Fjarþjálfun er tiltölulega nýtt fyrirbæri á markaði. Hún virkar þannig að þjálfari og skjólstæðingur hans eiga samskipti sín á milli í gegnum þann magnaða miðil, veraldarvefinn. Þjálfari lætur í té æfingaplan og fylgist með mataræði, og skjólstæðingur veitir upplýsingar um árangur.
Fjarþjálfun getur hentað ansi stórum hópi fólks. Fjölmargir eru ekki tilbúnir til að borga svimandi háar upphæðir fyrir einkaþjálfara, og eins og efnahagsástandið er í dag þarf að ígrunda vel hverja krónu. Aðrir búa úti á landsbyggðinni þar sem slík þjónusta er hreinlega ekki í boði. Enn öðrum finnst best að æfa einir en vilja gjarnan leiðsögn og upplýsingar til að tími þeirra nýtist sem best.
Margir hafa forvitnast að undanförnu um Fjarþjálfun Naglans.
Það hefur ekki farið hátt um þennan valkost, en Naglinn tekur semsagt að sér fjarþjálfun fyrir þá sem vilja ná árangri í sinni þjálfun og mataræði.
Áhugasömum er bent á www.ragganagli.com fyrir frekari upplsýsingar eða senda tölvupóst á ragganagli79@gmail.com.
Flokkur: Fjarþjálfun | 19.9.2008 | 09:56 (breytt 29.6.2009 kl. 09:56) | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 550730
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég verð sko í bandi, finnst þetta snilld Veit að matarræðið verður erfiðast
Held einmitt að það sé svo gott að fá leiðbeiningar og hvatningu.
Eigðu ljúfa helgi framundan
M, 19.9.2008 kl. 10:23
Halldóra! Góða skemmtun á TINU, hún er lang flottust. Að halda sér í þessu formi verandi á sjötugsaldri er tilefni í Nóbelsverðlaun. Vertu í bandi þegar þú kemur til baka.
M! Ekki spurning, vertu í bandi þegar þú ferð aftur á stjá. Mataræðið er bara vani, smá hjalli að komast yfir fyrst, en svo langar þig bara að borða hollt þegar þú finnur hvað þér líður vel af því.
Góða helgi skvísur
Ragnhildur Þórðardóttir, 19.9.2008 kl. 10:29
Hæ, hæ, ótrúlega gaman að fylgjast með þér og gaman að lesa síðuna þína. Ég kíki reglulega hingað inn og fannst kominn tími til að skrifa eitt stykki comment. Gangi þér rosa vel næstu vikunar og ég vona að þú rúllir þessari fitness keppni upp. Svo má náttúrulega benda á að fjarþjálfunin hentar einstaklega vel fyrir íslendinga sem búa erlendis, fólk er nefnilega ekkert að tapa sér í gymminu hérna úti og því vantar oft hvata. Góða helgi!!! Kveðja frá Vínarborg, Baddý "granni"
Baddý "granni" (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 17:43
Nei, blessuð Baddý. Gaman að þú skulir kíkja hér í heimsókn, takk fyrir það kærlega. Hvernig er lífið í Vínarborg? Ég skal alveg trúa því að Austurríkismenn séu ekki að rífa harkalega í járnið eins og landi þeirra hann Arnold.
Þetta er einmitt góð hugmynd fyrir Íslendinga erlendis, því oft eru tungumálaörðugleikar mikil hindrun í að fá sér þjálfara, eða að fólk vill fá einhvern með svipaðan bakgrunn.
Bestu kveðjur til þín og fjölskyldunnar.
P.S ég sé oft Jason og Rós frænku þína í Laugum (í sitthvoru lagi), en þori ekki að ganga upp að þeim og kynna mig....*roðn*
Ragnhildur Þórðardóttir, 20.9.2008 kl. 07:48