Þú ert það sem þú borðar

Það er engin tilviljun að af þeim sem Naglinn hefur aðstoðað með að breyta útliti líkama síns, eru það þeir sem hafa verið duglegastir í mataræðinu sem hafa náð lang bestum árangri.

Hið sama gildir um þá fjölmörgu sem Naglinn hefur lesið um í tímaritum og á netinu og hafa náð eftirtektarverðum árangri. Undantekningarlaust hefur þetta fólk náð markmiðum sínum með skotheldu mataræði í bland við gott æfingaprógramm.

Það er alltof hátt hlutfall af ræktarmeðlimum sem halda að allt snúist um æfingarnar.
Vissulega er mikilvægt að æfa en mataræðið er enn mikilvægari breyta. Hægt er að skipta mataræði, hreyfingu og hvíld upp í hlutfall af árangri, þar sem mataræðið er 80% og hreyfingin 20%. Þú ert ekki að gera heilsunni, þrekinu eða útlitinu neinn greiða með því að troða óhollustu í þig 2-3 daga í viku.
Það er vonlaust að ætla að bæta fyrir slíkar átveislur með hreyfingu.

Alltof margir telja sig borða hollt en lauma upp í sig kexkökum og súkkulaðimolum í kaffitímanum, þamba gos á kvöldin og sleppa sér svo um helgar í sukkinu. Það er enginn að sega að þú þurfir að japla á brokkolí allan ársins hring til að vera “fitt” og hraustur. Við þurfum öll að smjatta á pizzu, súkkulaði og dreypa á rauðvíni eða gosi af og til og það er í góðu lagi að leyfa sér slíkan munað.
En það er ekki lengur hægt að tala um munað, heldur svindl og sukk þegar slíkur matur er farinn að teygja sig langt út fyrir 1-2 máltíðir á viku. Þegar jafnvel heilu dagarnir orðnir undirlagðir af sukki þá er það ekki vigtin sem er með mótþróaþrjóskuröskun heldur eru það matarvenjurnar sem koma í veg fyrir fitutap og/eða vöðvastækkun og útlitið breytist lítið sem ekkert.

Það er vissulega hægt að halda sér í skefjum með því að æfa en sé markmiðið að breyta útliti sínu til hins betra, hvort sem það er að missa fitu og/eða bæta á sig vöðvum, er ekki nóg að mæta bara í ræktina, við þurfum að standa okkur við matarborðið líka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er svo sammála þér! Í mínum huga þarf algjöra lífstílsbreytingu til þess að halda sér fitt!  Borða rétt, æfa rétt, sofa nóg og hugsa vel um líkama og sál!  Það er allt í lagi að leyfa sér eitthvað stundum, en það er nú bara einu sinni svo að þegar maður gerir það líður manni bara ekkert betur á eftir!

Nanna (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 19:18

2 identicon

Takk fyrir þetta! Ég er búin að vera lasin í viku og þegar maður er veikur þá má maður  en það er erfitt að hætta! Gott að fá svona búst fyrir nýja viku

Snjólaug (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 20:59

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Nanna! Nákvæmlega, þetta snýst allt um lífsstíl, að vera hollur alla daga og allar nætur.  Svo sukkar maður auðvitað pínu inn á milli til að halda sönsum, en eftirvæntingin eftir sukkinu er oft meira spennandi en aðgerðin sjálf, svo ekki sé talað um afleiðingarnar .

Snjólaug!  Gott að þér er batnað.  Ekki spurning að koma sér á beinu brautina aftur.  Gangi þér vel!

Ragnhildur Þórðardóttir, 30.6.2008 kl. 11:40

4 identicon

Þetta er örugglega alveg rétt hjá þér Ragga. Ég hef verið massíft dugleg í ræktinni, mætt alveg 5-6 sinnum í viku, en leyft mér að sukka ansi vel. Enda er það þannig að það hefur tekið mjöööög langan tíma að sjá breytingu á líkamanum. En ég verð að segja að mér finnst mun erfiðara að breyta mataræðinu heldur en að taka sig á í hreyfingunni. Það er svo oft í hugsunarleysi að maður grípur kex með kaffinu eða gos á kvöldin. Einhver góð ráð til að venja sig af þessum ósið?

Kristín (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 16:17

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð Kristín!  Frábært að heyra hvað þú ert dugleg í ræktinni.  Mataræðið skiptir alveg rosalega miklu máli ef ætlunin er að skafa af sér og bæta við vöðvum.  Eina ráðið sem ég hef er að þú hugsir um hversu mikið þig langar til að breyta útlitinu.  Er sú löngun sterkari en löngunin í þessa kexköku í kaffinu?  Vilji er allt sem þarf, sterkur vilji elur af sér sjálfsaga og skipulagningu.  Vertu alltaf tilbúin með hollan bita svo þú freistist ekki í samlokur, kökur og kex.

"Nothing tastes as good as looking good does."

Ragnhildur Þórðardóttir, 1.7.2008 kl. 09:04

6 Smámynd: Ásta Kristín Norrman

Sæl Ragnhildur og takk fyrir fróðlega og góða síðu. Ég er ein þeirra sem er búin að eyðileggja brennsluna með matarkúrum. Síðastliðin 10 ár hef ég stundað mismunandi átaksnámskeið, oftast undir stjórn fólks sem telur sig vita hvað það er að tala um. ég hef borðað frá 1000 - 1300 kcal á dag og æft stíft. Gengið vel í nokkrar vikur, en dottið svo í nammigryfjuna og legið þar nokkra daga og uppí vikur. Ég hef þó alla tíð verið dugleg í ræktinni. Ég fékk því sjokk þegar ég fór í fitubrennslumælingu í vor og sá að ég lá langt undir í vöðvamassa þrátt fyrir að ég æfði nokkuð vel. ég varð svo reið, að ég ákvað að strunta í allt sem hét aðhald í mat og borðaði það sem mig datt í hug í 1 mánuð. á þeim tíma missti ég þó 0,6 kg fitu og bætti á mig tæpum 2 kílóum af vöðvum. Eg hef haldið þessu áfram undanfarið, ég hef að vísu ekki fitumælt mig aftur, en ég finn að ég er farin að bæta á mig fitu aftur. Mig langar ekki til að fara útí kaloríutalningu aftur, en veit ekki nema ég verði að gera það.

Mér finnst vanta mikið ráðleggingar sem er eitthvað vit í. Ég veit til dæmis með mig, að ef ég borða 1300 kcal á dag og æfi eins stíft og ég geri, þá missi ég vöðva. ég æfi á hverjum degi. tek body pump x4 í viku, body balance x 2, body jam x 1, to the core x 3, spinning x 4. Ætti ekki að vera nóg fyrir mig að bara borða hollan mat og forðast hröð kolvetni?

Ásta Kristín Norrman, 7.7.2008 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 23
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 548877

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband