Tzatziki sósa

Hér er einfaldasta uppskrift í heimi að bestu sósu í heimi sem passar með öllu í heimi.  Kjúlla, fiski, grænmetisréttum, nautakjöti.... nefndu það bara.  Og ekki spillir hollustan fyrir, en hún er nánast fitulaus og hitaeiningasnauð. 

 1/2 lítil dós hreint KEA skyr (í bláu dollunum)

1/2 lítil dós Mjólku Sýrður rjómi (í appelsínugulu dollunum)

1 bréf Græsk krydd frá Knorr (fást 3 í pakka í grænmetisdeildinni í Hagkaup) 

Öllu hrært saman.

Geymist í kæli og er í góðu lagi í allavega 1-2 vikur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Hef einmitt notað þetta krydd og mallað það saman við AB mjólk.  Líka holl og góð, ef ekki hollari en þín

M, 19.2.2008 kl. 13:56

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Mér finnst hún verða svo þunn ef ég nota AB mjólk og þess vegna nota ég frekar skyrið og blanda því við sýrða ef ég er "Off season" en bara í skyr ef stutt í mót.  Finnst hún verða svolítið súr ef bara skyr, en læt mig hafa það samt ef ég er að skera .

Ragnhildur Þórðardóttir, 19.2.2008 kl. 14:06

3 Smámynd: Audrey

Mmmm þetta er svo gott - sérstaklega með gulrótum

Audrey, 19.2.2008 kl. 14:42

4 Smámynd: M

Tengdó benti mér einmitt á að sía hana í kaffipoka, þá þykknaði hún aðeins. En sammála að hún sé of þunn.  Annars þyrfti ég að SKERA stórt en hef ekki alveg  agann

M, 19.2.2008 kl. 15:08

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já ég reyndi einu sinni kaffipoka dæmið en það heppnaðist ekki alveg nógu vel hjá mér, enda hafði ekki þolinmæðina að bíða .

Ragnhildur Þórðardóttir, 19.2.2008 kl. 15:32

6 identicon

Svo er líka ógó gott að hræra smá púrrulaukssúpu (bara duftið sko;) ) út í létt sýrðan rjóma og nota sem sósu eða ídýfu ;)

Nanna (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 20:08

7 identicon

Góð hugmynd, en er msg í þessu Knorr?

Lokka (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 549136

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 87
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband