Samsetning næringarefna og hitaeininga fyrir fitutap

 Fyrir fitutap:

* Heildarinntaka hitaeininga = Líkamsþyngd margfölduð með 24
 
gæti þurft að droppa þessari tölu niður í 22x eða 20 x ef enginn árangur næst eftir nokkrar vikur.  Ágæt regla er að taka mælingar á 2ja vikna fresti. Fólk í mikilli yfirþyngd getur notað LBM í stað líkamsþyngdar.  

* Prótín = 2g per kg líkamsþyngd
(4 hitaeiningar per gramm)
 
* Fita = 0,8g - 1g per kg líkamsþyngd

(9 hitaeiningar per gramm)
Jamm jamm góða fitan er gagnleg í fitutapi

* Kolvetni = hvað sem er eftir til að mæta heildarinntöku hitaeininga dagsins
(4 hitaeiningar per gramm)


Forðast fitu í eftir æfingu máltíðinni, hún á að innihalda hraðlosandi kolvetni og prótín í hlutföllunum 2:1.
 
Tekið úr Oxygen.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Merci beaucoup
En hversu miklu máli skiptir það hversu miklu maður brennir á æfingu í samhengi við hvað maður borðar margar kaloríur yfir daginn?

Óli Jóns (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 14:04

2 identicon

Díses kræst!

Ég má sem sagt skv. þessu ekki innbyrða nema tæpar 1500 kcal ef ég stefni á fitutap. Það er nú andsk... ekki neitt!

Ojbarasta, líst ekkert á þessa útreikninga

Helga ókunnug (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 15:50

3 identicon

Þetta vefst alltaf svolítið fyrir mér ekki það að margfalda þyngdina mína með 24 sem er 1800.  Heldur hvernig ég held mig við þessar 1800 hitaeiningar.  Skipta þessu uppí 5-6 máltíðir sem sagt um 300 hitaeiningar per máltíð.  En er ekki til einhver tafla sem að sýnir manni hvað eru margar hitaeiningar í hinu og þessu.  Eða er kannski einöld aðferð að reikna það út?

sas (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 00:59

4 identicon

http://www.lydheilsustod.is/fraedsla/fraedsluefni/naering-holdafar/nr/265

Hérna eru mjög góðar töflur um innihaldslýsingu, en persónulega finnst mér best að notast við www.hot.is, þar er þetta allt bara reiknað fyrir mann ;)

Óli Jóns (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband