Hnetusmjörs Soja Kjúlli

Hnetusmjörs Soja Kjúlli

2 msk náttúrulegt hnetusmjör (eða skammturinn þinn)
2 msk sojasósa
1 tsk ólífuolía
½ -1 msk sítrónusafi
1-2 hvítlauksrif, saxað smátt
½ chilli saxað (má sleppa)

Hrærið allt saman á vægum hita í potti.
Skerið kjúklingabringu í bita.
Marinerið kjúklinginn uppúr sósunni í 1-2 klst í ísskáp og grillið eða bakið.
Má líka nota sem sósu til hliðar með krydduðum kjúkling.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ummm prufa þetta:)

Mig langaði að sp þig hvernig ég fer að því að missa 4-5kg á 1 mánuði,lumaru ekki á einhverju góðu ráði sem ég get nýtt mér.

annars takk fyrir frábæra pistila ,hef gaman af því að skoða síðuna þina:)

sandra (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 12:57

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Já... koma í þjálfun til mín LOL.

Fitutap kemur nær eingöngu í gegnum mataræðið, æfingarnar styðja aðeins við það ferli. Passaðu mataræðið, stundaðu styrktarþjálfun til að auka grunnbrennsluna, og brennsluæfingar til að búa til kaloríuþurrð, passaðu að fá nægan svefn og taka vítamín + fitusýrur.

Gangi þér vel.

Ragnhildur Þórðardóttir, 27.4.2009 kl. 13:31

3 identicon

Mmmm spennandi! Vantaði einmitt e-a góða kjúllauppskrift :D

Theó (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 19:01

4 identicon

Nammi nammi namm :)

Eldaði þennan rétt nú í kvöld og OMG hvað þetta er gott - en ekkert megrunarfæði ;)  Hvað borðar þú með kjúklingnum? 

Soffía Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 19:47

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Af hverju segirðu að þetta sé ekki megrunarfæði? Ég pósta ekkert sem er ekki "löglegt" í megrun. Ég nota hnetusmjör rosalega oft með kjúlla.

Ragnhildur Þórðardóttir, 29.4.2009 kl. 07:40

6 identicon

Ég vigtaði hnetusmjörið og í 2 msk voru ca 35 g, það eru uþb 200 hitaeiningar (mitt hnetusmjör 560 he/100g), í 1 tsk af olíu eru um 40 hitaeiningar.   Það eru 240 he, mest fita (auðvitað prótein líka úr hnetusmjörinu).  Persónulega finnst mér það dáldið mikil fita (og orka) - þó góð sé.  Síðan bætist kjúllinn við og meðlæti (ég notaði bankabygg og brokkólí).  En þetta er auðvitað spurning um magn af hnetusmjörinu sem er gríðarlega orkuríkt (og aaaaalllt of gott á bragðið, ég á í vandræðum með að stýra magninu)  

Soffía (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 09:06

7 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hitaeiningarnar eru að koma úr góðu fitunni, og hana þurfum við í mataræðið. Fólk þarf mismikið af fitu og hitaeiningum eftir þyngd, stærri líkami = fleiri he og grömm af fitu. Algengustu skammtarnir eru á bilinu 15-30 grömm hnetusmjör. Ef við pössum skammtinn af hnetusmjöri þá er þetta alls ekki óhollt. Meðlætið bætist auðvitað við, nema ef þetta er borðað með salati, þá bætist ekkert við ;-)

Ragnhildur Þórðardóttir, 29.4.2009 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 549118

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 78
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband