"neðri" magi....

Kviðvöðvar eru vöðvakeðja sem ná frá nára upp í viðbein, og skiptast ekki í efri og neðri kvið eins og margir halda.  Einn kvenkyns lesandi síðunnar benti þó réttilega á að kviður kvenna er oft "öðruvísi" en karla.  Þó ekki sé hægt að tala um "efri" og "neðri" kvið, þá erum við kvensurnar oft í meiri vandræðum en karlar með svæðið neðan nafla.  Flestar könnumst við við þessa leiðinda bumbu fyrir ofan nærbuxnastrenginn, stundum kallað "muffin top" Pinch.  Þetta svæði er aðal fitusöfnunar svæði kvenna og með bættu mataræði og hreyfingu minnkar þetta vandamál yfirleitt í kjölfar fitutaps.  

Það má samt gera æfingar sem fókusa á þetta svæði og sú besta í þeim hópi að mati Naglans eru öfugar crunches.  

Hér kemur myndband af þeirri æfingu:  

 

Eins og með allar kviðæfingar er mikilvægt að spenna kviðinn vel í gegnum alla æfinguna og virkilega einblína á að nota kviðvöðvana til að koma sér í gegnum hreyfinguna. 

Það er einnig mjög mikilvægt að styrkja mjóbakið á móti kviðvöðvunum til að toga á móti og fá heildarstyrk í miðjuna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða æfing er þá best í að styrkja mjóbakið og hvaða æfing er best á hliðar magavöðvana eða hvað þeir heita? Annars frábær síða og hafsjór af fróðleik:)

hrannar (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 13:58

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Sæll Hrannar, takk fyrir hrósið og fyrir að kíkja í heimsókn á síðuna.

Þú þjálfar mjóbakið með deadlift,hnébeygjum og æfingu sem heitir Rack-pulls sem er svipuð og deadlift nema hærri staða á stönginni til að einangra mjóbakið. Eins geturðu tekið meira einangrandi æfingar eins og hyperextension af skábekk.

Varðandi hliðarvöðvana (obliques) þá mæli ég ekki með að æfa þá beint. Vaxtarræktarmenn æfa ekki þessa vöðva því þeir vilja ekki þykkt mitti. Fókusaðu frekar á kviðinn að framanverðu.

Ragnhildur Þórðardóttir, 15.1.2009 kl. 08:36

3 identicon

takk fyrir svarið en geturu útskýrt nánar hvað er Deadlift, Rack pulls og hyperextension.

hrannar (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 15:30

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Getur séð myndbönd af þessum æfingum á youtube.com. Settu bara nafnið á æfingunni í search ;-)

Ragnhildur Þórðardóttir, 15.1.2009 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 548855

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband