7.5.2008 | 13:52
Mökk pirraður Nagli
Stundirnar í ræktinni eru uppáhaldsstundir Naglans, það jafnast ekkert á við tilfinninguna að rífa í járnið, massa stálið, berjast, hamast, mása og blása.
En annað var uppi á teningnum á æfingu í gær. Á dagskránni var að massa bakið, víkka latsana og þykkja herðablöðin. Eftir upphitun byrjar Naglinn á upphífingum, og greinilegt að morgunbrennslurnar og kaloríuköttið er byrjað að segja til sín á æfingum, því hífurnar gengu ekki eins vel og vanalega, og það fór í skapið á Naglanum Þessi pirringur magnaðist eftir því sem leið á æfinguna, og allt fór í taugarnar á mér, þó sérstaklega mín eigin risastóra spegilmynd.
Einhverjir aumingja Danir urðu fyrir því óláni að vera á bekk við hliðina á Naglanum á meðan ég var að taka róður með lóð. Þeir voru að spjalla saman á sínu hrognamáli og hvetja hvorn annan áfram: "Je, kom so, hallo, hallo, kom so...." Þessi hvatning og þeir yfirhöfuð fóru í gegnum merg og bein á pirruðum Naglanum og ekkert annað í stöðunni en að þyngja vel og fá útrás í gegnum lóðin. Enda djöflaðist Naglinn svo svakalega að eftir settið sá ég að Danakvikindin voru allir að glápa á aðfarir hlussunnar við hliðina.
Hleypti svo restinni af skapvonskunni út í brennslu og fór bara nokkuð sátt við lífið út úr Laugum.
Svona er maður klikkaður .
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hehe, alvöru skap hér á ferð
En af hverju ertu að auka brennsluna núna? Ef ég má spyrja.
Audrey, 7.5.2008 kl. 14:07
Hehe passa mig á því að vera ekki að taka upphífingar núna, er eitthvað svo þung á mér þessar vikurnar og vil ekki vita hvað ég er ógeðslega léleg
Jana (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 15:34
Þyrfti að elta þig um salinn, var eins og villuráfandi hæna í tækjunum þar sem Body shape tímarnir eru farnir í sumarfrí. Er alltof lin við sjálfa mig
M, 7.5.2008 kl. 18:10
Auður! Kellingin er í míní kötti núna í nokkrar vikur, fékk grænt ljós frá Konna og Guðrúnu Hólmfríði að það væri í lagi svona á miðju tímabili. Verð að ná mér aðeins niður, spikið er komið út yfir öll velsæmismörk
Jana! Ég hefði betur sleppt þeim enda ógeðslega þung og léleg í þeim... ekki gott fyrir skapið í minni að vera ekki 100% .
M! Þér er velkomið að elta mig um salinn hvenær sem er mín kæra . Ég er að lyfta um 4 leytið á daginn.
Ragnhildur Þórðardóttir, 8.5.2008 kl. 09:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.