19.5.2008 | 15:36
Lipolysis
Fita er aðallega geymd á tveimur stöðum í líkamanum, inni í vöðvum en mest af henni er hins vegar geymd í fituvef og það er fitan sem við viljum losna við. Til þess að minnka fitubirgðir líkamans þurfum við að hreyfa við fitunni (mobilization). Þá er fitan losuð úr geymslustað sínum og inn í líkamann þar sem hægt er að brjóta hana niður í gegnum ferli kallast lipolysis.
Adrenalín og nor-adrenalín stjórna niðurbroti fitu með losun ensímsins lipase. Lipase og adrenalín vinna náið saman til að hreyfa við fitunni og losa hana inn í blóðrás. Þegar Lipase hefur verið örvað vinnur það frekar að því brjóta niður tríglýseríð niður í þrjár fitusýrur og glýseról. Fitusýrurnar bindast þá prótínum í blóðrás sem flytja þær til vinnandi vefja þar sem þeim er brennt sem orkugjafi. Þannig brennum við fitunni!!
Adrenalín virkar á viðtaka sem kallast alpha (1 & 2) og beta (1, 2 & 3). Þegar adrenalín virkjar alpha 1 og beta viðtaka fer lipolysis af stað og fita er brotin niður í líkamanum. Þegar adrenalín verkar á alpha 2 viðtaka hindrar það niðurbrot fitu.
Sum svæði í líkamanum hafa fleiri alpha 2 viðtaka sem hindra niðurbrot á fitu en alpha 1 viðtaka. Hjá karlmönnum eru þessi svæði á maga og ástarhandföngin svokölluðu en hjá konum eru það læri og rass. Það skýrir af hverju mörgum reynist erfitt að losna við fitu á þessum svæðum.
Eins og áður sagði er blóðrás mjög mikilvæg til flutninga á fitusýrum til brennslu, og sérstaklega á meðan æfingu stendur þegar orkuþörfin eykst. Lélegt blóðflæði stuðlar að söfnun fitusýra í fituvef og meiri líkur á að þær endi sem líkamsfita frekar en að vera brennt í líkamanum.
Besta leiðin til að auka blóðflæði er auðvitað að hreyfa sig!!
Þegar við erum að stunda brennsluæfingar (cardio) er líkaminn móttækilegri fyrir adrenalíni og þess vegna eykst lipolysis. Þeir sem hafa stundað úthaldsþjálfun í langan tíma hafa aukið næmi fyrir adrenalíni. Í þeirra tilfellum þarf minna magn af adrenalíni til að koma af stað hreyfingu á fitufrumum, þess vegna byrja þeir sem eru í góði úthaldsformi að brenna fitu auðveldlega.
Þeir sem hreyfa sig ekki og eru í yfirþyngd eru oft komnir með lélegt næmi fyrir adrenalíni og mikið magn þarf til að hreyfa við fitunni. Það getur því tekið smá tíma fyrir líkamann að byrja að missa fitu eftir langvarandi hreyfingarleysi og fitusöfnun. Um leið og byrjað er að hreyfa sig að staðaldri hins vegar verða alpha 1 og beta viðtakar sífellt næmari og mörinn bráðnar í burtu.
Flokkur: Fróðleikur | Breytt 2.11.2008 kl. 18:24 | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað varðar blóðflæðið má benda á að það er einmitt gott að halda hita á þessum vandræðasvæðum til að blóðflæðið þangað sé nógu mikið og nái að tryggja að fitan sé nýtt í brennslu. Flestir með eitthvað spik utan á sér hafa einhvern tímann verið að æfa á milljón, verið orðnir vel heitir í léttum æfingafötum, og hafa svo snert spiksvæði þar sem húðin var ísköld yfir.
Fjölnir (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 23:02
Ég heyrði einhverstaðar þá sögu að gott sé að smyrja Undirbúning H (Preperation H) á ástarhandföngin fyrir æfingu? Hefur þú eitthvað orðið vör við undrasögur gyllinæðikremsins?
Palli (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 08:12
Fjölnir! þetta er mjög athyglisverð ábending og ég hafði aldrei pælt í þessu en mallinn og rassinn á mér eru oft ísköld þrátt fyrir brjálaðan hamagang á brettinu. Væri þá sniðugt að klæða þessi svæði extra vel til að auka blóðflæðið og lýsið leki?
Palli! Prep H er mikið notað af vaxtarræktar og fitness liði, oft rétt fyrir keppni eða myndatökur. Það er notað fyrir gyllinæð með að fjarlægja umfram vökva úr bólgnuðum æðum. Það á víst að virka á keppnisfólk með að fjarlægja vatn undan húðinni, og fá þetta helskorna lúkk. Hef aldrei prófað það sjálf samt.
Ragnhildur Þórðardóttir, 20.5.2008 kl. 08:59
Ég hef ekki rekist á neinar rannsóknir um hvort það eigi að virka betur til að brenna spikið af að halda hita á því, en það sakar ekki að reyna að klæða hita á þessi vandræðasvæði og að nudda þau vel til að hita þau og koma blóðinu í þeim á hreyfingu Það skaðar örugglega ekki!
Fjölnir (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 23:08
Þá verð ég í lopabuxum í brennslu og stend svo úti á gólfi í Laugum og nudda rassinn og bumbuna á eftir . Hvað ætli líði langt þar til mér verður hent út??
Ragnhildur Þórðardóttir, 22.5.2008 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.