Rabarbarapönnsur...it's a vegetable

4 eggjahvítur (magni má breyta)
40g haframjöl (magni má breyta)
1 bolli rabarbari saxaður
1 matskeið mysuprótín með hindberjabragði

Blanda eggjahvítum, haframjöli og prótini saman í blandara. Á meðan bæta smá vatni við rabarbarann og hita í potti eða í örbylgju. Stappa rabarbarann með gaffli og bæta út í blandarann.

Hella á heita pönnukökupönnu. Snúa við eftir 2-3 mín eða þegar komnar loftbólur á efri hliðina. Baka á hinni hliðinni í 1-2 mínútur.

Rosa gott með jarðarberjum ofan á.

P.S vissuð þið að rabarbari er grænmeti en ekki ávöxtur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hólí móli, alla malla, var einmitt að horfa á rabbarbarafrumskóginn fyrir ofan mig, nú skal blásið til veislu

Takk, takk

Vala Árnadóttir (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 15:54

2 identicon

Mig langaði að spurja hvort að þú ættir einhver góð ráð við sykurlöngun... og hvað á maður að drekka marga próteinshakea á dag og hvað er besta próteinið þegar maður ætlar að grennast?

með fyrir fram þökk:)

Óla (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 18:37

3 identicon

Hvar kaupirðu svona prótein? Það er talsvert farið að lækka í súkkulaðiprótein dallinum hjá mér nefnilega! ;) Sá bara jarðarber vanillu og súkkulaði þar sem ég keypti síðast.

Hólmfríður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 00:53

4 identicon

Annars góð hugmynd, ég á einmitt fullt af rabarbara inní frysti og þetta er eina holla uppskriftin sem ég hef rekist á með rabarbara í, svei mér þá! :)

Hólmfríður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 00:53

5 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Óla! með því að borða reglulega yfir daginn heldurðu blóðsykrinum stöðugum sem kemur í veg fyrir sykurlöngun. Hreint mysuprótín er það sem ég mæli alltaf með.

Hólmfríður! Kaupi mitt frá Scitec. Getur örugglega líka notað jarðarberja eða vanillu.

Ragnhildur Þórðardóttir, 9.7.2009 kl. 12:56

6 identicon

sælar

ertu alveg alveg alveg viss um að rabbabari sé grænmeti.? því í minum kokkabókum er hann ávöxtur og á netinu sem ég goggglaði er hann ávöxtur!!

en p.s alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt. ætla svo að byrja hjá þér von bráðar eftir sumarið;)

heba maren (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 85
  • Frá upphafi: 549147

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 80
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband