Pumpaðu járnið til að fyrirbyggja krabbamein

Hollur matur og þolþjálfun eru ekki eini mátinn til að fyrirbyggja krabbamein.

Niðurstöður nýlegrar rannsóknar sem framkvæmd var við Karolinska spítalanum í Stokkhólmi sýndu að menn geta minnkað líkur á krabbameini um allt að 40% með því að rífa í járnið af krafti. Tæplega 9000 karlmönnum var fylgt eftir frá 1980 til 2003. Þessar niðurstöður breyta fyrri ráðleggingum sem flestar hafa beinst að þolþjálfun til að minnka líkur á krabbameini: hlaupum, hjólum o.s.frv.
Það er því jafn mikilvægt og gagnlegt að pumpa lóðin, eins og að borða hollt og stunda þolþjálfun til að fyrirbyggja krabbamein.
Meira að segja menn í yfirþyngd sem stunduðu styrktarþjálfun ákaft voru ólíklegri til að fá krabbamein en menn í kjörþyngd sem ekki stunduðu styrktarþjálfun.

Það er ekki nauðsynlegt að æfa eins og vaxtarræktarkappi og djöflast í stærstu lóðunum. Það er nóg að lyfta lóðum, svitna og fá púlsinn upp. a.m.k 2 sinnum í viku, eða í 30 mínútur 5 sinnum í viku,

Rannsóknin bíður birtingar í tímaritinu Cancer Epidemiology, Biomarkers and Prevention.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir æðislega síðu !

Ég er búin að eyða undanförnum dögum í að lesa allar færslur sem þú hefur skrifað og ég er orðin svo marfalt fróðari um líkamanna og hvað á að gera og hvað ekki. 

Núna er ég talsvert yfir kjörþyngd og þyngdist um heelllling þegar ég var ólétt, núna er ég að vinna í að ná þessu af mér og ég er komin með áhuga á að stunda líkamsrækt bara með þvi að hafa lesið bloggið þitt:)

Ég er farin að skrifa dagbók, komin með matarplan og æfinarplan og núna á sko að taka á því :)

Takk enn og aftur fyrir æðislega síðu og takk fyrir að vera svona mikil hvatning ! :)

Linda Rut (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 10:32

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hæ Linda Rut. Frábært að heyra að skrifin mín hafi blásið þér baráttuanda og metnað í brjóst. Mundu að fitutap kemur fyrst og fremst í gegnum mataræðið, vertu extra dugleg þar og þá kemur þetta. Gangi þér vel!

Ragnhildur Þórðardóttir, 28.5.2009 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 549128

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband