15.2.2008 | 13:43
Franskbrauð með sykri
Áráttuhugsanir herja á Naglann þessa dagana.
Um síðustu helgi var Naglinn alveg "hreinn" í mataræðinu og eina svindlið var eitt glas af Sprite Zero.
Á morgun er Naglinn nefnilega að fara á árshátíð, og þessi aðgerð var liður í örvæntingu Naglans að komast í kjólkvikindið. Það þurfti tvær afgreiðslustúlkur í búðinni til að renna honum upp yfir brjóstkassann, og ekki er hægt að kenna tepokunum á bringunni um þessi þrengsli. Til þess að komast hjá því að leigja byggingakrana og ræsa út björgunarsveitina Ársæl til að eiga séns í kjólskömmina var því best að halda sig við stíft matarplanið.
En slíkar dramatískar aðgerðir fara ekki vel í græðgisofátsröskun Naglans. Alla vikuna hefur Naglinn ekki verið hæfur til neinna starfa sökum stöðugra hugsana um súkkulaði, lakkrís, ís, popp, kex, rúgbrauð með smjöri.
Semsagt ef það inniheldur nóg af transfitu, mettaðri fitu, sykri og öðrum heilsuspillandi næringarefnum þá langar mig í það og MIKIÐ af því.
Sjálfsréttlæting og -blekking tröllríður sjúkum huga um að teygja sukkið út yfir þessa einu leyfilegu máltíð, og sukka bara á sunnudaginn líka , það sé jú í lagi svona einu sinni, vöðvarnir hafa gott af auka næringu, ég verði bara sterkari á æfingum fyrir vikið o.s.frv, o.s.frv.
Já það er ekkert grín að vera svona bilaður í hausnum að ein "hrein" helgi geri mann að kandídat í síðerma treyjuna .
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef þetta er röskun þá þjáist ég af því nákvæmlega sama Mmmm rúgbrauð með smjöri (miklu smjöri :))
Audrey, 15.2.2008 kl. 14:00
Nákvæmlega, HP rúgbrauð með smjöri , hvað er málið með það??? það er ekkert smá gott maður.
Ragnhildur Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 14:56
En að kaupa bara kjól í næstu stærð fyrir ofan...nei bara svona hugleiðing haha
Ingunn Þ. (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 15:53
Heilafita er gott orð en óþolandi ástand.
Ingunn! heldurðu að ég hafi ekki reynt næstu stærð fyrir ofan??? Hann var of stór og hékk eins og svartur ruslapoki á bringunni því það vantaði kvenleikann til að lyfta honum upp svo það var ekki um annað að ræða en að fara í næstu stærð fyrir neðan sem passaði fínt eftir átökin að renna honum upp.
Ragnhildur Þórðardóttir, 16.2.2008 kl. 10:18
sjitt. Má ekki borða rúgbrauð?? Ég bý í Danmörku sko!!
Erla (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 20:39
Erla! Rúgbrauðið í DK er í lagi, það er meira eins og Fittý brauðið hér heima og ekki eins sykrað og t.d HP gúmmulaðið.
Ragnhildur Þórðardóttir, 18.2.2008 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.