Þú veist að þú ert að taka vel á því þegar....

Þú sannfærir sjálfa(n) þig að sleppa siðasta repsi/setti/spretti – en klárar samt, annað eru helgispjöll

Þú hjólar heim eftir massífa fótaæfingu og börn og gamalmenni þeysast fram hjá þér

Það eru virkileg átök að blása hár og bursta tennur eftir að hafa lyft efri part

Það er á mörkunum að þú getir labbað niður stigann í búningsklefann eftir fótaæfingu

Daginn eftir fótaæfingu kjagarðu eins og fanginn í sturtunni

Þú lætur þig síga hææægt á klósettsetuna daginn eftir fótaæfingu - þú notar jafnvel fatlaða-klósettið

Þú rymur og stynur eins og berklasjúklingur í síðustu repsunum

Þú þarft að fara á “the happy place” í huganum til að geta klárað settið

Börn fara að gráta þegar þau sjá afskræmt andlit þitt í síðustu repsunum

Þú heldur áfram að svitna þó að þú sért búin(n) í sturtu og komin(n) í fötin

Andlitið er ekki rautt heldur purpuralitað eftir æfingu

Súrefnisgríma kemur sterklega til greina eftir sprettæfingu

Þú veltir því fyrir þér í miðjum spretti hvort einhver hafi látið lífið við að gera HIIT


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru harðsperrur mælikvarði á því hvað maður tekur vel á því?  Ef svo er þá verð ég að fara að hrækja í lófana því ég er eiginlega alveg hættur að fá harðsperrur.  En allavega góð síða hjá þér og alltaf gaman að lesa pistlana frá þér.  Er meiri segja byrjaður að lesa gömlu pistlana aftur þegar að mig vantar upplýsingar.

Siggi (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 14:56

2 identicon

Já sama hér, er eiginlega hætt að finna harðsperrur, en þær koma alveg af og til. En er yfirleitt rauð i framan , en svitna lítið spurning einmitt hvort maður þarf að fara spýta í lofana

En má ég spyrja þig í sambandið við fituprósentu hva er svona hagstæðast að vera? milli 15-18% ? er 27ára gömul

en átt hrós skilið, bara góð síða

Sigrún (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 21:06

3 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Jóhanna! Það er alveg eðlilegt að fá harðsperrur dauðans eftir fyrstu vikurnar á nýju prógrammi. Ég fæ alltaf hrikalegar þegar ég skipti um prógramm. Þú stendur þig vel stelpa.

Siggi! Takk fyrir hrósið :-) Harðsperrur eru ekki endilega mælikvarði á hvað þú tekur á því, en þú ættir samt að finna fyrir æfingunni í vöðvunum daginn eftir. Ef þú ert alveg hættur að fá nokkra strengi þá er líklega kominn tími á að skipta um prógramm. Líkaminn er svo fljótur að aðlagast nýju áreiti. Það er lykilatriði að skipta um prógramm á c.a 6 vikna fresti.

Sigrún!

American Council on Exercise hefur flokkað eðlilega fituprósentu fyrir konur eftirfarandi:

Nauðsynleg fita (til að lifa af): 10-13%

Íþróttafólk: 14-20%

Fitness: 21-24%

Ásættanlegt: 25-31%

Offita:; 32% +

Að mínu mati eru þetta ansi háar tölur, t.d eru flestar kvk keppendur í fitness og vaxtarrækt mun lægri í % en þarna stendur. Fituprósenta er frekar óáreiðanleg mæling, og ýmsar breytur sem geta haft áhrif á niðurstöðuna t.d mælingatæki (klípa, rafræn vog o.fl), mælingamanni, tíma mánaðarins o.fl. Ég myndi fókusa meira á sentimetrana, fötin og spegilinn og hvar þér líður vel.

Ragnhildur Þórðardóttir, 8.5.2009 kl. 09:46

4 identicon

Jú ég verð svona aumur í vöðvunum við og við og þá sérstaklega þegar að ég fer á nýtt prógramm.  Og þið sem að hafið ekki skipt um prógramm eða róterað aðeins þá ættu þið að prófa það. 

En annað Ragga fyrst að það var talað um fituprósentu.  Þá langar mig að spyrja þig hvað er eðlilegt að léttast mikið þegar að maður fer að skera sig er sjálfur 170 cm og 77 kg.  Er hræddur um að fara í eitthvað major cut þar sem að ég er að rembast við að koma mér uppí 80 kg. 

siggi andri (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband