7.2.2008 | 15:18
HIIT æfing
HIIT (High Intensity Interval Training) er stutt en áköf brennsluæfing þar sem púlsinn er keyrður upp í hámark. Þessi tegund þolæfinga virkjar hvoru tveggja, loftháða og loftfirrða brennslukerfið. Meiri árangur næst á skemmri tíma þar sem þessi æfing er mun erfiðari en æfingar á lægri púls. Rúsínan í pylsuendanum er að brennsla líkamans hækkar yfir allan daginn eftir slíka æfingu og stuttir en erfiðir sprettir hjálpa til við að viðhalda vöðvamassanum. Hér að neðan er dæmi um c.a 20 mínútna HIIT æfingu á hlaupabretti. Hraðinn er smám saman aukinn eftir því sem líður á æfinguna til að gefa hjarta og æðakerfinu ekki algjört sjokk. Athugið að bæði tíminn og hraðinn hér er aðeins dæmi og skal stilla eftir getu hvers og eins. Hugmyndin er að í sprettunum sé lífsins ómögulegt að hlaupa lengur en 45-50 sekúndur og púlsinn á að fara upp í 90-95% af hámarkspúlsi. Lungun eiga að brenna, gott fólk!! Ákefð Tími Hraði Upphitun 2-3 mín 6-7 km/klst Sprettur 40 sek 12 km/klst Ganga 70 sek 6 km/klst Sprettur 40-45 sek 14 km/klst Skokk 70 sek 9 km/klst Sprettur 40-45 sek 15 km/klst Ganga 70 sek 6 km/klst Sprettur 30-45 sek 16 km/klst Ganga 70 sek 6 km/klst Sprettur 30-40 sek 16 km/kls Ganga 70 sek 6 km/klst Sprettur 30-40 sek 17 km/klst Skokk 70 sek 10 km/klst Sprettur 45 sek 16-17 km/klst Cool-down 2-3 mín 6-7 km/klst Svo er auðvitað lykilatriði að hafa dúndrandi graðhestarokk í eyrunum þegar maður sprettar.
Flokkur: Þolþjálfun | Breytt 3.11.2008 kl. 11:03 | Facebook
Spurt er
Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég verð nú bara þreytt að lesa þetta Skelli mér undir teppi.
M, 7.2.2008 kl. 15:39
Það er æðislegt að taka svona æfingu.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 7.2.2008 kl. 21:07
Ohhh segðu... tók einmitt einn svona killer í morgun, fékk blóðbragðið í munninn og allan pakkann. Algjörlega priceless að þræla sér svona út í morgunsárið .
Ragnhildur Þórðardóttir, 8.2.2008 kl. 08:37
Þú ert svo mikill snillingur. Áttarðu þig á því að það er ótrúlegt afrek að geta hlaupið svona hratt yfir höfuð miðað við að þú ert í raun bodybuilder. :)
ingunn (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 08:59
Ég er nú bara sprungin við að hlaupa á 14 Ekki mjög leggjalöng reyndar
Audrey, 8.2.2008 kl. 09:34
Ingunn! Takk fyrir það skvís . Þetta er árangur margra ára þjálfunar í sprettum, takmarkið er að hlaupa á 20 km hraða eins og Jónsi í Svörtum... skáp .
Auður! Málið er bara að keyra sig alltaf smám saman meira og meira upp. Til dæmis hlaupa næst á 14,2 og svo á 14,6 jafnvel þó þú þurfir að hlaupa í styttri tíma og fikra sig þannig smám saman upp eftir því sem þolið eykst. Alltaf að keyra sig í botn í hverjum spretti .
Ragnhildur Þórðardóttir, 8.2.2008 kl. 10:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.