20.10.2007 | 16:50
Nútíminn er trunta
Lyfturnar hér á Landsanum voru bilaðar um daginn og þá fór ég að velta fyrir mér hvað nútímamaðurinn á landinu Ísa er ótrúlega þversagnakenndur.
Það er sko ekki vandamál fyrir landann að fara í ræktina á hverjum degi og jafnvel oft á dag til að hamast og djöflast en það var algjörlega ómögulegt fyrir hvern einasta kjaft í vinnunni að þurfa að labba upp nokkrar hæðir, það kvörtuðu og kveinuðu allir í kór.
Meira að segja Naglinn varð pirraður og engan veginn að nenna þessu, enda þurfti ég að príla tröppurnar alla leið upp á 14. hæð takk fyrir takk. Var alveg að gefast upp á 11. hæð, og fór þá að hugsa að ég hefði nú örugglega prílað 70-80 hæðir sjálfviljug á þrekstiganum um morguninn en nokkrar hæðir voru alveg að gera út af við mig, líklega af því að þetta tramp var ekki gert af fúsum og frjálsum vilja.
Við krefjumst þess að fá bílastæði beint fyrir utan ræktina, búðina eða bankann og jafnvel hringsólum um bílastæðið í þeirri veiku von að eitthvað kvikindi fari nú að hypja sig heim til sín. Naglinn gerist oft sekur um að sé sjálfrennireið ekki tiltæk þá stundina á heimilinu þá er búðaráp ekki inni í myndinni, jafnvel þó það taki ekki nema 20 mínútur að labba í Kringluna. Ég er nokkuð viss um að slík veruleikafirring eins og viðgengst á Sogaveginum er ekki einsdæmi hér í borg, enda ekki ofsögum sagt að Íslendingar eru bílaóðir.
Norðannepja og tuttugu vindstig í níu mánuði ársins eru reyndar ekki girnilegar aðstæður til samgangna á tveimur jafnfljótum. En rok og rigning er auðvitað engin afsökun á tímum 66°N og Cintamani. Ekki höfðu forfeður okkar slíkan munað þegar þeir reru á miðin íklæddir hriplekum lopavettlingum og sauðskinnsskóm.
Já, það er skondið að nútímamaðurinn er svo mikil kuldaskræfa að hann þarf að hlaupa eins og hamstur á bretti til að halda heilsu í stað þess að nýta hreyfinguna sem felst í að ferja skrokkinn frá A til B.
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæðirnar á LSH í Fossvogi eru hvorki meira né minna en 14 og meira að segja 15 með svölunum efst í turninum.
Ragnhildur Þórðardóttir, 21.10.2007 kl. 11:13
Ég var að velta fyrir mér, myndi kvef og hálsbólga aftra þér frá að kíkja í ræktina?? ;D
Ragnhildur Björk Theodórsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 05:06
Já það er ekki nógu gott hvað maður er latur við að fá sér göngutúra og hreyfa sig utanhúss. Ég stefni á að hvíla mig á bílnum næstu vikurnar og taka strætó í skólann á morgnanna og heim á kvöldin... þá fæ ég a.m.k. nokkurra mínútna göngutúr að og frá stoppistöðunum.... og spara fullt af bensíni ;-)
Eydís Hauksdóttir, 22.10.2007 kl. 07:38
Það vinna allir með því að spara bílinn og að labba frekar. Sparar peninga, bætir heilsu og umhverfið .
Sæl nafna,
Nei, kvef og hálsbólga aftrar mér ekki frá ræktinni, ég þarf eiginlega að vera við dauðans dyr til að sleppa æfingu, en þú skalt ekki herma eftir mér enda er ég með hæsta stigs ræktarfíkn. Hins vegar ef ég finn að ég er að kvefast þá finnst mér besta meðalið að fara og svitna og púla og svitna ógeðinu út. Yfirleitt virkar það og kvefið nær sér ekki á strik og lætur sig bara hverfa jafnóðum. Öðru gegnir hins vegar ef þú ert komin með hita, þá máttu alls ekki fara í ræktina því það gerir bara illt verra. Maður þarf að vega og meta ástand sitt sjálfur og finna hvað maður treystir sér til, en smá hreyfing er yfirleitt bara af hinu góða og kemur blóðrásinni af stað og flýtir fyrir að losna við kvef og slen.
Ragnhildur Þórðardóttir, 22.10.2007 kl. 09:07
Aight flott er, svo mismunandi hvað fólk segir ;D
Ragnhildur Björk Theodórsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.