Squat till you puke

Squat 

 

Kellingin er í skýjunum, toppaði mig í hnébeygjum í morgun og er að kafna úr monti. 

Tók annars klassíska en góða fótaæfingu: Hnébeygjur, Stiff, Framstig, Sumo, Fótaréttur og -beygjur.  Allar æfingar eru teknar 5-10 reps, 5-6 sett og þungt þungt þungt þessa dagana enda Naglinn að reyna að stækka.

 Eftir æfingu slafraði Naglinn í sig prótínsjeik og hrískökum, bruddi allar pillurnar sínar og skolaði herlegheitunum niður með 1/2 lítra af vatni.  

Restin af deginum fer svo í að fóðra sig vel og hvíla vöðvana til að þessar lufsur stækki nú eitthvað.   

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Audrey

Hmm ég sá til þín og skil nú af hverju þú ert kölluð Naglinn!! 

Audrey, 12.12.2007 kl. 10:05

2 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Hehehe ...já maður reynir yfirleitt að taka vel á því á æfingu. Eða eins og ég segi stundum: Go hard or go home .   

Ragnhildur Þórðardóttir, 12.12.2007 kl. 10:23

3 identicon

Ragga, sá að þú tókst vel á því í morgun. Njóttu svo eftirmiðdagsins í slökun eða til að finna þér nýtt áhugamál, td flugunýtingar,prjóna,leira,föndra eða bara einfaldlega að chilla. Þú átt það nú skilið.

kv. Anna Marta

Anna Marta (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 10:23

4 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Blessuð Anna Marta,

Já það er alveg nauðsynlegt að finna sniðugt áhugamál núna þegar maður má ekki brenna eins og vindurinn lengur.  Skrýtin tilhugsun að fara ekki í ræktina seinnipartinn .  Ætti kannski að sökkva mér inn í Glæstar vonir eins og þú nefndir í morgun, nú eða henda í nokkrar sortir fyrir jólin, þrífa eldhússkápana eða endurraða í sokkaskúffuna.  Enda samt örugglega bara á því að fara í Kringluna, sjá flotta skó og láta glepjast 

Ragnhildur Þórðardóttir, 12.12.2007 kl. 11:30

5 identicon

Luuuuuuuv me them fótaæfingar :D

Fannar Karvel (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 16:12

6 identicon

 Til hamingju, ég held að þú haldir áfram að efla þig á æfingum ef þú hvílir seinnipartinn.

kv

Svansa 

Svana (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 19:37

7 identicon

Þú ert alltaf jafn óhuggulega dugleg  Mikið vildi ég að ég ætti annars í svona "vanda" með tímann seinnipartinn. Ég get kannski útvegað þér verkefni svo ég komist í ræktina seinnipartinn  

Spurningar að vanda: einu sinni talaðir þú um Da Vinci sýróp. Mig minnti að þú hefðir sagt að það væri sykurlaust!? Er það eitthvað sem er sérmerkt sem sykurlaust? Ég hef séð þetta sýróp en man að í innihaldslýsingunni var talað um Cane sugar og ég man ekki eftir að neitt af þeim hafi verið merkt öðruvísi. Er þetta einhver misskilningur í mér?

Annað; ég held að ég hafi verið búin að spyrja þig að þessu áður en ég man bara alls ekki eftir svarinu og fann það ekki á síðunni. Hvaða púlsmælum mælir þú með?

kv Óla Maja

Óla Maja (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 21:45

8 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Svana! Alveg rétt hjá þér, ég hef gott af því að minnka aðeins æfingarnar.  Það gefur mér bara meiri orku í þær.  Ertu komin heim skvís?

Óla Maja!

Ég hef alltaf notað Polar púlsmæla.  Þeir fást í Útilíf, Hreysti, en veit að mínir hafa báðir verið keyptir hjá umboðsaðilanum P. Ólafsson í Hafnarfirði(fékk báða í afmælisgjöf frá kallinum ). 

Da Vinci sykurlaust sýróp er sérmerkt sugarfree.  Það eru engar kaloríur, engin kolvetni eða neitt.   Í innihaldslýsingunni er ekkert nema vatn og einhver E-efni, semsagt snar óhollt, en maður notar svo lítið í einu að það er ábyggilega ekki bráðdrepandi .  Ef það stendur cane sugar á flöskunni þá ertu með þetta sykraða. 

Ragnhildur Þórðardóttir, 13.12.2007 kl. 08:57

9 Smámynd: Ester Júlía

Svakalegur dugnaður er þetta krúttið mitt!!  Takk fyrir síðast, þú varst æðisleg ( og ert) .

Nú fer að líða að næstu keppni.. ég er í brjáluðu æfingastuði þessa daganna, er sömuleiðis að reyna að stækka en gleymi ekki brennslunni , hún fær að fljóta með til að minnka samviskubitið vegna allra konfektmolanna og gúmmílaðisins sem ég get því miður ekki látið eiga sig á milli þess sem ég borða próteinríkar máltíðir

Knús á þig

Ester Júlía, 13.12.2007 kl. 09:21

10 Smámynd: Ragnhildur Þórðardóttir

Takk fyrir síðast sömuleiðis mín kæra, þú leist glæsilega út.  Já næsta keppni nálgast eins og óð fluga og nú er um að gera að halda vel á spöðunum til að fá eitthvað kjöt utan á sig áður en skurðurinn ógurlegi hefst aftur.  

Gangi þér vel skvís

Ragnhildur Þórðardóttir, 13.12.2007 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Þórðardóttir
Ragnhildur Þórðardóttir

Hér læt ég gamminn geysa um ýmislegt sem tengist hreyfingu, heilbrigðum lífsstíl og hollu mataræði í formi pistla og fróðleiks.  Mín lífsviðhorf eru að góð heilsa er gulli betri og að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. 
Ég tek einnig að mér fjarþjálfun.

Allar upplýsingar um fjarþjálfun á www.ragganagli.com

Spurt er

Hvað gerirðu margar brennsluæfingar á viku?

Nýjustu myndir

  • front-plank-exercise
  • binge_barbie
  • sleep-deprived
  • phpwWI9BvAM
  • eating too much

Aðrir vaðlarar

Bækur

Góðar bækur

  • Bók: A Thousand Splendid suns
    Khaled Hosseini: A Thousand Splendid suns
    Frábær bók en jafnframt mjög átakanleg. Þurfti að loka henni nokkrum sinnum og jafna mig því lýsingarnar á heimilisofbeldinu voru einum of grafískar fyrir minn smekk.
    *****
  • Bók: Kite runner
    Khaled Hosseini: Kite runner
    Algjör snilld. Fjallar um tvo drengi í Afganistan í kringum 1970 áður en allt fór til fjandans þar í landi.
    *****
  • Bók: On beauty
    Zadie Smith: On beauty
    ***
  • Bók: Espresso tales
    Alexander McCall Smith: Espresso tales
    Framhald af 44 Scotland Street. Er að lesa hana núna.
  • Bók: 44 Scotland Street
    Alexander McCall Smith: 44 Scotland Street
    Gerist í Edinborg og þvílík nostalgía sem ég fæ við að lesa þessa bók enda kannast maður við alla staðina sem fjallað er um.
    ****
  • Bók: The time traveller's wife
    Audrey Niffenegger: The time traveller's wife
    Með betri bókum sem ég hef lesið. Falleg ástarsaga um mann og konu sem þurfa að díla við tímaflakk mannsins.
    ****
  • Bók: We need to talk about Kevin
    Lionel Shriver: We need to talk about Kevin
    Hugleiðingar móður fjöldamorðingja um áhrif uppeldis og erfða. Mjög athyglisverð lesning, sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á "nature-nurture" deilunni.
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 549222

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband