18.8.2008 | 15:29
Munurinn á mysuprótíni og casein prótíni.
Mysuprótín er mikilvægasta prótínduftið í vopnabúri okkar og allir sem er alvara í sinni þjálfun ætti að eiga dunk af mysuprótíni í skápnum.
Það meltist hratt sem þýðir að þegar vöðvarnir þurfa á aminosýrum að halda ASAP þá er mysuprótín besti kosturinn. Til dæmis þegar við vöknum, sem og fyrir og eftir æfingu.
Mysuprótín inniheldur hátt hlutfall af BCAA aminosýrum, sem eru þær mikilvægustu til að byggja kjöt á beinin. Rannsóknir hafa sýnt að mysuprótín eykur blóðflæði og stuðlar þannig að betra flæði vöðvabyggjandi næringarefna til vöðva. Besti kosturinn í mysuprótíni er: Whey protein isolates, sem meltast mun hraðar en Whey protein concentrate sem er þá næstbesti kosturinn.
Casein er unnið úr mjólk líkt og mysuprótín, en öfugt við mysuprótín meltist casein mjööög hægt. Þegar við erum búin að svolgra í okkur casein prótíndrykk þá er hann eins og risastór garnhnykill í mallanum og meltingarensímin dunda sér við að kroppa í hann.
Þetta ferli tekur allt að 8 tíma, sem veitir okkur því stöðugt flæði af aminosýrum.
Það er sérstaklega mikilvægt á meðan við sofum og því ættu allir að skella í sig einum djúsí casein sjeik fyrir svefninn til að koma í veg fyrir vöðvaniðurbrot sem á sér stað þegar langt líður milli máltíða.
Líkaminn þarf aminosýrur til að fúnkera rétt og þegar við erum ekki að borða þær, eins og þegar við sofum, þá nartar líkaminn í vöðvana til að ná í þær.
Það er ekki vitlaust að bæta smá casein út í mysuprótín-sjeikinn sinn eftir æfingu til að tryggja áframhaldandi flæði af aminosýrum eftir að mysuprótínið hefur runnið í gegn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Íþróttir, Fæðubótarefni, Mataræði | Breytt 30.10.2008 kl. 09:58 | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er þá ekki bara fínt að drekka mysu drykk úr fernum
Res (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 16:07
en ég er með mjólkur óþol hvað er þá best að drekka í staðin
Berglind (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 16:17
Res! Ef þú hefur lyst á því, þá er mysa ódýr lausn í kreppunni.
Berglind! Soja prótín er gott fyrir þá sem eru með mjólkuróþol. Ég á sjálf erfitt með mjólkurvörur en ég nota Scitec mysuprótín sem er "low-lactose".
Ragnhildur Þórðardóttir, 18.8.2008 kl. 21:17
ég nota vanalega soya protein en kanski ég prufi þetta ef það er ekki eins mikil mjólkursykur í þessu
Berglind (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 09:02
hæhæ langaði bara að tjékka með hverju þú myndir mæla með ef ég ætlaði að lyfta á morgnanna fyir vinnu? ef ég tek eitthvað á því á morgnanna í tækjasalnum þá verður mér bara flökurt og finnst eins og ég þurfi að fá einhverja næringu.
lesandi (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 09:05
Berglind! Mér líður miklu betur af Scitec heldur en EAS til dæmis. Svo er það líka svo milljón sinnum betra á bragðið .
Lesandi! Alls alls ekki fara að lyfta á fastandi maga, lestu þessa grein: http://www.ragganagli.blog.is/blog/ragganagli/entry/463905/ Ef þú ert að æfa mjög snemma er nóg að fá sér djúsglas, banana, epli, mysuprótín fyrir æfingu og borða svo 20-45 mín eftir æfingu góðan morgunverð eða prótínsjeik + kolvetni.
Gangi þér vel!
Ragnhildur Þórðardóttir, 19.8.2008 kl. 10:08
hæ. ég var að spá í einu:) hvort myndir þú telja betri kost. Ein skyr.is dós með vanillu (17 gr af próteini) eða 17 grömm af Whey protein isolates?
Sigga (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 10:49
Ertu að spá í fyrir æfingu? Hversu löngu fyrir? Ef þig vantar amínósýrur sem fyrst, t.d 30 mín fyrir æfingu þá er Whey isolate betri kostur því það skilar sér hraðar en skyrið. Annars er skyr ágætur kostur ef lengra líður fyrir æfingu og þú ert OK með mjólkurvörur.
Ragnhildur Þórðardóttir, 19.8.2008 kl. 10:58
Sæl Halldóra, þakka þér fyrir að kíkja í heimsókn á síðuna. Glæsilegur árangur, til hamingju. Haltu endilega áfram á sömu braut. Scitec fæst hjá Sigga í Vaxtarræktinni á Akureyri, s. 462 5266. Þú hringir bara og pantar og hann sendir þér frítt í pósti alla leið heim að dyrum. Þetta er þvílíkt bragðgott, ekkert svona duftbragð eins og af mörgum prótíndrykkjum.
Ragnhildur Þórðardóttir, 19.8.2008 kl. 11:42
Ein smá spurning, hvaða fæðubótarefni mælir þú með ,er í brennslu æfingum en vill ekki missa vöðva.
Res (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 18:27
Res! Ertu þá ekkert að lyfta með? Þú ert fljótur að tapa massanum ef þú heldur honum ekki við með nokkrum styrktaræfingum í viku. En til að svara spurningu þinni þá mæli ég með BCAA amínósýrum fyrir og eftir brennsluæfingar og borða nóg af prótíni til að næra vöðvana.
Halldóra! Takk fyrir sömuleiðis. Næsta keppni er 29. nóvember.
Ragnhildur Þórðardóttir, 20.8.2008 kl. 07:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.