Ávaxtasafar....sykurbombur í felulitum

Ávaxtasykur finnst í miklu magni í djús/safa. Flestir safar innihalda 8-10 grömm af sykri í einu glasi (200 ml).
Ávaxtasykur hefur aðra efnafræðilega samsetningu en strásykur en báðir virka eins á líkamann: of mikið magn er fitandi.

Eitt glas á dag er algjört hámark. Fyrir kyrrsetufólk sem ekki hugsar mikið um mataræðið ætti að takmarka neyslu við nokkur skipti á viku.

Skársti kosturinn er safi með ávaxtakjöti, því þegar það er sigtað frá fjarlægjast mikilvæg snefilefni og vítamín.
Mælt er með að fólk borði frekar ávexti en að drekka safa. Safar metta ekki eins vel og ávextir. Maður er líka miklu fljótari að fá alltof mikinn ávaxtasykur í gegnum safadrykkju en að borða ávexti. Fæstir borða 6 appelsínur í einu, en eiga ekki í vandræðum með að slurka í sig safa frá 6 appelsínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Soffía

Af því að ég er ólétt og hef misst lyst á mörgu sem mér þótti gott þá hef ég verið að fá mér eina máltíð á dag sem hljóðar svo: 2 kreistar appelsínur, jarðarber, bláber og svo mismunandi hvað ég á en yfirleitt ananas/mangó/blandaðir suðrænir ávextir og mauka þetta svo í blender ásamt klökum ef ég vil hafa þetta næstum frosið.  Er ég að rústa matarræðinu með þessu?   - vona ekki. 

Soffía, 29.5.2009 kl. 01:25

2 identicon

Nei þú ert ekki að rústa mataræðinu með þessu Soffía. Langt frá því.Þú ert með trefjarnar í bústinu, það er ekki það búst og safi. Safinn er bara vökvinn úr ávextinum en bústið gefur þér allan ávaxtasafann.

Ragga þú ert flott, ég er ekkert alltaf sammála þér en mér finnst gaman að lesa það sem þú skrifar :-)

Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 09:46

3 identicon

vá hvað setningarnar fóru í rugl... Ég átti við að það er ekki það sama - búst og kreistur safi því þú heldur öllum eiginleikum ávaxtarins í bústinu en ekki í safanum.

Spurning um að fara réttum megin fram úr á morgnanna :-)

Unnur Björk Arnfjörð (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 09:48

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Vatn er drykkur dagsins Jóhanna. Ég mæli ekki með neinu öðru með matnum, nema þá kannski rauðvínsglasi um helgar ha ha...

Soffía, nei þú ert ekki að rústa mataræðinu - þú ert að nota heila ávexti sem er allt annað mál.

Unnur, það er bara hressandi að þú ert ekki alltaf sammála mér, fólk hefur mismunandi skoðanir og meiningar um allt. Takk fyrir innlitið og kvittið.

Ragnhildur Þórðardóttir, 29.5.2009 kl. 11:13

5 identicon

Hvað með hreint sódavatn einsog hvítan topp eða bláan kristal er það eitthvað sem þarf að drekka í hófi?  Ég drekk eflaust 1/2 til 1 lítra á dag og þess fyrir utan vatn og kaffi.  Er það eitthvað sem ég þarf að endurskoða?

Lesandi (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 548854

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband