Bölsót frá Naglanum yfir vigtinni....viðkvæmir lokið augunum

Af hverju skiptir líkamsþyngd þig svona miklu máli?
Hvað segir líkamsþyngd þér? Hún segir þér hvað þú ert þung(ur).
Hver veit hvað þú ert þung(ur)? Þú! Öllum öðrum er alveg sama hvað þú ert þung(ur).

Hver eru markmiðin þegar kemur að þjálfun og mataræði? Í flestum tilfellum er það fitutap… eða er það bara þyngdartap. Þetta tvennt er ekki það sama, og það þarf að borast inn í heilann á fólki svo það geti hætt að grenja í hvert skipti sem það stígur upp á hina ógnvænlegu vigt.

Hjá sumum er það eina sem skiptir máli í lífinu að sjá lægri tölu á vigtinni, alveg sama hvaðan þyngdartapið kemur. Alveg sama þó þú lítir nákvæmlega eins út.
Ef þér væri skítsama hvaðan þyngdartapið kemur þá hlýtur það að vera í góðu lagi að samhliða lýsinu fjúki vöðvarnir líka, sem þú eyddir blóði, svita og tárum til að byggja upp. Bara svo lengi sem helv…vigtin fari niður ekki satt??
Neeeiiii…Þú hlýtur að vilja fókusa á FITUtap ekki ÞYNGDARtap. Hvað segir vigtin þér? Hún segir þér eingöngu hvað þú vegur í það skiptið sem þú drattast upp á hana. Hún segir þér ekkert um samsetningu líkamans, líkamsfitu, vöðvavef eða nokkuð annað.

Hjá sumu fólki er sú tala sem poppar á skjáinn mikilvægari en Icesave samningurinn. Af hverju??? Þetta skilur Naglinn ekki.

Það veit enginn hvað þú ert þung(ur), talan verður ekki brennimerkt á ennið á þér eftir hverja vigtun. Hvað notar fólk til að meta útlit þitt? Samsetningu líkamans – vöðvar, líkamsfita o.s.frv – EKKI þyngdina þína. Fólk veit hvort þú sért í formi eða ekki, ef þú lítur vel út eða ekki út frá…tja út frá því hvernig þú lítur út

Segjum að þú missir 2 kg af fitu. Jibbííí
Segjum að þú bætir á þig 2 kg af vöðvum. Það er rosalegur árangur.
En ó nei!!! Talan á vigtinni er sú sama. Nú hefst grátur og gnístran tanna og allt ómögulegt.
Þú ert “loser baby, so why don’t you kill me”

Eða hvað?? Það sem virkar eins og enginn árangur á vigtinni er samt munur á útlitinu um heil 5 kg. Er það ekki annars markmiðið með æfingunum? Að LÍTA betur út?
Mittið er mjórra, mjaðmirnar hafa minnkað, lærin hafa hopað, fötin passa betur, vinir og fjölskylda hrósa þér. En vigtin hefur ekkert haggast….hhhmmm… enginn árangur í þínum huga af því að einhver heimskuleg tala sem gubbast út úr vigtinni segir að þú hafir ekki náð neinum árangri.

Komm on!!! Er ekki í lagi?? Auðvitað hefurðu náð árangri, og það helling.
Ef mælingarnar eru að fara niður þá ertu að missa fitu.
Ef þú ert minni um þig, fötin passa betur, spegilmyndin er ásættanlegri, og fólk að hrósa þér þá ertu að missa FITU. Fita er þyngd, ef þú ert að missa fitu þá ertu að missa þyngd. Ef þú ert ekki að missa þyngd samkvæmt vigtinni þá ertu að bæta einhverju á þig til að vega upp á móti fitutapinu. Hvað getur það eiginlega verið?? Gætu það verið vöðvar kannski eftir allar lyftingarnar?
Ertu að fara í gegnum hið yndislega ferli þar sem fitutap og vöðvabygging gerist samtímis….það er auðveldara að komast inn í Vatíkanið í mínípilsi en að komast í þetta ferli, og ef þú ert þar í guðs bænum njóttu þess!

Uppbygging vöðva (þyngd) er semsagt að vega á móti fitutapinu (þyngd). Er það ekki geggjað??
Hvað mótar útlit líkamans? Fitutap og vöðvauppbygging. EKKI bara þyngdartap til þess eins að sjá lægri tölu á vigtinni.

Hættu að tæta hár þitt af bræði ofan á vigtinni og byrjaðu að horfa á merki um að líkaminn líti betur út – mælingar, fituprósentu klípur, hvernig fötin passa, aukning í styrk, hrós frá fólki o.s.frv.
Er þetta skilið?? Ókei...gott!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Ragga, þúsund þakkir fyrir þennan pistil !!!!!  Ég er ein af þeim sem þola ekki þessa þrjáhyggju varðandi vigtina !!!!!  Það er alveg með ólíkindum hvað margir einblína á kvarða eins og BMI sem ganga út frá vigtinni. Góðir hlutir gerast hægt, erþaðekki ???

Jóhanna G. Ól (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 13:54

2 identicon

hahaha þú ert æði!!

það er ótrúlegt hvað maður hefur einmitt verið alinn upp í því að einblína á vigtina, leinti einu sinni í því að fjölskyldumeðlimur sem hefur þráhyggju gagnvart minni þyngd- sá anorexiusjúkling og hrósaði í hástert, vá hún er ekki nema 45 kíló o.s.frv. vissi svo ekki hvernig hún átti að vera nokkrum vikum seinna þegar grey sjúklingurinn var lagður inn á spítala. það er erfitt að læra að láta vigtina vera þegar maður er alinn upp á vigtinni, en guð minn eini hvað ég er sammála þér og hvað manni líður mikið betur þegar maður gleymir vigtinni í smá stund og er bara sáttur og ánægður með þann árangur sem maður hefur unnið til. 

takk fyrir flotta áminningu,

kv.Anna

Anna (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 15:39

3 identicon

Já sveimér þá það er eins og þú hafir fundið á þér atburði morgunsins hjá mér. Er búin að vera í góðum fíling með sjálfa mig undanfarið, búin að sjá fullt af árangri hér og þar, bæði í úthaldi, vöðvastyrk og fleira. Stíg svo á blessaða vigtina í morgun og viti menn, allt við það sama! Ég náttúrlega ranghvolfdi augunum yfir þessu, minnti mig svo á að ég VEIT betur - þarf ekki einhverja vigt til að segja mér hvað er í gangi. Málið er bara að það er svo ríkt í fólki að einblína á kg, kg og aftur kg og gleyma öllu um samsetningu líkamans. Fyrir mig sem hef aldrei rokkað mikið í þyngd, hef verið á sama 5 kg bilinu öll mín fullorðinsár og yfirleitt haggast ekki nema hálft kg til eða frá ert þá er þetta náttúrlega tóm vitleysa að búast við að það hrynji kg einn tveir og þrjúhundruð! Maður bara þarf að hrista þetta af sér og muna hvað vigtin segir manni raunverulega fátt um stöðuna.

Hólmfríður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 17:19

4 identicon

ég er einmitt ný búin að væla yfir þessari yndislegu vigt og þú lést mig heyra það... þannig ég er að læra,læra að láta hana ekki bogga mig eins mikið og hún gerir/gerði...

Frábær pistill og ekki hægt annað en að segja 

AMEN við honum !!!!

Heba Maren (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 18:10

5 identicon

Oh þetta er svo frábært :) Brenndi mig svolítið á þessu fyrst, en veit betur núna. Takk kærlega fyrir góðan pistil eins og alltaf, og alltaf koma þeir á réttum tíma :)

nafna (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 19:21

6 identicon

langaði að spyrja líka að einu, er að sveiflast milli lyftinga og hlaupa núna, er ég nokkuð að gera vitleysu með að skipta þessu bara niður, lyfta þrisvar og hlaupa þrisvar í viku?? Finnst geggjað að finna mun á mér í lyftingunum en líka að bæta tímann hjá mér :S

nafna (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 19:37

7 identicon

frábær pistill !!!!!

eins og alltaf :)

ótrúlega gaman að lesa bloggin frá þér :)

Thelma (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 20:42

8 identicon

Heyr heyr!

Jóhanna (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 23:27

9 identicon

Takk fyrir þennan pistil! Ég er ein af þeim sem horfi bara á vigtina og ekkert annað..... skil aldrei í að af hverju það fara svona fá kg eftir allt púlið hehe enn eftir að hafa lesið þennan pistil þá ætla eg að hlusta á minn innri mann og hætta að fara alveg eftir vigtinni.  Líka ef maður pælir í þvi eftir á þá eru flestar buxur mans orðnar víðar enn alltaf horfir maður á þessa vigt, alveg magnað.

Karen (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 09:03

10 identicon

Skilið !!! =)

Nanna (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 09:15

11 identicon

Snilld!!! Ég dett alltof oft í að horfa á viktina.. má ekki lyfta í korter þá þyngist ég ..... og pirrast svo.... shit hvað maður er ruglaður.... er búin að bæta fullt af massa á mig og þ.a.l. þyngd en passa samt enn í buxurnar

Hulda (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 09:48

12 identicon

já þessi helv..vigt!!!mjóg góð lesning.

En geturu sagt mér hver er besta brennsluæfingarnar og lyftu?

ólöf (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 11:07

13 identicon

Það ætti einhver að taka sig til, prenta þennan pistil út og setja upp á annan hvern ljósastaur í borginni, fólki veitir ekki af sparki í rassinn til að átta sig á raunveruleikanum!

Óli Jóns (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 14:54

14 identicon

Snilldar pistill hjá þér og mér leið svo vel að lesa hann!:) Vigt er e-ð sem hefur aldrei verið til heima hjá mér og hef ég alltaf verið móður minni þakklát fyrir það!:p Gerði þau mistök að stiga á vigtina um daginn og fékk sjókk, vinkona mín hálfskammaði mig meiraðsegja:)  En þar sem ég er orðinn miklu stinnari en ég hef nokkurn tímann verið áður gæti ég ekki verið sáttari þrátt fyrir kg töluna.  Það er stór hvatning að finna og sjá mun.

 En Ragga takk fyrir að svara fyrirspurnunum mínum, ætli maður endi svo ekki að lokum á biðlista hjá þér til að fá almennilega hjálp í sambandi við matarræði og kannski hreyfingu líka!:) hehe

Lórey Rán (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 23:42

15 identicon

Takk fyrir þennan pistil Ragga hann hvetur mig áfram er alltaf að einblína á helv vigtina

Margrét (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 07:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 548861

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband