20.7.2007 | 13:50
Sie mussen genug Wasser trinken
Tölfræði
Um 60-70% af líkamanum er vatn.
Mannskepnan getur lifað í nokkra mánuði án matar en aðeins í 3 daga án vatns.
Daglega tapar líkaminn 2-3 ltr af vatni frá húð, lungum og nýrum. Til þess að vinna upp þetta tap þarf venjulegur maður á að drekka að lágmarki 8 glös af vatni á dag. Annars konar vökvi vinnur ekki eins vel upp vökvatap líkamans og því ætti fólk að drekka hreint vatn í eins miklum mæli og hægt er. Þeir sem stunda líkamsrækt þurfa að drekka helling af vatni því líkaminn getur tapað 1-2 kg af vatni á einni æfingu. Missi líkaminn 2% eða meira af líkamsþyngd sinni af vatni hefur það hamlandi áhrif á vöðvastarfsemi.
Fólk sem æfir ætti að drekka nóg vatn fyrir, á meðan og eftir æfingu.
Pissi pissi piss
Ágætis aðferð (en frekar ógeðsleg) til að meta hvort maður drekki nóg af vatni er að athuga litinn á þvaginu. Ef það er dökkt þá er þörf á meiri vatnsdrykkju en glært þvag bendir til að vatnsneysla sé næg.
Af hverju að drekka vatn?
Hlutverk vatns í líkamanum er margþætt og spilar stórt hlutverk í nánast allri starfsemi líkamans.
Vatn skolar út aðskotaefnum, flytur næringarefni til frumna líkamans, viðheldur réttum líkamshita en líkaminn kælir sig með að losa vatn gegnum svita.
Vatn smyr liði og liðamót sem er mjög mikilvægt fyrir þá sem stunda íþróttir þar sem álag er á liði t.d hlauparar og lyftingafólk.
Við endumst líka lengur á æfingu og erum ekki eins þreytt þegar líkaminn er vel vökvaður.
Mikilvægur þáttur í fitubrennslu
Eðlilegur vatnsbúskapur stuðlar að eðlilegri blóðrás og nægt magn súrefnis er í líkamanum en nægt magn súrefnis í blóðrás er mikilvægt til að fitubrennsla eigi sér stað.
Nýrun sjá um að hreinsa vatnið af aðskotaefnum en ef vatn er af skornum skammti þá geta nýrun ekki sinnt þessu starfi eins vel. Þá kemur lifrin til aðstoðar sem er ekki gott því lifrin sér um að brenna fitu og þegar hún er upptekin við að aðstoða nýrun þá hægist á allri fitubrennslu.
Of lítil vatnsdrykkja leiðir til þess að líkaminn rígheldur í hvern dropa og geymir undir húðinni. Þá sjást vöðvar ekki eins vel, og sé um verulegan vökvaskort að ræða verðum við þrútin í framan og á fingrum. Lausnin á þessu er einföld: Drekka meira vatn því vatn losar vatn... ótrúlegt en satt!!
Mamma! Ég er þyrstur.
Við eigum ekki að bíða með að drekka þar til við erum orðin þyrst, því þá erum við nú þegar farin að þorna upp. Þegar við verðum þyrst eigum við að drekka mikið, ekki bara væta kverkarnar.
Klósettið er upptekið....næstu klukkutímana
Ef líkamann vantar vatn þá stelur hann vatni úr ristli og afleiðingin er hægðatregða.
Er einhver orðinn þyrstur??
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Íþróttir, Lífstíll, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | Breytt 21.7.2007 kl. 09:51 | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið rétt, en vil samt aðeins minna á að ofvökvun getur haft mjög skaðleg áhrif á líkamann. Þá fara nýrun í overdrive og skola út nauðsynlegum steinefnum og fleiru út með þvagi og yfirkeyra sig. Það gleymist nefninlega oft að minnast á þetta þegar verið er að predika vatnsneyslu og ég hef heyrt um dæmi þar sem fólk er að þamba í sig allt upp í 7-8 lítrum af vatni á dag sem er vægast sagt varhugavert en eins og þú segir þá eru 2-3 lítrar fínt. Það er nefninlega hægt að deyja úr vatnseitrun
Ingunn (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 22:22
Það er nauðsynlegt að brýna fyrir fólki mikilvægi vatnsdrykkju. Þó að það sé nokkuð til í þessum punkti hjá Ingunni þá held ég að það sé bara ennþá mjög mikið um það að fólk drekki ekki nóg vatn. Ég verð a.m.k. mikið vör við það í kringum mig. Ég fatta ekki hvernig fólk kemst yfir það að drekka 7-8 lítra Þó ég sé ekkert að efast um að það sé til..
Fyrir dálítið mörgum árum las ég grein eftir Einar Guðmann þar sem hann tíundaði mikilvægi vatnsdrykkju og sá lestur hafði mikil áhrif á mig. Síðan þá hef ég lagt mikla áherslu á að passa upp á vatnsdrykkjuna og pisspiss prófið er alveg ágætis mælikvarði Ég man samt ekki eftir að hafa lesið um þetta með lifrina og nýrun. Ansi áhugavert.
Takk fyrir fræðslu dagsins
Óla Maja (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 23:20
Góður punktur hjá þér Ingunn með ofvökvun því þetta er víst vaxandi vandamál meðal ungra kvenna hérlendis í tengslum við þvagleka. Hann er mun algengari hér á landi en í nágrannalöndunum og læknar telja að það megi rekja til ofpredikunar á vatnsneyslu og ungar stúlkur séu að þamba alltof mikið vatn sem leiði svo til þvagleka.
Það er einmitt svo einfalt Óla Maja að bara rétt kíkja í skálina eftir pisseríið til að tékka hvort nóg sé drukkið.
Ragnhildur Þórðardóttir, 21.7.2007 kl. 09:50
Heh ég get svarið það, ég stóð upp og fékk mér vatn :)
Eva (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 17:51
Já ég varð sko meira en lítið þyrst af þessum lestri.
Farin að fylla á brúsann góða sem víkur ekki frá hlið minni!
Skemmtileg færsla,
Kv. Anna Brynja
Anna Brynja (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.