2.7.2008 | 09:38
Sögustund
Verð að deila með ykkur glóðvolgri sögu úr ræktinni sem gerðist í gær.
Í upphitun á brettinu fyrir fótaæfingu dauðans tók Naglinn eftir þekktri kraftlyftingakonu á næsta tæki. Sú er búin að vera lengi í bransanum. Naglinn hefur nokkrum sinnum séð hana æfa í World Class en aldrei talað við hana, bara dáðst að henni úr fjarlægð.
Svo fer Naglinn að massa beygjurnar og sú sterka fer að taka bekkinn skammt frá.
Nemahvað... að eftir þriðja sett Naglans í beygjunum kemur sjálfur reynsluboltinn yfir og segir: " Þetta þykir mér gaman að sjá. Alvöru átök. Það er ekki algengt að sjá konur taka svona beygjur."
Naglinn sem kann ekki að taka hrósi, hvað þá frá frægum átrúnaðargoðum, beyglaðist í keng, roðnaði og stundi upp úr sér einhverju hljóði sem átti að vera "Takk."
Sú sterka hélt áfram: "Ég er nefnilega í kraftlyftingum."
Naglinn: "Já ég veit hver þú ert."
Sterka: "Nú höfum við hist."
Naglinn: "Nei, ég er bara aðdáandi." (hefði betur sleppt því að segja þetta, nú heldur hún að ég sé psycho stalker )
Sterka:"Og hvað er svo markmiðið?"
Naglinn: "Að komast upp í 100 kg."
Sterka: "Nei, ég meina með að keppa. Þú ættir alvarlega að hugsa um að keppa, verandi að taka þessar þyngdir á æfingu þá átt þú fullt erindi í keppni."
HA!! Naglinn fékk bara pínulitla fullnægingu við að heyra þetta.... og það frá þessari konu.
Það verður nú að viðurkennast að kraftlyftingakeppnir hafa kitlað Naglann lengi, og Löggan hefur verið ötul baráttumanneskja þess að Naglinn taki þátt.
Svo það er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér á næstu misserum.
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Keppa!
Hjörtur Hjartarson (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:03
Hehe... ég vissi að þú myndir styðja þá hugmynd . Ég er alvarlega að velta þessu fyrir mér og stefni á eitthvað mót annaðhvort í sumar eða einhvern tíma eftir fitnessið í nóvember.
Ragnhildur Þórðardóttir, 2.7.2008 kl. 10:30
Ekki amalegt að fá svona komment
Þú veist að þú ert allavega með klapplið fyrir hvaða keppni sem þú ferð í
Anna María (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:59
Ég tek undir með Hirti og ekki síður með Önnu Maríu Ég verð í klappliðinu
Ég er annars með eina litla spurningu í dag. Ég fer beint upp úr rúminu þessa dagana til að brenna og brenni því á fastandi. Hversu lengi eftir æfingu á ég að borða og hvað er þá best að ég fái mér? (þú manst að ég er fíkill á "hafragrautur-a-la-Ragga-nagli")
Óla Maja (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 11:45
Anna María og Óla Maja! Takk fyrir það sætu konur , ég legg til að þið verðið í klappstýrubúningum með "pom-poms" og æfið eitthvað fimleika atriði.
Óla Maja! Bíddu í 30-40 mín. Ekki mikið lengur en það, og hafragrauturinn er það allra besta á morgnana. Ekki gleyma samt að fá þér eitthvað prótín með, t.d eggjahvítupönnsu með 4-5 hvítum og 1 rauðu. Þá ertu komin með morgunmat eins og fitness liðið borðar.
Ragnhildur Þórðardóttir, 2.7.2008 kl. 11:52
Líst vel á að þú prófir að keppa.... passaðu bara að gera það ekki of nálægt fitness keppni svo þú lendir ekki í leiðinda meiðslum og veseni... ;)
Nanna (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 14:21
hahaha ... þetta hefur verið bara eins og ef þú kæmir upp að mér og segðir mér að fara að keppa í fittness!
Þú átt eftir að standa þig vel í kraftlyftingunum
Fær maður ekki að vita hver þessi iconic kona er? *forvitin*
Snjólaug (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 14:26
Nanna! Nei ég ræddi það einmitt við hana, myndi ekki keppa á niðurskurðartímabili. Svo annaðhvort í sumar eða eftir fitnessið.... hhhmmm
Snjólaug! Takk fyrir það skvís. Jú jú, þetta er Gry Ek.
Ragnhildur Þórðardóttir, 2.7.2008 kl. 15:27
Vona að þér sé sama , vísaði á síðuna þína sem mér finnst frábær. Sjá mitt blogg
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 3.7.2008 kl. 17:46
Það er bara svo frábært að fá svona hvatningu og að það séu einhverjir sem taka eftir öllu púlinu. Stundum langar manni svo t.d. að vera með í fitness eða einhverju en manni vantar bara smá hvatningu...
Jana (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 13:28
Þetta er frábær síða hjá þér . Ég var að lesa færslu frá þér "Ertu ís í brauðformi" og datt í hug að spyrja hvaða æfingar á maður að leggja áherslu á ef maður vill styrkja fremri öxl og rotator cuff.
Takk takk
Viktoría (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 15:19
Já, hvernig væri að prufa að keppa í kraftlyftingum?! væri bara snilld! myndir rústa því..
Ég lenti einusinni í svona svipuðu dæmi, nema hvað það var fitness pía að segja að ég ætti fullt erindi í fitnessið ;) (ekki frá því að fitnesspían heiti Ragga Nagli ;) )
Kristín Arna (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 23:01
Fjóla! Takk fyrir falleg orð og fyrir að vísa á bloggið mitt á síðunni þinni
Jana! Já það munar öllu að heyra svona, hvetur mann rosalega áfram.
Viktoría! Æfingar fyrir rotator cuff eru gerðar í "cables vél" og hreyfingin er eins og að opna og loka hurð. Munar öllu að henda þeim inn í prógrammið, sérstaklega þegar maður er að pressa þungt.
Kristín Arna! Ef einhver á að fara í fitnessið þá ert það þú með þinn flotta skrokk. Tökum æfingu saman fljótlega .
Ragnhildur Þórðardóttir, 9.7.2008 kl. 14:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.