Líkaminn er magnað fyrirbæri, hann aðlagar sig að öllu sem við gerum.
Ef við hættum að drekka vatn þá bregst hann við með að halda í vatn og við fáum bjúg, stundum kallað að vatnast.
Ef við skerum niður hitaeiningar á dramatískan hátt, þá bregst líkaminn við með að halda dauðahaldi í fitubirgðirnar en brenna þess í stað orkufrekum vöðvavef.
Við lyftingar brjótum við niður vöðvana og líkaminn bregst við með að byggja stærri og sterkari vöðva til að höndla næstu átök.
Líkaminn aðlagast þolþjálfun með að styrkja hjarta- og æðakerfið og gera það öflugra í að flytja súrefni til vinnandi vöðva. Sem þýðir að eftir því sem formið eykst þarf minni vinnu til að hlaupa t.d 10 km.
Til þess að halda áfram að bæta okkur og brenna jafnmörgum hitaeiningum höfum við tvo kosti:
1) hlaupa lengri vegalengd á sama hraða t.d 12 km
eða
2) hlaupa sömu vegalengd en auka hraðann.
Flest okkar höfum margt annað við tímann að gera en að eyða mörgum klukkutímum á dag í að hlaupa eins og hamstur á bretti. Þess vegna er 2) mun álitlegri kostur.
Sprettir á hárri ákefð (85-90% púls) inn á milli hlaups á meðal ákefð (75-85% púls) eru því gríðarlega öflugt tímasparnaðarkerfi fyrir upptekinn nútímamanninn eða -konuna.
Til þess að við verðum hágæða fitubrennsluvélar er samt ekki nóg að stunda þolþjálfun út í hið óendanlega. Vöðvavefur er heimtufrekur á orkuna sem við innbyrðum og hreinlega spænir upp matinn til að halda sér gangandi hvort sem hann er að vinna (lyftingar) eða í hvíld. Það er algjörlega nauðsynlegt að stunda styrktarþjálfun til að byggja upp vöðvamassa.
Því meiri vöðvamassi, því meiri orku notar líkaminn.... Ergo: meiri brennsla í hvíld.
Eitt það besta við spretti og lyftingar er EPOC. Og hvað í veröldinni er það???, spyrja eflaust margir.
Þegar við lyftum lóðum eða stundum þolþjáflun á hárri ákefð (85-90% púls) erum við að vinna á loftfirrðu álagi.
Við æfingar á loftfirrðu álagi fer líkaminn í svokallaða súrefnisskuld eftir æfinguna.
Þá er hann á fullu að hreinsa upp úrgangsefni sem safnaðist upp á æfingunni sem hann gat ekki gert á meðan æfingu stóð þar sem hann vantaði súrefni til verksins.
Þetta ferli þýðir aukna brennslu eftir að æfingu lýkur.
Þetta ferli kallast því skemmtilega nafni EPOC (Excess-Post-Exercise-Oxygen-Consumption), og getur varað í 2-24 tíma eftir æfingu.
Það er sko ekki leiðinleg tilhugsun að vita að skrokkurinn er ennþá á fullu að brenna fitu þegar við liggjum fyrir framan imbann löngu eftir æfingu dagsins.
Hugsið ykkur að 1 kg af vöðvum krefst 100 hitaeininga til viðhalds, það er fyrir utan hitaeiningar sem við brennum á æfingu til að byggja upp eða viðhalda vöðvum. Það jafngildir 36500 hitaeiningum brenndum á ári á meðan við horfum á Greys Anatomy eða lesum Moggann. Það jafngildir 5 kg af fitutapi á ári !!!
Eftir hverju eruð þið að bíða??? Takið á rás eða pumpið járnið í dag !
Meginflokkur: Þolþjálfun | Aukaflokkur: Fróðleikur | 31.10.2007 | 13:04 (breytt 11.4.2009 kl. 08:56) | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 550730
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábær pistill eins og alltaf. En kannski ein spurning ég er búinn að vera að skoða púlsmæla og það er ekki hlaupið að því að kaupa sér einn slíkan. Þar sem að þetta er frumskógur. En með hverju mælir þú? hvaða mæli ert þú t.d að nota.
sas (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 17:58
Takk fyrir það SAS. Ég nota Polar púlsmæla og get hiklaust mælt með þeim, þeir eru mjög einfaldir í notkun og viðmótið mjög svo imba-proof fyrir tæknilega fatlað fólk eins og mig. Þeir fást í P. Ólafsson í Hafnarfirði á góðu verði og eins er Hreysti í Skeifunni með þá líka og á fínum prís. Góður púlsmælir kostar c.a 10 þús kall en dugar þér í góð 4-5 ár. Svo það er vel þess virði að punga aðeins út og fá almennilega græju.
Ragnhildur Þórðardóttir, 31.10.2007 kl. 19:35