9.10.2007 | 10:57
Tuna with a twist
Jæja nú eru eflaust margir búnir að prófa túnfisksalat Naglans og jafnvel komnir með leið á því. Þess vegna ákvað Naglinn að birta nýja útgáfu af því með sinnepsdresingu og kapers. Fjölbreytni er jú krydd lífsins .
Uppskriftin að sinnepsdressingunni er frekar stór og því upplagt að geyma restina og nota út á salat eða til að búa til meira túnfisksalat seinna.
Sinnepsdressing
Hráefni:
4 matskeiðar Dijon sinnep
1/2 bolli sítrónusafi
1/2 bolli ólífuolía
Dill (ferskt, ekki í kryddstauk)
Svartur pipar
Aðferð:
Sinnepi, sítrónusafa og svörtum pipar hrært saman í blandara eða matvinnsluvél.
Olíu hellt rólega út í þar til hefur blandast við.
Dilli bætt við í lokin og hrært í örstutta stund.
Túnfisksalat
Hráefni:
1 dós túnfiskur í vatni
Sítrónubörkur
Rauðlaukur
Sellerístilkar
1 msk kapers
Aðferð:
Sigta vatnið frá túnfisknum
Saxa rauðlauk og sellerí smátt
Rífa sítrónubörk smátt á rifjárni
Sigta vatnið frá kapers
Blanda öllu saman í skál og hræra 1/4-1/2 bolla af sinnepsdressingu saman við. Best ef geymt í ísskáp í nokkra klukkutíma.
Voilá.... holl, prótínrík og bragðgóð máltíð!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Íþróttir, Lífstíll, Matur og drykkur | Facebook
Spurt er
Tenglar
Fróðleikur
- Lýðheilsustöð
- Heilsa og þjálfun Hér er hægt að reikna út kaloríufjölda
- Himnesk hollusta Hollar uppskriftir
- Café Sigrún Fleiri hollar uppskriftir
- Grænn kostur Gómsætar uppskriftir án aukaefna
- Fæðubótaefni-Hreysti Langódýrustu fæðubótaefnin
Blóð, sviti og tár
- Siouxcountry
- Muscular Development
- Vöðvafíkn
- Muscle with attitude
- Muscle & Fitness
- Bodybuilding.com Biblía lyftingamannsins
- Kraftasport
- Kraftsport
- Félag íslenskra kraftamanna
- Kraftaheimar
- World Class
- Bootcamp
- Sporthúsið
- Hreyfing Mitt annað heimili
- Fitnessvefurinn
- Biblía fallega fólksins
Myndir
- Myndir
- Brussel vor 2007
- Þrekmeistarinn maí 2007
- New York nóv 2006
- Bikarmót Fitness 07 Bikarmót í Austurbæ 24.nóv 2007
- Brúðkaupsferðin jan '08
Fitness
Eldri færslur
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Aðrir vaðlarar
-
Auðurin
Á nýjum stað -
Þrekmeistarakeppendur apríl '08
Þrekmeistarakeppendur - Nanna fitnessbeib
- Fannar Karvel frændi
-
Kristjana fitness
Fitnessrugl -
Valdís Jump-fit
Jump-fit - Ingunn fitnessskvís
-
Heiðrún fitnessgella
Heiðrún Fitness - Maja garpur
- Ingunn beib
-
Trúnó
Blogg fyrir hugsandi konur
Trúnó.... -
Erla Björg
MasiMas -
Maðurinn með stuðdverginn
Þvílíkt fyndið blogg - Fitnessgirls
-
Pirraði náunginn
Pirringur -
Anna Brynja
Anna Brynja í Reykjavík -
Arnbjörg
Eibie baby -
Fanney eðaltöffari
Fanney keepin't cool -
Svana Björk
Skottuskrif -
Lovísa
Lou og Gurr -
Óli frændi og Hólmfríður
Dagbók lífsins glósa
Bækur
Góðar bækur
-
: A Thousand Splendid suns
Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
-
: Kite runner
Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
-
: On beauty
-
: Espresso tales
Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna. -
: 44 Scotland Street
Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
-
: The time traveller's wife
Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
-
: We need to talk about Kevin
Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 550733
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hef nú aldrei verið spennt fyrir kapers.. en hver veit nema ég prófi!! Það hefur annars verið borðað að hætti Naglans á mínu heimili í dag. Ég gerði "gamla" túnfisksalatið í hádeginu og í kvöld var boðið upp á kjúklingabringur smurðum með tómatpúrru, olívuolíu og tandoori (brokkolí og brún hrísgrjón með) og nammi-namm.. þetta sló í gegn hjá öllum fjölskyldumeðlimum Endilega haltu áfram að koma með uppskriftir
Óla Maja (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 21:17
Sæl mín kæra,
Það má auðvitað sleppa kapers í túnfisksalatinu, gætir prófað eitthvað annað í staðinn, t.d sólþurrkaða tómata. Sinnepsdressingin er algjör snilld, prófaðu hana endilega á salat líka. Tandoori kjúlinn er alltaf góður, hef ekki eldað hann lengi... þarna er komin góð hugmynd fyrir kvöldmatinn.
Ragnhildur Þórðardóttir, 10.10.2007 kl. 08:16
Sólþurrkaðir tómatar!! Já, þú segir nokkuð Sinnepsdressingin hljómar mjög vel og ég á örugglega eftir að prófa hana.
Óla Maja (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 18:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.