Jóhönnu.  Þekkirðu hana semsagt?  Ertu kannski í löggunni líka?

Ragnhildur Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 09:46

3 identicon

Djö er ég ánægð með þig stelpa, svona á að gera þetta! :)

ingunn (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 10:25

4 Smámynd: M

Krafturinn í þér og sjálfaginn kona. Öfundsvert.  Var að lesa þarsíðustu færslu þar sem ég er að ganga í gegnum það sama  að buxurnar þrengjast frekar en víkka eins og ég vil. Skil vel að æfingarnar eru að hafa þau áhrif að vöðvarnir stækka, en fitulagið hverfur lítið, þá sérstaklega á mallanum   Er of góð við mig matarlega séð og þá helst um helgar, en maður verður líka að leyfa sér það, annars er þetta ekkert gaman

Kíki oft á síðuna þína mér til gamans, mætti þér í wc um daginn og næstum búin að heilsa þér hehehehe Svona eins og þulurnar í sjónvarpinu, allir þekkja þær en þær ekki á móti.

 Bumbukveðja

M, 31.1.2008 kl. 12:24

5 identicon

Glæsilegt hjá þér skvísa!
Ekki leiðinlegt að vera milli tannanna á fólki yfir svona afrekum

Ingunn Þ. (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 12:43

6 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir það skvísur .  Nú er það bara að sýna afrekin á almannafæri.... hhmm Ingunn Guðbrandsdóttir, ertu ennþá geim í Bekkpressukeppni?  Það er ein 17. mars sem ég hef augastað á.

M!  Af hverju heilsaðirðu mér ekki?   Það er svo gaman að sjá andlitin á lesendum síðunnar.  Lofaðu að heilsa mér næst .

Ragnhildur Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 13:14

7 Smámynd: M

Lofa því, fjandans feimnin að flækjast fyrir manni

M, 31.1.2008 kl. 13:34

8 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já út í hafsauga með hana.... alls ekki vera feimin við Naglann .

Ragnhildur Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 13:47

9 identicon

Hæ aftur,

Já þekki hana, toppmanneskja :) já og við vorum að vinna saman í löggunni í Kópavogi 2005.

Kv, Helga

Helga E (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 05:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 549057

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband